Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 36

Læknablaðið - 15.02.1997, Page 36
Or^anon Ungar konur vilja gjarnan lifa öruggu kynlífi án þess að það hafi hættu á þungun í för með sér. Margar konur velja því p-pilluna sem getnaðarvörn. Ungar konur vilja einnig hafa möguleika á að segja nei við meira hormónamagni en nauðsynlegt er. Þess vegna velja stöðugt fleiri læknar þá p-pillu sem inni- heldur minnsta virka magn af östrógeni:" Mercilon. í/íu/t á e/i/íf tffi/ff /ti ef'/'íf ö,s f/'f/ae/f e/i /f t/f/f/sfy/t /i'í/f e/* Mercilon inniheldur aðeins 20 pg etinýlestradiól samanborið við 30 pg innihald forveranna, en við lang- tímameðferð bíður hún upp á sama öryggi og stjórnun á tíðahring. Það er vegna hins virka efnisins, desógestrel, sem er afar sérhæft gestagen með öfluga verkun gegn egglosi." Því er hið litla magn östrógensins nægjanlegt. Samt sem áður taka margar ungar konur 50% meira östrógen daglega en þörf er á. Flestar þeirra vita það bara ekki - ennþá. WUAdJksh 20 pg ethinýlestradíól og 150 pg desógestrel er nægjanlegt. Mercilon Organon, 880091 TÖFLUR: G 03 A A 09 R 0 Hver tafla inniheldur: Desogestrelum INN 0,15 mg, Ethinylestradiolum INN 20 míkróg. Eiginleikar: Blanda af östrógeni og gestageni í litlum skömmtum. Við langtímameðferð veitir lyfið jafngóða getnaðarvörn og þegar stærri hormóna- skammtar eru notaðir. Desógestrel hefur gesta- genverkun, en hefur jafnframt minni andrógen- verkun en flest skyld lyf. Lyfið kemur í veg fyrir getnaö með því að hindra egglos, hindra festingu eggs við legslímhúð og breýta eiginleikum slíms i leghálsopi. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frá- bendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartil- hneigingu blóðs, á ekki að gefa það konum með æðabólgur i fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykur- sýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanlr af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Auka- verkanir: Vægar: Bólur (acne), húðþurrkur, þjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, mígreni þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvartegar. Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás i bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tiðateppa í pilluhvíld. Varúð: Konum, sem reykja, er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna, en öðrum. Milli- verkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífamþicín geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á 1. degi tíðablæðinga, og er þá tekin ein tafla á dag ( 21 dag samfleytt á sama tima sólarhringsins. Síðan er 7 daga hló, áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður. Pakkningar og verð: 21 stk. x 3 (þynnupakkað); Verð í janúar 1996: 2091 Skráning lyfsins er bundin þvf skilyrði, að leiðarvísir á íslenzku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og var- naðarorð. Heimildir: Sérlyfjaskrá 1996 2) Berg, M. op ten,: Desogestrel: using a selec- tive progestogen in a combined oral contracep- tive. Advances in Contraception 7 (1991) 241- .250. Nánari uppiýsingar er hægt að fá hjá Pharmaco hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 565-8111. Jö. Pharmaco

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.