Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 78

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 78
596 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Iðorðasafn lækna 102 Akathisia Ingvar Kristjánsson, geðlækn- ir, hringdi og bað um aðstoð við íslenskun á akathisia. Undirrit- aður kannaðist ekki við að hafa séð heitið eða heyrt af því áður og fann það hvorki í íðorðasafni lækna né í Islenskum læknis- fræðiheitum Guðmundar Hannes- sonar. Ingvar útskýrði hugtakið og staðfestingar fengust í öðrum læknisfræðiorðabókum. Heitið er notað um sérkennilegt eirðar- leysi sem getur komið fyrir sem aukaverkun við notkun tiltekinna sefandi geðlyfja, einkum fentía- sínlyfja. Læknisfræðiorðabók Stedmans lýsir fyrirbærinu þann- ig: heilkenni sem einkennist af því að geta ekki setið kyrr, vegna hreyfióróa og vöðvatitrings, get- ur komið fyrir sem hliðarverkun við sefandi geðlyf Líf- og lækn- isfræðiorðabók Wileys tekur í sama streng, en bætir því við að akathisia geti einnig verið sjald- gæft merki um Parkinsons sjúk- dóm. Upphaflega hafi þetta heiti þó verið notað um kvíðaröskun sem einkenndist af kvíða, ofsa- hrœðslu eða hugsýki og krömp- um við tilhugsunina um það að setjast niður. Heitið er komið úr grísku þar sem a- er neitandi for- skeyti og kathisis er það að vera sitjandi. Ingvar lýsti því mjög mynd- rænt hvernig sumir sjúklingar, sem þyrftu stóra skammta af slík- um lyfjum, til dæmis vegna geð- klofa, schizophrenia, gætu verið tvístígandi og á stöðugri hreyf- ingu fram og til baka. Það fyrsta, sem í hugann kom eftir þessa lýs- ingu, var einfaldlega órói. Með því að fletta fram og til baka í samheitaorðabókinni fundust fleiri orð, sem ef til vill gætu einnig komið til greina: eirðar- leysi, eiruleysi, friðleysi, óeirð, ókyrrð, óróleiki, óþreyja, stjákl og viðþolsleysi. Stjákl virðist til dæmis henta vel fyrir þann fóta- burð sem Ingvar lýsti og óþreyja eða viðþoisleysi virðist einnig lýsa hegðun sjúklinganna dável. Allt eru þetta þó almenn orð og ekki er víst að skynsamlegt sé að taka þau til afnota sem sértæk læknisfræðileg heiti. Hins vegar mætti búa til samsetningar þar sem fram kæmi eitthvað um or- sök eða eðli óróans. Skoða þarf vel hversu lýsandi heitið þarf að vera. Þó að akathisia vísi sér- staklega í það að geta ekki setið kyrr, þá er ekki víst að íslenska heitið þurfi að gera hið sama. Til- vísun í lyfin getur verið fullt eins æskileg eða tilvisun í vöðva eða vöðvatitring. Vandinn verður síð- an sá að finna jafnvægi milli hæfilegrar nákvæmni í lýsingu og viðráðanlegrar orðlengdar. Þó að menn geti sætt sig við ýmsar langar og nákvæmar samsetning- ar í sjaldgæfum líffæraheitum, þá er slíkt ekki vinsælt í heitum sem eru í daglegri notkun. Að þessu sögðu má koma með nokkur dæmi. Lyfjaórói og vöðvaórói eru sæmilega stutt og lipur heiti en mjög almenn. Vera má að Ivfjaóeirð eða vöðvaóeirð henti betur til að gefa í skyn eitthvað um viðþolsleysið sem virðist þjá sjúklingana. Fentíasín-óeirð eða fentíasín-stjákl eru heldur lengri samsetningar en með öllu meiri nákvæmni í tilvísun. Heitið geð- lyfjavöðvaóeirð er hins vegar komið yfir þolmörk hvað varðar lengd. Fleira verður ekki sett fram að sinni, en gaman væri að heyra frá geðlæknum um þetta mál. Smáskurðameðferð Baldur Þorgilsson rafmagns- verkfræðingur, félagi í Heil- brigðistæknifélagi íslands, sendi fyrirspurn um það hvort fengin væri þýðing, sem menn væru sáttir við, á því sem oft nefnist „minimally invasive" aðgerðir. Undirritaður hefur ekki orðið var við slíkt. Um skylt efni var þó fjallað í 49. íðorðapistli (Frétta- bréf lækna 1994;8( 1 ):4), það er að segja minimally invasive therapy og óskað eftir tillögum. Vísað er til þess að innrás eða inngrip í líkamsvefi sé í lágmarki miðað við hefðbundnar skurðað- gerðir. Þórarinn Guðnason, fyrr- um skurðlæknir á Borgarspítala, lagði síðan til að meðferð af þessum toga væri nefnd smá- skurðameðferð eða smáskurða- lækningar (FL 1994; 8(3): 6). Ljóst er að þau heiti geta átt vel við um ýmsar nútíma skurðlækn- ingar, en grunur minn er sá að heitið minimally invasive the- rapy eigi að ná yfir fleira en skurðaðgerðir. Til þess að koma umræðunni af stað er sett fram ein tillaga. Lýsingarorðið inva- sive er ýmist þýtt sem ífarandi, og er þá gjaman verið að ræða um krabbamein, eða inngrips-, og er þá gjarnan verið að ræða um aðgerðir, meðferð eða rann- sóknir. Lagt er því til að lítið eða smátt inngrip verði nefnt smá- grip og meðferðin smágripsmeð- ferð. (Fleirtalan smágripameð- ferð gengur víst ekki!) Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.