Læknablaðið - 15.12.1994, Page 93
Flemoxin Solutab amoxicillin
- Einu breiðvirku penicillin-töflurnar
sem bæði má gleypa og leysa upp!
Með Flemoxin Solutab þarf
aðeins eitt lyfjaform
Frásogast vel
Aukaverkanir frá meltingarvegi
sjaldgæfar
Þægileg lausn fyrir stóra og smáa,
2svar sinnum á dag.
JUYamanouchi
Einkaumboð á íslandi: Pharmaco h.f.
Flemoxin
Solutab 750
Hver tafla inniheldur; Amoxicillinum INN, tríhýdrat, samsvarandi Amoxicillinum INN 125 mg, 250 mg, 375 mg, 500 mg eða 750 mg.
Eiginleikar: Breiðvirkt beta-laktam sýklalyf með áhrif bæði á Gram-jákvæða og Gram-neikvæða sýkla, þó ekki staphylococca. Sérlega virkt gegn
H. influenzae oggónókokkum. Er bakteríudrepandi. Frásogast vel, yfir90% frá meltingarvegi. Helmingunartími íblóði er u.þ.b. 1 klst. 50-70%
útskilst óbreytt með þvagi. Há þéttni í galli. Lyfið fer yfir fylgju og í brjóstamjólk, en er þó skaðlaust fyrir fóstur og brjóstmylkinga. Ábendingar:
Sýkingar af völdum amoxicillínnæmra (= ampicillínnæmra) sýkla, t.d. berkjubólga, þvagfærasýkingar. Lekandi. Frábendingar: Ofnæmi gegn
penicillínsamböndum. Mononucleosis infectiosa og ýmsar aðrar veirusýkingar stórauka líkur á útbrotum við töku lyfsins.
Aukaverkanir: Húðútbrot. Meltingaróþægindi svo sem niðurgangur eða ógleði. Milliverkanir: Sé lyfið gefið samtímis allópúrínóli, aukast
líkur á útbrotum. Skammtastærðir handa fullorðnum: Töflurnar eru annað hvort leystar upp í glasi af vatni fyrir inntöku eða gleyptar heilar.
Venjulegur skammtur er 750-2000 mg á sólarhring, gefið í þremur til fjóruin jöfnum skömmtum. Við sýkingar í efri loftvegum, miðeyrum,
þvagfærum og við lungnabólgu af völaum pneumococca og H. influenzae mágefa lyfið í tveimur jöfnum skömmtum á sólarhring. Við lekanda:
2 g gefið í einum skammti '/i-1 klst. eftir gjöf 1 g af próbenecíði. Skammtastærðir handa börnum: Venjulegur skammtur er 25-50 mg/kg á
sólarhring, gefið í þremur til fjórum jöfnum skömmtum. Við sýkingar í efri loftvegum, miðeyrum, þvagfærum og við lungnabólgu af völdum
pneumococca og H. influenzae má gefa lyfið í tveimur jöfnum skömmtum á sólarhring.
Pakkningar. Töflur 375 mg: 20 stk. (þynnupakkað)
Töflur 125 mg: 14 stk. (þynnupakkað), 20 stk. (þynnupakkað) Töflur 500 mg: 14 stk. (þynnupakkað), 20 stk. (þynnupakkað)
Töflur 250 mg: 14 stk. (þynnupakkað), 20 stk. (þynnupakkað) Töflur 750 mg: 14 stk. (þynnupakkað), 20 stk. (þynnupakkað)