Læknablaðið - 15.02.1997, Page 42
114
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Table VI. The influence of juxtapapillary diverticula on the incidence of complications following ERCP.
No of ERCP No of ERCP
on patients on patients
with diverticulum without diverticulum
n=83 (%) n=496 (%) p-value
Complications: - after diagnostic ERCP 5 (6.0) 14 (2.8) 0.13*
- after therapeutic ERCP 4 (4.8) 18 (3.6) 0.60*
Total 9 (10.8) 32 (6.5) 0.15*
* Not significant
Tíðnin á poka við skeifugarnartotu var 14,5%,
en gefin er upp 10-15% tíðni (11). í heildina
tókst þræðing á hringvöðva síður hjá sjúkling-
um með poka við skeifugarnartotu en hinum er
höfðu hann ekki (tafla II). Getur reynst örðugt
að finna og þræða skeifugarnartotuna ef hún er
staðsett inni í pokanum.
Tíðni aukaverkana var hærri hjá sjúklingum
með poka (tafla VI) þó ekki sé munurinn
marktækur. Poki við skeifugarnartotu getur
hindrað gallflæði og lýst hefur verið aukinni
tíðni steina í gallpípu (ductus choledochus) hjá
þessum sjúklingum (12). í þessari rannsókn
fékkst sama niðurstaða (tafla II) þó munurinn
sé ekki tölfæðilega marktækur.
Sjaldgæf ástæða stíflugulu er Mirizzi heil-
kenni. Hér lokast lifrargallgangurinn (ductus
hepaticus communis) vegna þrýstings frá steini
í gallblöðruhálsi eða gallblöðrugangi (ductus
cysticus). Eitt tilfelli fannst sem gefur 0,2%
tíðni. Tíðninni er lýst 0,5% (13). Mögulegt að
þetta hafi verið vangreint, en mikilvægt er fyrir
skurðlækninn að vita af þessu fari sjúklingur í
aðgerð.
Krufningarrannsóknir hafa sýnt að aftari og
fremri hluti briskirtils hafa tvo aðskilda út-
færsluganga inn í skeifugörn hjá 4-14% (14).
Þetta kallast klofið bris og er talið valda óljós-
um kviðverkjum og jafnvel brisbólgu (14). í
uppgjörum holsjárröntgenmynda af gallvegum
og brisgangi hefur tíðninni verið lýst 1,3-6,7%
(14) og reyndist í þessari rannsókn 1,6%, fimm
fundust í þeim 317 rannsóknum þar sem bris-
gangur var fylltur.
Hringvöðvaskurður tókst í 86,1% tilrauna
sem er sambærilegt við 87% árangur sem lýst
hefur verið í Bretlandi (15). Úrdráttur á gall-
steinum tókst með vissu í 66,2% tilrauna en
vænta má fullkomins árangurs í 85-90% (16).
Astæða þessa fremur slaka árangurs gæti
verið skortur á réttum tækjum. Af þeim 29
tilraunum til aðgerða er mistókust voru fjórar
(þrjár stentísetningar og ein útvíkkun) reyndar
á sama sjúklingi, 38 ára karlmanni með gall-
gangakrabbamein.
Tíðni aukaverkana eftir holsjárröntgen-
myndun af gallvegum og brisgangi er mismun-
andi eftir rannsóknum. Heildartíðnin í þessu
uppgjöri, 7%, er áþekk því sem lýst er í sam-
bærilegum rannsóknum, 6% (4) og 7% (17).
Eftir rannsókn án aðgerðar var tíðnin 4,6% en
lýst er 3-4% tíðni (6,18,19) og eftir aðgerðir
14,1% en lýst er frá 7-13% (19,20).
Brisbólga er algengasti fylgikvillinn, kemur
fyrir í 1-5% allra rannsókna (21). Ástæður bris-
bólgu eru taldar vera bólga í skeifugarnartotu,
bæði vegna sköddunar í þræðingu og eftir
hringvöðvaskurð. Pá er aukin hætta á bris-
bólgu ef skuggaefni er sprautað undir of mikl-
um þrýstingi, eða of mikið skuggaefni er not-
að, ef sprautur eru endurteknar oft og spraut-
að er í gang sem hefur þrengsli og tæmir sig illa.
Tíðni brisbólgu var í 4,7% allra rannsókna sem
er áþekk tíðni og í nýlegum uppgjörum, 3,7%
(22) og 4,3% (4). í helmingi tilfella jafnar
sjúklingurinn sig á nokkrum dögum (22,23)
sem er sama niðurstaða og í þessari rannsókn
(mynd 2). Alvarleg bólga kom fyrir hjá sex
sjúklingum eða í 1% allra rannsókna. Athygli
vekur að í einu tilfelli kom svæsin bólga í kjöl-
far rannsóknar þar sem hvorki var framkvæmd
aðgerð né sprautað skuggaefni í brisgang.
Ástæðan hér telst erting og bólga í skeifugarn-
artotu eftir þræðinguna. Væg, einkennalaus
hækkun á amýlasa sermi kemur fyrir í yfir
helmingi tilvika ef sprautað er í brisgang
(24,25) og getur jafnvel hækkað eftir venjulega
magaspeglun (26). Amýlasi var þannig ekki
mældur nema klínískur grunur væri um bris-
bólgu.
Gallvegasýking er alvarleg aukaverkun eftir
holsjárröntgenmyndun af gallvegum og bris-
gangi og er tíðninni lýst 0,8-2,5% (18,27). Tólf
sjúklingar (1,9%) fengu gallvegasýkingu og
læknuðust allir fullkomlega með sýklalyfjum.
Tíðni alvarlegra blæðinga var mjög lág eða í