Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 34

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 34
106 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 verður vart skömmu eftir fæðingu í 85-90% tilfella og versna iðulega hratt (4). Þau eru langoftast vegna hjartabilunar og blóðþurrðar í hjartavöðvanum. Hvort tveggja er sjaldséð hjá ungbörnum og getur greining því vafist fyrir. Óútskýrð mæði, hjartsláttartruflanir og van- þrif geta einnig verið fyrstu einkenni. Önnur börn greinast fyrir tilviljun við ungbarnaeftirlit vegna hjartaóhljóðs sem yfirleitt stafar af mít- urlokuleka vegna stækkunar á vinstri slegli (4). Rannsóknir sýna að allt að 95% barna deyja innan eins árs sé aðgerð ekki framkvæmd (4). Engu að síður er þessi meðfæddi hjartagalli þekktur hjá fullorðnum, til dæmis lýsti Har- thorne 28 tilfellum árið 1966 (5). Purut og Sab- iston fundu sjö sjúklinga sem greindust eftir fimmtugt og lýstu jafnframt elsta sjúklingnum sem vitað er um að hafi greinst með þennan sjúkdóm en það var 61 árs gömul kona (6). Skyndidauði og hjartadrep er algengt í þessum hópi sjúklinga (5,7) en hjartabilunareinkenni, brjóstverkir og hjartsláttartruflanir eru einnig vel þekkt (4,8). Lítið hefur verið skrifað um sjúkdóminn hjá unglingum (9) en þó hefur verið lýst tilfelli þar sem 13 ára stúlka með hjartsláttaróreglu greindist með sjúkdóminn (10). í okkar tilfelli var um unglingspilt að ræða, sem greindist fyrir tilviljun. Hann hafði fengið drep í framvegg hjartans vegna ónógs blóð- þrýstings í kransæðunum. Sennilega hefur drepið átt sér stað fljótlega eftir fæðingu. Gúll- inn á vinstri slegli var afleiðing drepsins og örið eftir hjartadrepið hafði tognað með árunum. Meðferð þessa sjúkdóms felst í skurðaðgerð og hafa ýmsar mismunandi aðgerðir verið reyndar en aldur og ástand sjúklingsins ráða nokkru um það hvaða aðgerð verður fyrir val- inu (11,12). Með framförum í hjartaskurðlækn- ingum síðustu tvo áratugina, greiningu hjarta- galla og eftirmeðferð, hefur árangur aðgerða við þessum sjúkdómi batnað verulega. Helstu aðgerðirnar eru: 1) Hnýtt fyrir upptök vinstri kransœðar. Þannig er komið í veg fyrir stuld (steal effect) á súrefnisríku blóði frá kransæðum yfir í bláæða- blóð lungnaslagæðarinnar. Með þessu móti er þrýstingur aukinn í kransæðakerfinu og þar með blóðflæði til hjartavöðvans. Aðgerðin er einföld í framkvæmd og var töluvert beitt áður en flóknari aðgerðir komu til sögunnar. Lang- tímaárangur hefur reynst óviðunandi, sérstak- lega vegna hárrar tíðni skyndidauða (9). Auk þess er æskilegt að sjúklingur hafi að minnsta kosti tveggja æða kransæðakerfi (13) ekki síst með tilliti til æðakölkunar síðar á ævinni. Á hinn bóginn er um einfalda aðgerð að ræða sem nýst getur mikið veikum börnum sem ekki þola viðamikla aðgerð (11). 2) Tenging arteria subclavia sin. við vinstri kransœð (14). Þessi aðgerð er framkvæmanleg án hjarta-lungnavélar, en stíflur hafa verið tíð- ar við samop (anastomosis) æðanna (15) og er aðferðinni því ekki beitt í dag (16). 3) Kransœða-hjáveita með bláœðagrœðling- um eða brjóstholsslagæð. Fyrir tæpum þremur áratugum tókst fyrsta hjáveituaðgerðin hjá sjúklingi með meðfædd upptök vinstri krans- æðar frá lungnaslagæð (17). Aðgerðin hefur síðan verið mikið notuð. Hjá ungum börnum þykir hún tæknilega erfið og stíflur í bláæða- græðlingum algengar (18). Hjáveituaðgerð hefur því fyrst og fremst verið beitt hjá full- orðnum (9). 4) Flutningur á vinstri kransœð frá megin- lungnaslagœð yfir á ósœð. Enda þótt góðum árangri hafi verið lýst við þessa aðgerð (11,19) hefur hún ekki náð útbreiðslu. Reynst hefur erfitt að fá nógu langan frían enda á vinstri kransæðinni til að ná að tengja við ósæðina auk þess sem dánarhlutfall við aðgerð hjá mjög ungum börnum hefur verið talið hærra en þegar öðrum aðferðum er beitt. í nýlegri franskri rannsókn er árangur þó ágætur með þessari aðferð (dánarhlutfall 16%) og telja höf- undar hana tæknilega vel framkvæmanlega (20). 5) Gangaaðgerð (tunnel plastic) þar sem komið er á blóðflœði milli ósæðar og opsins á vinstri kransœð í meginlungnaslagæð. Þessari nýstárlegu aðgerð var fyrst lýst 1979 af Tak- euchi og félögum við Keio háskólasjúkrahúsið í Tokíó (21) og hefur hún síðan verið að festast í sessi. í stuttu máli er flipi úr framvegg lungnaslagæðarinnar saumaður fastur við bak- vegg hennar og þannig útbúin göng á milli vinstri kransæðar og ósæðar í gegnum lungnaslagæðina (mynd 2). Aðgerðin hefur bæði verið framkvæmd á börnum og fullorðn- um með góðum árangri. Meðal annars hefur verið sýnt fram á lágt dánarhlutfall í aðgerð og rétt eftir hana og stíflur í göngunum eru fátíðar (22,23). Af þessum sökum er gangaaðgerðin notuð í vaxandi mæli sérstaklega hjá börnum. í dag er ekki hægt að fullyrða um það hvaða aðgerð sé best. Samanburður á aðgerðum er

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.