Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 48
498 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 lýsingar á þennan hátt. Það getur reynst erfitt að staðhæfa hvað það er sem samræmist siðferðiskennd íslensku þjóðarinnar. Islensk læknisfræði á tilveru sína því að þakka að kynslóð foreldra okkar leyfði læknum að taka upplýsingar af þessari gerð og nota þær til þess að kanna hvernig sjúkdómar verða til og hvernig þeir bregðast við meðferð. Okkar kynslóð hefur líka leyft þetta og íslensk læknisfræði getur ekki haldið áfram að þróast nema þetta verði leyft áfram vegna þess að sjúkdómarnir eru að breytast. Eini möguleikinn á að skilja nýja sjúkdóma er að halda áfram að þróa læknisfræðina. Ég er handviss um að hún hefur ekki og mun ekki þróast í óþökk íslensks samfélags og skoðanakannanir benda til þess að ég hafi rétt fyrir mér í því. Einkaleyfið er forsenda verksins Fjórða vandamálið sem nefnt hefur verið er einkaleyfið. Slíkt leyfi viljum við ekki sjá í kjörsamfélaginu en í okkar ófullkomna samfé- lagi hefur það reynst vera mikilvægt tæki í uppbyggingu atvinnuvega, til dæmis í greftri eftir dýrum málmum, olíuleit og þess háttar. Það er veitt þegar verið er að búa til verðmæti úr hráefni sem er dýrt og erfitt að ná saman. Sú atvinnugrein sem er í mestum vexti í heiminum um þessar mundir er sú sem byggð er á hug- myndum og hugverkum og hún reiðir sig að heita má eingöngu á virðingu fyrir frumkvöð- ulsrétti, höfundarrétti og einkaleyfi. Ef við ætl- um okkur að ná í okkar skerf af arðinum af þessari atvinnugrein verðum við að bera virð- ingu fyrir fyrirbærum eins og einkaleyfi. Það sem gerir einkaleyfið enn nauðsynlegra við gerð gagnagrunns heldur en við leit að olíu eða málmum er það eðli hans að eftir að búið er að gera þann fyrsta verður margfalt auðveldara og ódýrara að búa til þann næsta. Sá sem gerir fyrsta gagnagrunninn gæti aldrei keppt við aðra sem hefðu miklu lægri stofnkostnað. En einkaleyfið hefur ekkert vægi annað en það að vera leyfi til markaðssetningar ef gagnagrunnur á heilbrigðissviði er skilgreindur á þann hátt að það trufli ekki vinnu annarra vís- indamanna. Það er þar sem ég sé stærsta gall- ann á þessu frumvarpi. Það þarf að skilgreina gagnagrunninn, einkaleyfið og tengslin á milli þeirra á þann hátt að það valdi ekki truflun á vinnu annarra. Og þá á ég ekki bara við vinnu vísindamanna heldur einnig þeirra sem sinna þjónustu í læknisfræði." Skrárnar eru nýtanlegar - Sumir hafa dregið í efa þörfina fyrir svona lagasetningu. „Það eru tvær ástæður fyrir því að það þarf að setja lög. Önnur er sú að eftir setningu lag- anna um réttindi sjúklinga þá á enginn þessar upplýsingar. Til þess að ráðherra geti ráðstafað þeim þarf hún heimild í lögum. Hin ástæðan er einkaleyfið. Það má setja saman ýmsa gagnagrunna án þess að sett séu lög, en ég held því fram að ýmsir þeir sem eru að draga saman upplýsingar í gagnagrunna séu að gera það í andstöðu við lög. Ég tel að þessi lög séu mikilvæg til þess að búa til lagalegan ramma utan um þá löngun manna að búa til gagnagrunna sem ég held að menn eigi að hafa heimild til. Hugmyndin var eingöngu sú að koma í veg fyrir að erlendir viðskiptaaðilar gætu komist yfir þessar upplýsingar án þess að borga fyrir þær. Einkaleyfið er því lykill að þessari viðskiptahugmynd.“ - I umræðunum hefur komið fram að kostn- aður við gerð þessa gagnagrunns sé geysimik- ill, 10-12 milljarðar króna. Margir hafa véfengt þær tölur en á hverju er kostnaðaráætlun ykkar byg§ð? „Ég efast ekki um að það er hægt að setja saman alls konar gagnagrunna fyrir miklu minna fé. Aætlanir okkar byggjast á því að reikna út fjölda samskipta við íslenska heil- brigðiskerfið á síðustu 20 árum og áætla kostn- aðinn við að sannreyna þær upplýsingar sem í því eru. Við reiknuðum með stofnkostnaði við hugbúnað sem gerði okkur kleift að nota ekki bara tölulegar heldur einnig huglægar upplýs- ingar, settum inn í dæmið töluvert mikinn þró- unarkostnað við að byggja upp ráðgjafarþjón- ustu og markaðssetningu. Við leituðum til er- lendra ráðgjafarfyrirtækja sem töldu kostnað- inn verða töluvert hærri en 10-12 milljarða. Þeirra niðurstaða var um 20 milljarðar.“ - Nú eru skrárnar ófullkomnar og fullar af huglægu mati eins og þú nefndir, en eru þær upplýsingar sem í þeim eru þess virði að leggja í þennan mikla kostnað? „Auðvitað er stór hluti upplýsinganna þess eðlis að þær er ekki hægt að nýta, en það er niðurstaða okkar og ráðgjafa okkar að skrárnar séu nýtanlegar og að það eigi að nýta þær. Gildi gagnagrunnsins fyrir framtíðina byggist ekki eingöngu á því hvernig okkur gengur að sann- reyna gömlu upplýsingarnar. Stærsta gildi hans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.