Læknablaðið - 15.02.1999, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
131
The Face in Fetal Alcohol Syndrome
Discriminating
Features
short palpebral
fissures
flat midface
indistinct philtrum
Associated
Features
epicanthal folds
low nasal bridge
minor ear
anomalies
short nose
thin upper lip "" micrognathia
ln the Young Child
Mynd 1. Andlitseinkenni í heilkenni fósturskaða afvöldum áfengis (15).
því að valda dauða fósturs til þess að valda vægri
hegðunarröskun hjá börnum.
í aldanna rás hefur fólk grunað að áfengis-
neysla á meðgöngu gæti haft skaðleg áhrif á
fóstrið. Sem dæmi má nefna að í Karþagóborg
til forna var brúðhjónum bannað að drekka vín
á brúðkaupsnóttina af ótta við að afbrigðilegt
barn kæmi undir (1). I svokölluðum ginfaraldri
á Bretlandi á fyrri hluta 18. aldar vöruðu lækn-
ar við því að áfengisneysla á meðgöngu gæti
skaðað fóstrið (2). Árið 1932 lýsti Huxley því í
bók sinni Veröld ný og góð, hvernig Gammar,
Deltar og Epsilonar voru búnir til í svokölluðu
Bokanovskyferli. Það ferli var nokkurs konar
klónunaraðferð á fólki, sem fólst í því að
hindra eðlilegan vöxt og þroska hjá frjóvguð-
um eggjum með því meðal annars að gefa þeim
næstum banvænan skammt af alkóhóli. Þeir
sem lifðu þetta ferli af urðu kyrkingslegir vexti
og treggáfaðir (3). Þessi trú manna á neikvæð
áhrif áfengisneyslu hélst fram á 20. öldina, en
eftir bannárin var tilhneiging hjá læknum að
líta á ótta við áfengisneyslu á meðgöngu sem
óþarfa siðavendni. Talið var að börn drykkju-
kvenna fæddust óeðlileg vegna erfðafræðilegra
þátta, þeirra sömu og yllu drykkjusýkinni hjá
mæðrum þeirra (4).
Það var ekki fyrr en í lok sjöunda áratugarins
og byrjun þess áttunda að áhugi á neikvæðum
afleiðingum áfengisneyslu á meðgöngu vakn-
aði á ný. Árið 1968 birti hópur franskra vís-
indamanna niðurstöðu rannsóknar á 127 börn-
um sem áttu drykkjusjúka foreldra. Þeir lýstu
mjög einkennandi útliti þessara barna, einkum
ef mæðurnar voru áfengissjúklingar (5,6). Árið
1973 voru það svo sérfræðingar í lýtalækning-
um, Jones og félagar, sem lýstu svipuðum nið-
urstöðum í Lancet og komu fram með skil-
greininguna á heilkenni fósturskaða af völdum
áfengis (fetal alcohol syndrome, FAS) (1,7).
Þrír aðgreinandi þættir heilkennisins voru
vaxtarskerðing, andlitsvanskapnaður og
þroskaskerðing. Vanskapnaðurinn og vaxtar-
skerðingin sem einkenna heilkennið eru afleið-
ing mikillar áfengisneyslu snemma á með-
göngu og er aðeins toppurinn á fósturskaðaís-
jakanum.
Minni áfengisskammtar og tíðari, heldur en
þeir sem valda heilkenninu, geta valdið starf-
rænum skaða í formi vitsmunaskerðingar og
hegðunarvandamála. Starfræni skaðinn, sem
veldur einstaklingnum miklu alvarlegri erfið-
leikum til langs tíma litið heldur en sá líkam-
legi, stafar aðallega af neyslu áfengis eftir fyrsta