Læknablaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
521
hugun á sjúkraskrám varpar aðeins ljósi á lyfja-
notkun afmarkaðra sjúklingahópa. Sölutölur
eru ekki ábyggilegur mælikvarði á notkun
háþrýstingslyfja þar sem ýmis þessara lyfja eru
einnig notuð vegna annarra sjúkdóma. Óljóst
er að hve niiklu leyti má byggja á skoðana-
könnunum meðal lækna.
Tilgangur þessarar rannsóknar var því að
kanna notkun háþrýstingslyfja og árangur
háþrýstingslyfjameðferðar í hópi roskinna
karla á íslandi. Með úrtaki Hjartaverndar fæst
örugg leið til að varpa ljósi á raunverulega
notkun háþrýstingslyfja í þessum hópi.
Efniviður og aðferðir
Til rannsóknar var boðið öllum körlum sem
fæddir voru l.,4.,7. og svo framvegis, hvers
mánaðar á árunurn 1907-1921 og búsettir voru
á Reykjavíkursvæðinu 1. desember 1967 (1).
Sjötti áfangi hóprannsóknar Hjartaverndar
hófst í apríl 1991 og lauk rannsókn á körlum í
febrúar 1994 en rannsókn á konum er ólokið.
Alls voru 1145 karlar á aldrinum 70-84 ára á lífi
árið 1991. Af þeim mættu 834 til rannsóknar
árin 1991-1994. í þýðinu var B hópur sem hafði
komið í alla áfanga hóprannsóknarinnar síðan
1967 og F hópur sem aldrei hafði áður mætt og
var því viðmiðunarhópur. í þessari rannsókn
voru þó báðir hóparnir skoðaðir sem einn. Þrjú
hundruð og ellefu tóku ekki þátt í rannsókn-
inni. Af þeim náðist ekki í 94 þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir og 217 afþökkuðu af ýmsum
ástæðum. Þar af voru 58 of veikir til að geta
komið til rannsóknar og 159 tilgreindu aðrar
ástæður. Þátttakan er því 72,8% sem telst vera
vel viðunandi enda var um að ræða roskna
einstaklinga. Af 834 körlum reyndust 429 ann-
að hvort hafa sögu um háþrýsting eða höfðu
háan blóðþrýsting við mælingu á rannsóknar-
stöðinni og var það sá hópur sem rannsókn
þessi beinist að.
Við komuna voru fengnar upplýsingar um
almennt heilsufar, byggðar á stöðluðum spurn-
ingalista og skoðun var framkvæmd.
Þeir sem svöruðu játandi einni eða fleiri af
eftirfarandi spurningum voru teknir inn í rann-
sóknarhópinn:
1. Hefur þú einhvern tíma leitað læknis
vegna háþrýstings eða gruns um háþrýsting?
2. Ert þú nú undir læknishendi vegna
háþrýstings?
3. Tekur þú reglulega inn lyf við háþrýst-
ingi?
Auk þess voru athuguð sérstaklega svör við
eftirfarandi spurningum:
1. Hefur þú einhvern tíma leitað læknis
vegna kransæðastíflu eða gruns um kransæða-
stíflu?
2. Hefur þú legið á sjúkrahúsi eða heilsuhæli
vegna hjartasjúkdóms?
3. Ert þú nú undir læknishendi vegna krans-
æðasjúkdóms?
4. Ert þú nú undir læknishendi vegna annars
hjartasjúkdóms?
5. Verður þú móður við gang á jafnsléttu
með fólki á þínum aldri?
Blóðþrýstingsmælingar voru gerðar á öllum.
Blóðþrýstingur var mældur tvívegis með 10
daga millibili. í fyrra skiptið voru þátttakendur
fastandi á lyf og fæðu frá kl. 22 kvöldið áður og
var mæling framkvæmd af hjúkrunarfræðingi. í
seinna skiptið voru þátttakendur ekki fastandi
og var mæling framkvæmd af lækni.
Þeir töldust hafa háþrýsting sem náðu eftir-
farandi viðmiðunarmörkum Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar.
1. Slagþrýstingur > 160 mm Hg og/eða lag-
þrýstingur 95 mm Hg í báðum mælingunum.
2. Blóðþrýstingur náði ekki þessum mörk-
um, en einstaklingurinn var á blóðþrýstings-
meðferð.
Hjá sjö þátttakendum kom í ljós að lagþrýst-
ingur var ranglega skráður. Hjá 25 þátttakend-
um vantaði einhverjar blóðþrýstingsmælingar.
Við tölfræðiútreikninga var tekið tillit til þessa.
Markhópinn mynduðu því þeir karlar sem
höfðu háþrýsting samkvæmt spurningalista og/
eða mælingum, alls 429 þátttakendur. Gögn
þeirra sem töldu sig taka reglulega inn háþrýst-
ingslyf voru könnuð sérstaklega. Lyfjategund
var skráð ásamt skammtastærð og skammta-
tíðni. Sérlyfin voru flokkuð samkvæmt núm-
erakerfi sérlyfjaskrár 1994. Fullnægjandi upp-
lýsingar um tegundir háþrýstingslyfja vantaði
hjá níu körlum.
Engin meðferð var veitt á rannsóknarstöð-
inni. Einstaklingum sem reyndust hafa
háþrýsting var bent á að leita til heilsugæslu-
læknis.
Við tölfræðiútreikninga var notað t-próf
stúdents.
Niðurstöður
Af 429 körlum með háþrýsting höfðu 220
(um 51%) blóðþrýsting yfir viðmiðunarmörk-
um Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Há-