Læknablaðið - 15.02.1997, Page 55
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
125
Greiðslukort,
VISA - EURO
Skrifstofa Læknafélags íslands hefur gert samstarfssamninga við VISA ísland
og EUROCARDá íslandi um innheimturárgjaldaog iðgjaldafyrir hóptryggingu.
Handhafar greiðslukorta frá fyrirtækjunum eiga þess kost að gera sérstakan
samning við LÍ um greiðslur ofannefndra gjalda.
Jafnframt verður eftirleiðis hægt að inna allar greiðslur til LÍ af hendi með
greiðslukortum.
PÞ
Námskeið í ortópedískri medisín að
Reykjalundi dagana 24.-26. apríl
Lendhryggur og mjöðm
Námskeið í ortópedískri medisín verður haldið að Reykjalundi dagana 24.-26. apríl
næstkomandi. Er þetta annað í röð fjögurra slíkra námskeiða, en hið fyrsta var haldið í
september síðastliðnum og var þá fjallað um öxl og brjósthrygg. Námskeiðin eru fyrst og
fremst hugsuð sem framhaldsnámskeið fyrir þá sem lokið hafa grunnnámskeiði í grein-
ingu, en þó er gert ráð fyrir að hægt sé að ná tilætlaðri grunnþekkingu með heimavinnu.
Þá mun og verða rifjuð upp greining á námskeiðunum, en aðaláhersla lögð á meðferð.
Aðalkennari er Bernt Ersson, læknir í Gávle íSvíþjóð, en hann hefur nýlega gefið út fjórar
kennslubækur í faginu (Grunnlággande ortopedisk medisin.).
Á þessu námskeiði verður farið í greiningu og meðferð vandamála í lendhrygg og
mjöðm.
Eftirtalin námskeið eru síðan fyrirhuguð:
Þriðja námskeið - hálshryggur og hnakki.
Fjórða námskeið - útlimir.
Er reiknað með að þriðja námskeiðið verði haldið síðsumars 1997.
Kennt verður á ensku eða sænsku eftir þörfum. Námskeiðin eru ætluð læknum og
sjúkraþjálfurum en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og gert ráð fyrir að þeir sem
fyrstir sækja gangi fyrir.
Upplýsingar um námskeiðin gefa Magnús Ólason, læknir á Reykjalundi (s. 566 6200) og
Óskar Reykdalsson, læknir á Heilsugæslustöðinni á Selfossi (s. 482 1300).