Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1994, Side 61

Læknablaðið - 15.12.1994, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 569 myndatöku varðandi það hvort hryggslagæðar (AA.Vertebrales) væru opnar eða ekki. Ómrann- sókn þesi er þannig mjög góð rannsóknaraðferð til að greina flæðistruflanir í þeim hluta hálsslagæða sem aðgengilegur er fyrir ómskoðun og staðfesta flæði og stefnu þess í hryggslagæðum. 41. Skurðaðgerðir til varnar slagi Halldór Jóhannsson Landspítalinn Talið er að verulegur hluti heilablóðfalla orsakist af reki frá hálsæðaþrengslum, það er að segja þrengslum í arteria carotis interna og communis. Menn hafa ekki verið á eitt sáttir um meðferð, en nú nýverið hafa birst áfanganiðurstöður úr tveimur stórum rannsóknum (North American Symptomaic Carotid Endarterectomy Trial — NASCED og Eur- opean Carotid Surgery Trial — ECST). f þessum rannsóknum er borinn saman árangur af lyfjameð- ferð, með eða án skurðaðgerðar við hálsæðaþrengsl- um hjá sjúklingum sem hafa haft einkenni frá tauga- kerfi. Niðurstöður þessara rannsókna gefa ljóst til kynna að beita skal skurðaðgerð hjá sjúklingum með einkenni og stenosu sem er meiri en 70%. Til er ágæt samantekt um skurðaðgerðir á hálsæð- um, gerð af Daníel Daníelssyni og Páli Gíslasyni á Landspítala 1968-78, því er könnuð tíðni aðgerða frá þessum tíma til loka árs 1993. Samtals voru gerðar aðgerðir á 43 sjúklingum þar af voru 26 karlar og 17 konur. Yngsti sjúklingurinn var42 ára, sá elsti 75 en langflestir voru á aldrinum 60-69 ára. Af þessum aðgerðum voru 35 gerðar í svæfingu og átta í deyf- ingu. Notaður var arteriovenu-shunt hjá 15 sjúkling- um og hjá 20 þeirra var mældur þrýstingur distalt við loku fyrir aðgerð. Post op. blæðingar fengu tveir sjúklingar, slag fengu sex og tveir dóu post op. Nið- urstaðan af þessari samantekt er að tíðni aðgerða vegna þrengsla á hálsæðum sé mjög lág á íslandi. 42. Skurðaðgerðir við emphysema bullosum Kristinn B. Jóhannsson*, Hörður Alfreðsson*, Grétar Ólafsson*, Björn Magnússon**, Tryggvi Ás- mundsson** *Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans, **lungnadeild Landspítalans og Reykjalundar Emphysema pulmonum á mismunandi stigi er al- gengur sjúkdómur, sem veldur vaxandi mæði. Loka- stig þessa sjúkdóms er að sjúklingur getur ekki gert algengustu hluti eins og klætt sig. Á síðustu tveimur árum höfum við fengið fjóra sjúklinga með emphys- ema bullosum. Þessir sjúklingar voru rannsakaðir og í þjálfun á Reykjalundi. Röntgenmynd af lungum, Astrup-mælingar, lungnaþolpróf, sneiðmynd af lungum og nákvæm öndunarpróf voru gerð á öllum þessum sjúklingum. Hjá öllum fjórum kom í ljós að þeir voru með stórar blöðrur í brjóstholi sem þrýstu á lungnavef. Ákveðið var að fjarlægja þessar blöðrur og var það gert með sternotomiu. Árangur af að- gerðunum var mjög góður. 43. Bráð hjartaaðgerð í kjölfar kransæðaútvíkkunar Sigríður Þ. Valtýsdóttir, Kristinn Jóhannsson, Krist- ján Eyjólfsson, Einar Jónmundsson, Jónas Magnús- son Landspítalinn, læknadeild Háskóla íslands Inngangur: Rúmlega 100 kransæðaútvíkkanir (PTCA) eru gerðar árlega á Landspítalanum. Alvar- legasti fylgikvilli þeirra er kransæðalokun. Bráð hjartaaðgerð (CABG) er þá nauðsynleg. Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga fjölda bráðra CABG eftir PTCA og afdrif þeirra sjúklinga. Efniviður: 670 PTCA voru gerðar á tímabilinu maí 1987 til ársloka 1993. Kransæð lokaðist hjá 23 sjúkl- ingum (3,4%) og þurftu þeir bráðrar hjartaaðgerðar við. Aðferð: Úr sjúkraskýrslum fékkst aldur, kyn, NYHA stig fyrir og eftir aðgerð. Skráð var: Sjúk æð og fjöldi þrengsla, tími frá lokun æðar til aðgerðar, legutími, fjöldi græðlinga og notkun mamm.int., að- gerðar-, svæfingar- og vélartími, hvatagildi og hvort sjúklingar höfðu fengið kransæðastíflu fyrir aðgerð eða eftir, fylgikvilli aðgerðar og skurðdauði. Haft var samband við sjúklinga sem útskrifuðust, líðan þeirra og vinnufærni skráð. Niðurstöður: Karlar voru 20 og konur þrjár, meðalaldur 59 ár. Öll höfðu einn eða fleiri áhættu- þætti fyrir kransæðasjúkdóm. Fyrir PTCA höfðu átta af 23 sjúklingum hvikula hjartaöng. Fyrri sögu um MI höfðu sjö af 23 og sjö sjúklingar höfðu einnar æðar sjúkdóm. LAD var oftast þrengd (15/23). Meðalblóðþurrðartími var 74 mín. (std 29 mín). „Reperfusions catheter" var notaður hjá átta sjúkl- ingum. Notaðir voru 52 græðlingar (2,5 hjá einstakl- ingi). Hjá átta sjúklingum var mamm.int. notuð. Skurðdauði var 2/23. Fjórir sjúklingar fengu hjarta- lost við þræðingu og voru hnoðaðir fyrir aðgerð og létust tveir þeirra. Átta sjúklingar höfðu merki um nýjan MI (Q bylgja). Haft varsamband viðsjúklinga (náðist í 18) sem útskrifuðust og reyndist einn (1/18) hafa hjartaöng. Af vinnufærum fyrir aðgerð fóru 14 af 17 til vinnu aftur. Ellefu sjúklingar höfðu aukin lífsgæði, sex sjúklingar svipuð og einn sjúklingur var verri. Umræða: Tíðni bráðra CABG eftir PTCA (3,4%) er sambærilegt við erlend uppgjör. Enginn sjúkling- anna sem fengu „reperfusions catheter" lést. Fjórir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.