Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.1997, Qupperneq 48

Læknablaðið - 15.02.1997, Qupperneq 48
120 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Eru heimilislæknar annars flokks hópur í samfélagi lækna? Heimilislæknar hafa ítrekað bent á þá staðreynd að meiri- hlutinn í stjórn Læknafélags ís- lands (LI) hafi árum saman hundsað hagsmuni heimilis- lækna og haldið á lofti málstað sérgreinalækna, þegar málefni þessara hópa skarast. Þessa staðreynd var síðast bent á af Stefáni Þórarinssyni lækni á Eg- ilsstöðum í ágætri grein í Læknablaðinu í desember síð- astliðnum. Flestir heimilislækn- ar telja að mælirinn sé löngu fullur, enda hafi lýðræðið í LI þannig verið fótumtroðið um langt skeið og minnihlutinn í fé- laginu kúgaður. Það sem varð til þess að ég ákvað að skrifa grein í blaðið að þessu sinni eru tvö atriði í jan- úarhefti Læknablaðsins, sem sýna ljóslega stöðu heimilis- lækna innan LÍ. Hið fyrra er auglýsing um fræðsluviku 20.- 24. janúar síðastliðinn. Greini- legt er að mörg athyglisverð efni verða rædd og margt ágætisfólk verður þarna með fyrirlestra, en mig rak þó í rogastans, þegar ég gerði mér grein fyrir því að af rúmlega 80 fyrirlesurum er eng- inn heimilislæknir - nei ekki alveg rétt, einn heimilislæknir er nefndur sem fyrirlesari núm- er tvö um eitt efni. Af fundar- stjórum eru tveir heimilislækn- ar. Hvernig má slíkt vera? Heimilislækningar eru fjöl- mennasta sérgreinin innan læknisfræðinnar. Félag ís- lenskra heimilislækna (FIH) hefur haft mjög öflugt fræðslu- og umbótastarf innan sinna vé- banda árum saman, sem vakið hefur mikla athygli og hlotið hrós forystumanna læknasam- takanna, í það minnsta á hátíð- is- og tyllidögum. FÍH hélt ný- lega þriðja vísindaþing sitt norður á Akureyri, sem sýndi mikla grósku varðandi fræða- og vísindastarf heimilislækna. Þrátt fyrir þessar staðreyndir þykir ekki ástæða að kalla heim- ilislækna til fyrirlestrahalds í fræðsluviku lækna á Islandi. Nú kann einhver að segja að þetta hljóti að vera mistök. Því miður er svo ekki því nákvæmlega það sama var upp á teningnum þegar slík fræðsluvika var hald- in fyrir ári síðan. Þannig að það er ekki tilviljun að svo er haldið á málum. Hitt atriðið, sem ég rak aug- un í í Læknablaðinu var yfirlit yfir ritrýna blaðsins. Ég skrifaði lítinn pistil í blaðið í desember 1994, sem í raun var fyrirspurn til ritstjórnar, þar sem ég vakti athygli á þeirri staðreynd að af 105 ritrýnum á ákveðnu árabili, væru einungis þrír heimilislækn- ar. Svarið sem kom var aumk- unarvert og því miður ekkert á því að græða. En viti menn, á miðju ári 1996 var undirritaður beðinn um að ritrýna grein í blaðinu. Ég ákvað að taka vel þessari beiðni blaðsins og rit- rýndi greinina, enda var verið að biðja heimilislækni um rit- rýni og vildi ég auðvitað gera mitt til að auka hlut þeirra á þessu sviði. Vonbrigði mín urðu því mikil, þegar í ljós kom í yfir- litinu að ástandið hafði ekki batnað, því af 89 ritrýnum frá 1993 voru þrír heimilislæknar, þar af einn úr ritstjórn Lækna- blaðsins. Því miður er útbreiddur sá misskilningur meðal sérgreina- lækna að heimilislækningar sem sérgrein hafi yfirhöfuð ekkert merkilegt fram að færa enda séu heimilislækningar summan af eða samsuða úr helstu sérgrein- um læknisfræðinnar og þekking heimilislækna því hraðsoðin og lítil. Þessi skilgreining er fjarri lagi. Heimilislækningar eru sér fræðigrein, sem byggir á eigin hugmyndafræði og reynslu- heimi. Efniviður til rannsókna er sóttur til frumþjónustunnar og byggir því á traustum grunni. Afrakstur af slíku rannsóknar- og fræðastarfi kemur öllum læknum til góða á sama hátt og rannsóknir innan annarra sér- greina eru okkur heimilislækn- um nauðsynlegar. Við viljum hins vegar réttilega að til okkar sé leitað á jafnréttisgrundvelli, þegar haldin er fræðsluvika fyrir alla lækna eða varðandi ritrýni, sem nefnt var hér á undan. Ég hef verið þeirrar skoðunar nú um nokkurt skeið að heimil- islæknar hefðu lítið að gera í LI. Félagið er sérhagsmunafélag sérgreinalækna og heimilis- læknar eru þar undirmálsfólk. En það er hægara sagt en gert að koma sér úr félaginu. Heimilis- læknar létu lögfræðing kanna fyrir sig möguleikana á að stofna nýtt stéttarfélag ef við gengjum úr LI, en niðurstaða hans var að samkvæmt íslensk- um lögum væri það ekki hægt. Læknar skuli allir vera í sama stéttarfélagi. Til að gera heimil- islæknum kleift að vera í eigin stéttarfélagi þarf að breyta ís- lenskum lögum. Ég hafði síðan samband við framkvæmda- stjóra LÍ og spurði hvað mundi gerast með mín réttindi ef ég segði mig úr LI. Þá var mér sagt að eftir sem áður yrði fullt ár- gjald tekið af mér, þó ég væri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.