Læknablaðið - 15.12.1994, Síða 54
562
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
23. Kviðsjáraðgerðir við
sárrofí í maga og skeifugörn
— Þrjú tilfelli af
Landspítalanum
Tómas Jónsson
Landspítalinn
Aðgerðum vegna sárasjúkdóms í maga og skeifu-
görn hefur fækkað þegar á heildina er litið en bráðar
aðgerðir vegna fylgikvilla ein sog blæðinga og sárrofs
eru enn algengar. Með tilkomu kviðsjár hafa opnast
möguleikar á að beita henni við sárrof. Nú hafa verið
gerðar þrjár aðgerðir af höfundi, sem allar hafa
gengið vel og er aðgerðinni lýst og reifuð framtíðin í
þeim efnum.
24. Krabbamein í
gallgöngum 1984-1993 á
Landspítalanum — Aftursýn
faraldsfræðileg rannsókn
Ragnhildur Steinbach, Bjarni Agnarsson, Jónas
Magnússon
Þessi æxli eru mikilvæg að því leyti að þau valda
mjög slæmum einkennum en eru yfirleitt mjög hægt
vaxandi. Tilgangur þessarar rannsóknar var að gera
grein fyrir fjölda og eðli sjúklinga með krabbamein í
gallgöngum sem valda stíflum.
Athugaðar voru sjúkraskýrslur sjúklinga sem
lögðust inn á Landspítalann frá 01.01.1984 til ársloka
1993 með greininguna krabbamein í gallgöngum.
Reyndust þetta 15 sjúklingar. Hjá einum þeirra vant-
aði nákvæma vefjagreiningu og hann því ekki tekinn
með. Fjórtán sjúklingar voru þannig með staðfesta
greiningu. Meðalaldur þessara sjúklinga var 71 ár, sá
elsti var 87 ára, sá yngsti 56 ára. Allir sjúklingarnir
greindust vegna einkenna sem leiddu til áframhald-
andi rannsókna. Flestir þessara sjúklinga voru með
einkenni stíflugulu en aðeins einn sjúklingur hafði
einkenni um megrun og lystarleysi eingöngu. Meðal-
tímalengd einkenna var einnig mjög stutt, rúmar
tvær vikur. Gerð var ómskoðun hjá öllum sjúkling-
unum en tölvusneiðmynd ekki nema hjá tveimur og
gaf það ekki neinar sérstakar viðbótarupplýsingar í
þeim tilfellum. ERCP var einnig aðeins gert hjá litl-
um hópi sjúklinganna. Prettán sjúklinganna reynd-
ust með adenocarcinoma en einn sjúklingur var með
carcinoid æxli. Reyndist einn sjúklingur með æxli í
proximal hluta gallganga, tveir sjúklinganna voru
með æxli í miðhluta gallganganna, en langflestir
reyndust með æxli í distal hluta, það er við caput
pancreas og ampulla vateri eða 11 sjúklinganna.
Flestir sjúklinganna voru teknir til aðgerðar, einn
sjúklingur fékk enga meðferð sökum aldurs. Þrettán
sjúklingar fóru þannig í aðgerð og níu þeirra til með-
ferðar en líknandi aðgerð var gerð hjá fjórum þeirra
og tveir sjúklingar voru geislaðir. Enginn þeirra fékk
cytostatica. Whipple-aðgerð var gerð hjá sjö sjúkl-
inganna. Hjá einum var gert brottnám á æxli í chol-
edochus og hjá öðrum brottnám á æxli í ductus hepa-
ticus. Einn sjúklingur dó eftir Whipple-aðgerð. Allir
þessir sjúklingar eru dánir nema einn (< fimm ár) og
var líftími stuttur, eða að meðaltali eitt ár og rúmir
tveir mánuðir.
Krabbamein í gallgöngum er ekki mjög algengt og
þetta eru tiltölulega fáir sjúklingar. Sjúklingar voru
með áberandi stutta sögu um einkenni fyrir grein-
ingu. Helsta aðgerðin við krabbamein distalt f gall-
göngum er Whipple-aðgerð og f þessu efni eru ekki
nema þrír sjúklingar með staðsetningu æxlisins
meira proximalt. Líftími eftir aðgerð er mjög stuttur.
25. Non-seminoma
krabbamein í eistum
íslenskra karla 1971-1990 —
Greining, stigun og lífshorfur
— Klínísk rannsókn á 43
tilfellum
Reynir Björnsson1*, Tómas Guðbjartsson2), Guð-
mundur V. Einarsson2*, Kjartan Magnússon3), Sig-
urður Björnsson3)
‘’Læknadeild Háskóla Islands, 2)þvagfæraskurðdeild
Landspítalans, 3)krabbameinslækningadeild Land-
spítalans
Krabbamein í eistum eru langflest seminoma eða
non-seminoma (NS) og eru þau síðarnefndu tæpur
helmingur tilfellanna. Erlendis hafa lífshorfur sjúkl-
inga með NS batnað mikið síðustu tvo áratugina í
kjölfar öflugri lyfjameðferðar. Ekki eru til upplýs-
ingar um lífshorfur sjúklinga með NS hér á landi en
nýgengi krabbameins í eistum hefur verið lágt á ís-
landi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna með
hvaða hætti NS sjúklingar greinast hér á landi, lífs-
horfur þeirra og stigun. Einnig að meta lífshorfur
sjúklinga eftir að farið var að beita nýrri og kröftugri
lyfjameðferð við NS á síðari hluta áttunda áratugar-
ins.
Gerð var afturskyggn klínísk rannsókn á öllum
sem greindust með NS krabbamein í eistum (ICD-7
178) á fslandi frá 1. janúar 1971 til 31. desember 1990,
samkvæmt Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags ís-
lands. Frekari upplýsingar voru fengnar úr sjúkra-
skrám. Alls greindust 43 karlar á tímabilinu, meðal-
aldur tæp 26 ár, bil 17^16 ár. Skráð voru upphafsein-
kenni og tímalengd einkenna. Öll æxlin voru flokkuð
eftir vefjagerð og eftir 1978 voru allir sjúklingarnir