Læknablaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 24
302
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Leiðrétting á ágripi frá þingi
Skurðlæknafélags íslands
í síðasta tölublaði Læknablaðsins voru birt
ágrip erinda og veggspjalda sem flutt voru á
þingi Skurðlæknafélags íslands dagana 11. og
12. apríl að Scandic Hótel Loftleiðunr.
Meðal ágripa birtist það sem hér fer á eftir,
var það merkt E-7. Því miður urðu alvarleg
mistök við birtingu ágripsins þar sem epidural
var þýtt sem innanbasts í stað utanbasts. Rétta
þýðingu hugtaksins má hins vegar sjá í öðru
ágripi sömu höfunda, E-10. Agripið er endur-
birt hér, leiðrétt. Mögulegar tilvitnanir skulu
vera í leiðrétta útgáfu. Höfundar og lesendur
eru beðnir velvirðingar á mistökunum.
E-7. Þriggja lyfja svæðisbundin
utanbastsverkjameðferð eftir aðgerðir.
Aðferðarfræði og gæðaeftirlit
Gísli Vigfússon, Oddur Fjalldal, Þorsteinn .SV.
Stefánsson
Frá svœfingadeild Landspítalans
Inngangur: Mikilvægi bættrar verkjameð-
ferðarþjónustu eftir aðgerðir hefur orðið ljós-
ari með bættri menntun heilbrigðisstarfsfólks.
Aukin þekking á tilurð og eðli verkja kallar á
nýjar aðferðir og endurmat gamalla leiða til
bættrar verkjameðferðar. Á síðustu árum hef-
ur ný aðferð við utanbasts- (epidural) verkja-
meðferð rutt sér til rúms. Hún byggir á bættri
þekkingu á lyfjafræði verkjalyfja og verkunar-
mynstri þeirra í líkamanum. í árslok 1995 var
hafinn undirbúningur á svæfingadeild Land-
spítalans að því að bæta árangur verkjameð-
ferðar eftir aðgerðir með þriggja lyfja svæðis-
bundinni (segmental) utanbastsverkjameð-
ferð. Meðferð þessi kallaði á fræðslu, sam-
vinnu og gæðaeftirlit á deildum.
Aðferð: Hjúkrunarstarfsfólki og læknum á
handlækningadeildum spítalans var kynnt hin
væntanlega verkjameðferð. Kynntar voru regl-
ur við meðferð verkja eftir aðgerð með utan-
bastssídreypi og parasetamóli og áhætta sam-
fara utanbastsverkjameðferð, verkun og auka-
verkun lyfjanna. Kennd var greining og með-
höndlun aukaverkana utanbastsdeyfinga.
Haldið var námskeið í notkun sérstakra verkja-
dæla. Haft var samráð við lyfjafræðinga spítal-
ans um lyfjaíblöndun og sérfræðinga sýkla-
deilda um fyrningartíma lyfjablöndunnar.
Lögð var sérstök áhersla á eftirlit og skrán-
ingu. Hverjum sjúklingi fylgdi á deild sérstakt
eftirlitsblað, þar sem skráð voru á fjögurra
klukkustunda fresti lífsmörk sjúklings, fylgi-
kvillar, lyfjagjafir, hreyfimat og verkjamat í
hvfld og hreyfingu. Hjúkrunarfræðingar fengu
kennslu í verkjamati samkvæmt VAS skema.
Svæfingalæknir á vakt fylgdi meðferðinni eftir,
heimsótti sjúklinga tvisvar á sólarhring og var
tengiliður við starfsfólk legudeilda.
Ályktanir: Eins árs reynsla af þriggja lyfja
utanbastsverkjameðferð og parasetamóls eftir
aðgerðir sýnir verulega bættan árangur verkja-
meðferðar á deildum svo og bætta andlega og
líkamlega líðan sjúklinga. Samvinna svæfinga-
deildar og legudeilda hefur aukist og batnað.
Góð skráning og eftirlit auðveldar mat á ár-
angri og fylgikvillum og um leið reglulegt end-
urnrat á meðferðaráætlun til bættrar þjónustu.
Svæðisbundin utanbastsverkjameðferð er
áhrifarík aðferð til að minnka slæma verki eftir
aðgerðir. Aðferð þessi er þó ekki án áhættu,
sem getur jafnvel í einstökum tilfellum verið
lífshættuleg. Því er stöðug fræðsla heilbrigðis-
starfsfólks, gott eftirlit og skráning forsenda
góðs árangurs.