Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 21

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 93 Inngangur Enn í dag byggja siðareglur lækna að hluta til á árþúsunda gömlum eiðstaf Hippókratesar. Siðfræðileg umræða innan læknisfræðinnar hefur verið misöflug í aldanna rás en á undan- förnum árum hafa sjónir heilbrigðisstétta, heimspekinga, félagsfræðinga og ýmissa ann- arra beinst í auknum mæli að siðfræði læknis- fræðinnar. Sú umræða hefur einkum byggt á fjórum siðalögmálum, það er að lækni beri að gera sjúklingnum gott og valda honum ekki skaða, sýna beri virðingu fyrir sjálfræði ein- staklingsins og gæta réttlætis. Þessum fjórum lögmálum hefur meðal annars verið beitt til að leita svara við spurningunni um hvenær rétt sé að veita ekki eða takmarka meðferð sem í boði er við lífslok (1). Rannsóknum á sviði siðfræði innan læknis- fræði hefur fjölgað samhliða aukinni siðfræði- legri umræðu. Tíðrætt hefur verið um tak- mörkun meðferðar við lífslok og hvort alltaf skuli beita endurlífgun. Bandaríkjamenn hafa birt rannsóknir á þessu sviði. Þar hafa viðhorf til þess að takmarka meðferð verið könnuð og þau vinnubrögð sem tíðkast skoðuð. Banda- ríkjamenn búa við þær aðstæður að ágrein- ingsefnum um læknisfræðileg mál er oftar skot- ið til dómstóla en þekkist í Evrópu. Það hefur opnað almenna umræðu unt siðfræðileg álita- mál innan heilbrigðiskerfisins þar í landi og stuðlað að gerð leiðbeininga um takmörkun nteðferðar (2,3). Við sum bandarísk sjúkrahús er boðið upp á ráðgjöf um siðfræði (4). Flest ríki Bandaríkjanna hafa sett löggjöf til að tryggja rétt sjúklinga til að hafna lífslengjandi meðferð fyrirfram ef þeir verða ófærir um að taka sjálfir ákvörðun síðar og kennsluefni hef- ur verið samið til að æfa unglækna í að ræða við sjúklinga um takmörkun meðferðar við lífslok (5) . Tveir bandarískir læknar könnuðu viðhorf lækna til takmörkunar á meðferð 1981 og aftur 1988 og merktu umtalsverðar breytingar á við- horfum, þar sem læknar árið 1988 áttu auð- veldara með að ræða takmörkun á meðferð við sjúklinga sína og voru líklegri til að virða óskir sjúklinga um að hafna lífslengjandi meðferð (6) . í annarri könnun voru borin saman við- horf lækna og sjúklinga til ákvarðana unt að endurlífga ekki. Þar kom fram að báðir hópar töldu að til viðbótar lækni og sjúklingi ætti að hafa samráð við maka eða börn sjúklingsins (7) ; , Á íslandi hefur almenn umfjöllun um sið- fræði farið vaxandi meðal lækna. Nokkuð hef- ur verið skrifað um siðfræði í Læknablaðið og Fréttabréf lækna (8-11). Spurningin um tak- mörkun meðferðar við lífslok hefur verið til umfjöllunar á Borgarspítala, þar sem sérstakar leiðbeiningar um hvernig staðið skuli að slík- um ákvörðunum voru settar fram 1990 (12). Þeim sömu leiðbeiningum hefur verið fylgt á Landakoti. Læknaráð Landspítalans sam- þykkti leiðbeiningar um takmörkun meðferðar við lífslok fyrir þremur árum en þær hafa ekki enn komist í almenna notkun á deildum. Ný- lega kynnti siðaráð landlæknisembættisins til- lögu sína að leiðbeiningum um takmörkun meðferðar við lífslok. Til að kanna hvort og þá hvaða siðfræðilegu þættir ættu að hafa áhrif á slíka ákvörðun, var gerð viðhorfskönnun meðal lækna og hjúkrun- arfræðinga á Borgarspítala og Landspítalan- um. Sérstök áhersla var lögð á viðhorf til sjálf- ræðis sjúklings og samskipta bæði milli heil- brigðisstétta og sjúklinga og milli heilbrigðisstétta innbyrðis. Mest var fjallað um takmörkun á meðferð við lífslok hjá sjúkling- um sem eru ákvörðunarhæfir, en tekið eitt dæmi um sjúkling með heilabilun. Aðferð Könnunin var unnin í mars til maí 1995. Sendur var spurningalisti til 73 lækna á Borgar- spítala og 111 lækna á Landspítalanum, alls 184 lækna. Þá var sami listi sendur til helmings hjúkrunarfræðinga hverrar deildar, 110 hjúkr- unarfræðinga á Borgarspítala og 129 á Land- spítalanum; alls 239 hjúkrunarfræðinga. Deild- ir á Borgarspítala voru: skurðlækningadeildir A3, A4, A5, svæfinga- og gjörgæsludeild, lyf- lækningadeildir A7 og A6, hjartadeild B6 og öldrunarlækningadeildir B4 og B5. Á Land- spítalanum: handlækningadeildir 12C, 13A, 13D, skurðstofa, svæfinga- og gjörgæsludeild, krabbameinsdeild 11E, meltingar-, smit- og innkirtladeild 11A og 11B, almennar lyflækn- ingadeildir, 14E og 14G, taugalækningadeild 32A og öldrunarlækningadeild í Hátúni. Listi yfir lækna og hjúkrunarfræðinga á þessum deildum var fenginn á launadeildum spítal- anna. Hjúkrunarfræðingar voru valdir með slembiúrtaki. Spurningalistinn hét Viðhorfs- könnun ineðal lœkna og hjúkrunarfrœðinga um takmörkun meðferðar við lífslok og innihélt 11 spurningar og þrjár sjúkrasögur (sjá viðauka). Skil voru ítrekuð einu sinni bréflega. Ekki

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.