Læknablaðið - 15.02.1997, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
101
6. a) Ert þú sammála þeirri fullyrðingu að rétt
sé að leyfa ákvörðunarhæfum, ólæknandi,
deyjandi sjúklingi að hafna lífslengjandi með-
ferð ef hann æskir þess (sammála/ósammála)?
b) Myndir þú virða slíkar óskir (já/nei)?
7. a) Telur þú undir einhverjum kringumstæð-
um réttlætanlegt að deyða ákvörðunarhæfan,
ólæknandi sjúkling ef hann æskir þess (já/nei)?
b) Myndir þú undir einhverjum kringum-
stæðum deyða slíkan sjúkling ef hann æskti
þess (já/nei)?
8. Telur þú þig eiga auðvelt með að ræða við
sjúklinga eða aðstandendur um takmörkun á
meðferð við lífslok (mjög auðvelt-frekar auð-
velt-erfitt-mjög erfitt)?
9. Læknar svari:
a) Hefur þú sem læknir samráð við hjúkrun-
arfræðinga við ákvörðun um takmörkun
meðferðar við lífslok (alltaf-oft-sjaldan-
aldrei)?
b) Hefur þú sem læknir samráð við sjúkling
og/eða aðstandendur við ákvörðun um
takmörkun meðferðar við lífslok (alltaf-
oft-sjaldan-aldrei)?
10. Hjúkrunarfræðingar svari:
Finnst þér sem hjúkrunarfræðingi læknar
hafa samráð við hjúkrunarfræðinga við
ákvörðun um takmörkun meðferðar við lífslok
(alltaf-oft-sjaldan-aldrei) ?
11. Á kostnaður að ráða einhverju um það
hvort meðferð er veitt við lok lífs eða ekki
(já/nei)?
Sjúkrasögur
1. Sigurður er 55 ára, giftur og á tvö uppkom-
in börn. Hann greindist með krabbamein fyrir
tveimur árum. Reynt var að nema æxlið brott
en það hafði náð að dreifa sér með meinvörp-
um og er nú ólæknandi. Undanfarið hefur
heilsu Sigurðar hrakað hratt. Hann er nú rúm-
fastur á spítala og er ákaflega þjáður þrátt fyrir
ítrekaðar meðferðarbreytingar. Lífsvilji Sig-
urðar er ljós og í samtali við lækni óskaði hann
eftir að endurlífgun yrði beitt ef hann færi í
hjarta- eða öndunarstopp. Hvað leggur þú til
að verði gert?
a) Veitt full meðferð og endurlífgun reynd
ef hann fer í hjarta- eða öndunarstopp
b) Veitt full meðferð en ekki reynd endur-
lífgun ef hann fer í hjarta- eða öndunar-
stopp
c) Veit líknandi meðferð
d) Sýklalyf takmörkuð ef hann fengi sýk-
ingu
2. Jóhanna er 76 ára gömul kona með langt
genginn hjartasjúkdóm. Hún hefur nú verið
rúmliggjandi í tvo mánuði vegna hjartabilunar
og brjóstverkja í hvíld. Hún er á fullri lyfja-
meðferð. Hún hefur ítrekað lýst því yfir bæði
við ættingja og heilbrigðisstarfsfólk að hún sé
þreytt á að vera upp á aðra komin og vilji
deyja. Hún hefur oft óskað eftir því að starfs-
fólk deildarinnar stytti henni aldur. Að mati
geðlæknis er hún ekki þunglynd. Hvað leggur
þú til að verði gert?
a) Haldið áfram fullri meðferð og reynd
endurlífgun ef hún fer í hjartastopp
b) Haldið áfram fullri meðferð en ekki
reynd endurlífgun ef hún fer í hjartastopp
c) Veitt líknandi meðferð
d) Gefinn einn mjög stór skammtur af mor-
fíni
3. Magnús er 74 ára gamall. Hann hefur verið
heilabilaður í þrjú ár. Hann er órólegur og
hreyfifærni hans er skert. Hann stjórnar ekki
þvaglátum og þarf aðstoð við að matast. Magn-
ús á fjölskyldu sem lætur sér annt um hann og
heimsækir hann daglega. Magnús greinist nú
með lungnabólgu. Hvað leggur þú til að verði
gert?
a) Magnúsi verði gefin sýklalyf án samráðs
við fjölskyldu hans
b) Veitt líknandi meðferð án samráðs við
fjölskyldu hans
c) Leitað upplýsinga hjá fjölskyldunni um
fyrri óskir Magnúsar. Hafi hann lýst yfir
vilja sínum varðandi meðferð við lífslok
ætti að virða þann vilja hver sem hann
væri
d) Leitað eftir vilja fjölskyldu Magnúsar og
ákvörðun hennar virt skilyrðislaust