Læknablaðið - 15.02.1999, Side 22
120
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Kawasaki sjúkdómur
á íslandi 1979-1997
Pétur Benedikt Júlíusson,,I Hróðmar Helgason21, Árni V. Þórsson341
Júlíusson PB, Helgason H, Þórsson ÁV
Kawasaki disease in Iceland 1979-1997
Læknablaðið 1999; 85: 120-4
Kawasaki disease is a multisystem inflammatory dis-
ease most commonly affecting young children. The
first patient documented with the disease in lceland
was diagnosed in 1979. In this retrospective study we
describe our experience with the disease in lceland
over 19 years.
From 1979 to 1997 40 children were diagnosed with
Kawasaki disease, i.e. an annual incidence of 8.5 per
100,000 children younger than five years of age.
Male-female ratio was 2:1. The number of patients
each year varied from none to seven. Coronary aneu-
risms were revealed in four of 30 patients (13%)
undergoing 2D echocardiography. One patient died
(2.5%) of cardiac complication (heart failure).
Twenty-seven of 30 patients diagnosed after 1987
were treated with intravenous immunoglobulins. The
incidence of Kawasaki disease in Iceland is com-
parable to what has been reported in the other Nordic
countries.
Key words: Kawasaki disease, epidemiology, complica-
tions.
Ágrip
Kawasaki sjúkdómur er bólgusjúkdómur
sem einkennist aðallega af hita, húðútbrotum,
tárubólgu og bólgubreytingum í munnslímhúð,
Frá "barneklinikken Bergen, Haukeland Sykehus, 2lBarna-
spítala Hringsins, 31barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur,
"’Háskóla íslands. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Pétur B. Júlíus-
son barneklinikken Bergen, Haukeland Sykehus, 5021
Bergen. Netfang: pjul@bkb.haukeland.no
Lykilorö: Kawasaki sjúkdómur, faraidsfræöi, fyigikvillar.
en getur haft í för með sér fylgikvilla í hjarta-
og æðakerfi. Gúlamyndun í kransæðum sést
hjá 15-20% ómeðhöndlaðra sjúklinga. Tilgang-
ur þessarar afturskyggnu rannsóknar var að
kanna nýgengi Kawasaki sjúkdóms hérlendis,
tíðni hjartakvilla og annarra fylgikvilla. Fyrsti
sjúklingurinn greindist á Islandi 1979. Til og
með 1997 höfðu 40 börn greinst með sjúkdóm-
inn hér á landi. Meðalnýgengi var 8,5/100.000
á ári hjá börnum undir fimm ára aldri. Kynja-
hlutfall (drengir/stúlkur) var 2:1. Fjöldi tilfella
var breytilegur frá ári til árs, frá engu til sjö
barna á ári. Fljartabilun greindist hjá þremur
börnum og kransæðagúlar hjá fjórum. Einn
sjúklingur lést úr hjartabilun tengdri Kawasaki
sjúkdómi. Öll börn greind eftir 1987, að þrem-
ur undanskildum, voru meðhöndluð með mót-
efnum í æð. Nýgengi sjúkdómsins innan fimm
ára aldurs er sambærilegt við niðurstöður rann-
sókna frá hinum Norðurlöndunum.
Inngangur
Kawasaki sjúkdómi var fyrst lýst í Japan af
Tomisaku Kawasaki árið 1967 (1). Orsakir
sjúkdómsins eru óþekktar en hann einkennist
af hita, húðútbrotum, tárubólgu, bólgum í
munnslímhúð, útlimabólgum og eitlastækkun-
um. Hættulegasti fylgikvilli sjúkdómsins er
bólga í meðalstórum slagæðum, sérlega krans-
æðum, með gúlamyndun. Allt að 20% sjúk-
linga fá slíka gúla án meðhöndlunar (2). Oftast
ganga kransæðagúlarnir til baka án þess að
valda sjúkdómseinkennum en þó geta þeir leitt
til hjartadreps eða langvinns hjartasjúkdóms.
Dánartíðni er lág eða undir 1% (3). Kawasaki
sjúkdómur er nú algengasta orsök áunnins
hjartasjúkdóms hjá bömum í hinum vestræna
heimi (4).