Læknablaðið - 15.02.1997, Side 24
96
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
stæða á við um hvort undir einhverjum kring-
umstæðum sé réttlætanlegt að deyða slíkan
sjúkling, æski hann þess. Lítið brot svarenda
var því sammála, fimm læknar og 11 hjúkrunar-
fræðingar, en 13% allra voru óvissir. Þegar
spurt var hvort svarendur myndu verða við
slíkri ósk svöruðu aðeins 2% eða fjórir ein-
staklingar játandi, 13% voru óvissir. Þessi nið-
urstaða er í samræmi við svörin við sjúkrasögu
2 í viðauka.
Spurningar 8, 9 og 10 komu inn á samskipti
heilbrigðisstétta og eru niðurstöðurnar sýndar
á myndum 3-5. Fleiri læknar en hjúkrunar-
fræðingar telja sig eiga auðvelt með að ræða
takmörkun meðferðar við sjúklinga og er mun-
urinn marktækur. Marktækur munur er einnig
á afstöðu lækna eftir spítölum með tilliti til
samráðs við sjúklinga; 77% lækna á Borgar-
spítala segjast alltaf hafa slíkt samráð en 48%
lækna á Landspítalanum. Læknar telja sig
alltaf eða oft hafa samráð við hjúkrunarfræð-
inga við slíka ákvörðun eða í 78% tilvika en
59% hjúkrunarfræðinga telja lækna sjaldan
eða aldrei hafa samráð við hjúkrunarfræðinga.
Spurning 11 varðaði afstöðu til kostnaðar og
takmörkunar á meðferð. Marktækt fleiri lækn-
ar (35%) en hjúkrunarfræðingar (15%) töldu
að kostnaður skyldi ráða einhverju um ákvarð-
anir, 14% lækna voru óvissir og 21% hjúkrun-
arfræðinga.
Gefnar voru þrjár sjúkrasögur og voru svar-
endur beðnir að taka afstöðu til þátta er snertu
hvert tilfelli um sig. Fyrsta sjúkrasagan var um
karlmann með ólæknandi krabbamein, sem
óskaði sjálfur eftir fullri meðferð og endurlífg-
un (tafla IV). Langflestir lögðu til að vilji hans
yrði virtur. Athyglivert er að 30% lækna og
44% hjúkrunarfræðinga töldu líknandi með-
ferð koma til greina þrátt fyrir óskir sjúklings-
ins og um þriðjungur var tilbúinn að veita fulla
meðferð að endurlífgun.
í annarri sjúkrasögunni er gömul hjartveik
kona. Hún er rúmliggjandi og óskar eftir að fá
að deyja (tafla V). Einungis 56% lækna og
66% hjúkrunarfræðinga töldu líknandi með-
ferð viðeigandi enda þótt konan óskaði þess.
Enginn læknir taldi koma til greina að gefa
konunni einn mjög stóran skammt af morfíni
en það gerðu 14% hjúkrunarfræðinga.
Síðasta sjúkrasagan fjallar um gamlan heila-
bilaðan mann. Hann á ástríka fjölskyldu. Hann
greinist nú með lungnabólgu (tafla VI). Mark-
tækur munur reyndist vera á afstöðu lækna og
Nurses
IE3 32%l 53% 19% |
0% 20% 40% Physicians 1 60% 1 1 80% 100%
20% 28%
-1 1 1 0% 20% 40% 1 60% —I 1 80% 100%
■ At ease ■ Rather □ Uncomfortable at ease □ Very uncomfortable
Fig. 3. Results from question 8: Are you comfortable with
discussing limitation of treatment at the end of life with pat-
ients andlor relatives? 109 physicians and 122 nurses respond-
ed to this question.
| DAIways BOften
National University Hospital
□ Seldom ■ Never |
Fig. 4. Results from question 9b, physicians only: Do you as a
physician consult the patient and/or thefamily when deciding
on limitation of treatment at tlte end of life? 104 physicians
responded to tliis question.
Fig. 5. Results from question 9a, physicians only: Do you as a
physician consult nurses when deciding on limitation of treat-
ment at tlie end of life? 104 pliysicians responded to this
question and question 10, nurses only: Do you as a nursefeel
that physicians consult nurses when deciding on limitation of
treatment at tlie end of life? 117 nurses responded to this
question.