Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 55

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 55
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 125 Greiðslukort, VISA - EURO Skrifstofa Læknafélags íslands hefur gert samstarfssamninga við VISA ísland og EUROCARDá íslandi um innheimturárgjaldaog iðgjaldafyrir hóptryggingu. Handhafar greiðslukorta frá fyrirtækjunum eiga þess kost að gera sérstakan samning við LÍ um greiðslur ofannefndra gjalda. Jafnframt verður eftirleiðis hægt að inna allar greiðslur til LÍ af hendi með greiðslukortum. PÞ Námskeið í ortópedískri medisín að Reykjalundi dagana 24.-26. apríl Lendhryggur og mjöðm Námskeið í ortópedískri medisín verður haldið að Reykjalundi dagana 24.-26. apríl næstkomandi. Er þetta annað í röð fjögurra slíkra námskeiða, en hið fyrsta var haldið í september síðastliðnum og var þá fjallað um öxl og brjósthrygg. Námskeiðin eru fyrst og fremst hugsuð sem framhaldsnámskeið fyrir þá sem lokið hafa grunnnámskeiði í grein- ingu, en þó er gert ráð fyrir að hægt sé að ná tilætlaðri grunnþekkingu með heimavinnu. Þá mun og verða rifjuð upp greining á námskeiðunum, en aðaláhersla lögð á meðferð. Aðalkennari er Bernt Ersson, læknir í Gávle íSvíþjóð, en hann hefur nýlega gefið út fjórar kennslubækur í faginu (Grunnlággande ortopedisk medisin.). Á þessu námskeiði verður farið í greiningu og meðferð vandamála í lendhrygg og mjöðm. Eftirtalin námskeið eru síðan fyrirhuguð: Þriðja námskeið - hálshryggur og hnakki. Fjórða námskeið - útlimir. Er reiknað með að þriðja námskeiðið verði haldið síðsumars 1997. Kennt verður á ensku eða sænsku eftir þörfum. Námskeiðin eru ætluð læknum og sjúkraþjálfurum en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og gert ráð fyrir að þeir sem fyrstir sækja gangi fyrir. Upplýsingar um námskeiðin gefa Magnús Ólason, læknir á Reykjalundi (s. 566 6200) og Óskar Reykdalsson, læknir á Heilsugæslustöðinni á Selfossi (s. 482 1300).

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.