Læknablaðið - 15.02.1997, Blaðsíða 28
100
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Viðauki
Spurningalistinn Viðhorfskönnun meðal lœkna og hjúkrunarfrœðinga um takmörkun með-
ferðar við lífslok:
Skilgreiningar
Ákvörðunarhœfur sjúklingur: Einstaklingur
sem hefur óskerta getu til að taka ákvarðanir
og tjá vilja sinn.
Full meðferð: Full meðferð er öll meðferð sem
unnt er að veita, þar með talin endurlífgun.
Full meðferð að endurlífgun: Öll meðferð sem
unnt er að veita að endurlífgun frátalinni.
Líknandi meðferð: Líknandi meðferð er veitt
þegar sýnt þykir að áframhaldandi meðferð
læknar sjúkling ekki og lengir ekki virkt líf,
heldur framlengir aðeins þjáningar og óhjá-
kvæmilega banalegu. Líknandi meðferð er
einkennameðferð, sem miðar að því að draga
úr einkennum án þess að slæva sjúkling um of,
sé þess nokkur kostur.
Spurningar
1. Hvaða þættir eiga að ráða þegar tekin er
ákvörðun um takmörkun meðferðar við lífs-
lok? (Raðið í röð frá 1-11, nr. 1 mikilvægast, nr.
11 léttvægast).
Kostnaður við meðferð
Aldur sjúklings
Eðli sjúkdóms
Óskir sjúklings
Óskir fjölskyldu sjúklings
Lífsgæði sjúklings
Þjáningar sjúklings vegna meðferðar
Líkamleg færni sjúklings
Framlag sjúklings til samfélagsins
Líkur á að meðferð gagnist sjúklingi
Annað. Hvað?
2. Telur þú æskilegt að innan spítala séu til
skráðar leiðbeiningar um takmörkun meðferð-
ar við lífslok (já/nei)?
3. Þeir sem völdu já í spurningu nr. 2 svari
eftirfarandi: Af hverju telur þú æskilegt að til
séu skráðar leiðbeiningar um takmörkun með-
ferðar við lífslok?
a) Það stuðlar að virðingu fyrir sjálfræði
sjúklings
b) Það stuðlar að meira samráði milli fag-
fólks
c) Það stuðlar að samráði við aðstandendur
d) Það dregur úr ábyrgð læknis á meðferð-
inni
e) Annað. Hvað?
Þeir sem völdu nei í spurningu nr. 2 svari eftir-
farandi: Af hverju telur þú ekki æskilegt að til
séu skráðar leiðbeiningar um takmörkun með-
ferðar við lífslok?
a) Það er aldrei réttlætanlegt að takmarka
meðferð og því engin þörf á slíkum leið-
beiningum
b) Slíkar leiðbeiningar kunna að hvetja um
of til þess að takmörkun meðferðar sé
beitt
c) Læknir einn á að ákveða hvað skal gera
hverju sinni
d) Siðareglur heilbrigðisstétta nægja
e) Annað. Hvað?
4. Hvert á að vísa ágreiningi innan heilbrigðis-
stétta um takmörkun á meðferð við lífslok?
a) Landlæknisembættisins
b) Siðanefnda lækna innan spítalans
c) Siðanefnda hjúkrunarfræðinga innan
spítalans
d) Þverfaglegrar siðanefndar innan spítal-
ans
e) Dómstóla
f) Annað. Hvert?
5. Hvert á að vísa ágreiningi milli heilbrigðis-
stétta og skjólstæðinga um takmörkun á með-
ferð við lífslok?
a) Landlæknisembættisins
b) Siðanefnda lækna innan spítalans
c) Siðanefnda hjúkrunarfræðinga innan
spítalans
d) Þverfaglegrar siðanefndar innan spítal-
ans
e) Dómstóla
f) Annað. Hvert?