Læknablaðið - 15.02.1999, Síða 42
136
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Mynd 2. Músafóstur, annaðfóstrið (A) er heilbrigt en hiít (B) er skaddað af völdutn Mynd 3. Þriggja ára samsk stúlka með
áfengis. Ljósm.: K.K. Sulik, University of North Carolina, Chapel Hill. heilkenni fósturskaða af völdum áfengis.
Ljósm.: George Steinmetz. (© G. Steinmetz)
Hugtakið áfengistengdur fósturskaði (fetal
alcohol effect, FAE) hefur oft verið notað, þeg-
ar barn hefur aðeins tvö af ofangreindum þrem-
ur einkennum. Þetta hugtak hefur verið gagn-
rýnt fyrir óljós greiningarskilmerki og óskipu-
lega notkun um böm með hin marvíslegustu
vandamál (9). í nýjum greiningarskilmerkjum
IOM eru í stað þessa hugtaks komin hugtökin
áfengistengdir fæðingargallar (alcohol-related
birth defects, ARBD) og áfengistengd röskun á
taugaþroska (alcohol-related neurodevelop-
mental disorder, ARND). Greiningarskilmerki
fyrir áfengistengda röskun á taugaþroska eru:
1. Einkenni um óeðlilegan þroska miðtauga-
kerfisins eins og lýst er í lið 3 hér að ofan
og/eða:
2. Einkenni um marvíslegan afbrigðilegan
hegðunar- og vitsmunaþroska sem er í ósam-
ræmi við þroskastig og skýrist ekki af erfð-
um og umhverfisáhrifum eingöngu. Þar má
nefna erfiðleika við að læra, skerta frammi-
stöðu í skóla, lélega hvatastjórnun, skort á
innsæi í mannlegum samskiptum, skertan
málskilning og máltjáningu, erfiðleika við
afstæða hugsun, sértæka stærðfræðierfið-
leika eða vandamál í sambandi við minni,
athygli eða dómgreind.
Greining á heilkenni fósturskaða af völdum
áfengis hefur reynst erfið vegna þess að hana er
aðeins hægt að framkvæma með klínísku mati
og flest tilfelli (89%) eru greind eftir sex ára
aldur (10).
Tíðni
Tölur um tíðni heilkennis fósturskaða af
völdum áfengis eru mjög breytilegar eftir því
hvaða skilmerki eru notuð og hvers konar þýði
er skoðað. I ritum um efnið er algengast, að
tíðni þess sé talin vera eitt til þrjú af hverjum
1000 lifandi fæddum börnum meðal vestrænna
þjóða (11,12). Abel telur tíðnina um eitt af
hverjum 1000 börnum í hinu almenna fæðing-
arþýði og 4,3% meðal ofdrykkjufólks eða
þeirra sem drekka 3,7 drykki á dag eða meira.
Hann álítur að tíðnin sé 20 sinnum hærri í
Bandaríkjunum (1,95/1000) samanborið við
Evrópu og önnur lönd (0,08/1000). í Banda-
ríkjunum er tíðnin hæst í lægri stéttum samfé-
lagsins og meðal svartra og indíána (2,29/
1000), en lægri í mið- og efri stéttum og hjá
hvítu fólki (0,26/1000).
í rannsókn, sem gerð var fyrir rúmum áratug
í einangruðu fátæku indíánasamfélagi í bresku
Kólumbíu þar sem áfengissýki var á háu stigi,
kom í ljós að 190 börn af hverjum 1000 undir
18 ára aldri voru með heilkenni fósturskaða af
völdum áfengis eða áfengistengdan fóstur-
skaða (13).
Samkvæmt rannsóknum í Svíþjóð var tíðni
heilkennis fósturskaða af völdum áfengis áætl-
uð vera eitt af hverjum 600 lifandi fæddum
bömum í Gautaborg árið 1976, en árið 1983
hafði tíðnin minnkað í eitt af hverjum 2400
börnum og var það þakkað forvarnarstarfi
heilbrigðisstarfsmanna og félagsráðgjafa með-
al þungaðra kvenna og einnig upplýsingamiðl-
un fjölmiðla. Afengisneysla meðal ungra
kvenna í Svíþjóð minnkaði frá 2,2 lítrum af
hreinum vínanda á ári árið 1976 niður í 1,2 lítra
á ári 1985. Neyslan hafði aukist aftur í 1,9 lítra
á ári 1989 og var það eingöngu vegna aukinnar
neyslu á sterkum bjór. Ekki er vitað um núver-
andi tíðni í Svíþjóð (14).