Læknablaðið - 15.12.1994, Page 76
NÝ RANNSÓKN, SEM MUN VALDA STRAU MHVORFUM
ZOCOR®(TÖFLUR, MSD)
MSD, 890108, Töflur, B 04 A B 01
HVERTAFLA INNIHELDUR:
Simvastatinum INN 10 mg eða 20 mg.
EIGINLEIKAR:
Lyfið blokkar HMG-CoA-redúktasa og dregur þannig úr nýmyndun
kólesteróls. Lyfið lækkar heildarkólesteról, LDL-kólesteról og VLDL-
kólesteról. 95% af lyfinu frásogast og berst til lifrar. Próteinbinding í
plasma er meiri en 94%. Hámarksblóöþéttni næst 1-2 klst. eftir
inntöku. U.þ.b. 60% skiljast út í galli, en 13% í þvagi.
ÁBENDINGAR:
Veruleg hækkun kólesteróls í blóöi, þegar sérstakt mataræði hefur
ekki borið tilætlaðan árangur.
Frábendingar: Lifrarsjúkdómur eða hækkuð lifrarenzým í blóði af
ókunnri orsök. Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Lyfið
ætti ekki að gefa konum á barneignaaldri nema notuö sé örugg
getnaðarvörn.
VARÚÐ:
Mælt er með því aö mæld séu lifrar ensým í sermi fyrir meðferð og
síðan reglulega, sérstaklega, ef upphafsgildi eru verulega hækkuð
og ef sjúklingurinn neytir oft áfengis.
AUKAVERKANIR:
Algengar(> 1%): kviöverkir, hægðatregöa, uppþemba, ógleöi.
Sjaldgæfar (0,1-1%): slen, svefnleysi, höfuöverkur, lystarleysi, niöur-
gangur, útþot. örsjaldgæfar (< 0,1%): vöövabólga. Kreatíngildi í
sermi geta einstaka sinnum hækkaö við meðferð með lyfinu.
MILLIVERKANIR:
Hækkuð blóðþéttni warfaríns og díkúmaróls hefur sést, ef lyfiö er
tekið samtímis þessum lyfjum. Þar sem hætta á vöðvabólgu (myosi-
tis) eykst, ef náskylt lyf, lóvastatín, er tekiö samtímis fíbrötum,
nikótínsýru og ónæmisbælandi lyfjum, t.d. cýklóspóríni, ber aö
fylgjast með kvörtunum um vöðvaverki og kanna CK-gildi í sermi.
SKAMMTASTÆRÐIR HANDA FULLORÐNUM:
Byrjunarskammtur er 10 mg síðdegis. Auka má skammtinn á 4 vikna
fresti, ef með þarf. Hámark eru 40 mg daglega. Jafnframt er haldið
áfram sérstöku mataræöi til að lækka kólesteról.
SKAMMTASTÆRÐIR HANDA BÖRNUM:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
PAKKNINGAR:
Töflur 10 mg: 28 stk. (þynnupakkað) og 98 stk. (þynnupakkað).
Töflur 20 mg: 28 stk. (þynnupakkað) og 98 stk. (þynnupakkaö).