Læknablaðið - 15.02.1999, Side 62
152
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
DDD/1000 íbúa/dag
25-i------------
24-
1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998
Ár
Mynd 4. Heildamotkun bakteríulyfja (ATC flokkur J01) á íslandi 1989-1998 í stöðluðum dagskömmtum (DDD)/1000 íbúa/dag.
Niðurstöður ársins 1998 eru aðeins fyrir fyrstu þrjá ársfjórðungana.
um leið að sporna við vaxandi ónæmi. Fyrsta
meðferð sýkinga af völdum S. pyogenes er pen-
isillín og er meðferð því einungis vandamál hjá
sjúklingum með penisillín ofnæmi. Erýtrómýs-
ín hefur verið kjörlyf þegar um er að ræða sjúk-
ling með penisillín ofnæmi, en varasamt er að
treysta þeirri meðferð þegar hlutfall erýtrómýs-
ín ónæmra stofna er komið upp fyrir 20%. Ekki
er heldur hægt að treysta á klindamýsín með-
ferð, þar sem klindamýsín ónæmi fylgir oft er-
ýtrómýsín ónæmi. Frá sjúklingum með háls-
bólgu þarf því að taka hálsstrok í ræktun og
næmispróf. Ef um streptókokkasýkingu er að
ræða skal velja meðferð í samræmi við niður-
stöðu næmisprófsins. Ekki er um góða valkosti
að ræða hjá sjúklingum með penisillín ofnæmi
og alvarlega S. pyogenes sýkingu. Gefa skal
kefalóspórín af fyrstu kynslóð ef það er talið
óhætt (um 10% krossofnæmi), en annars
vankómýsín í æð (við alvarlegar sýkingar).
Nauðsynlegt er að sporna við ofannefndri
þróun og helst þarf að snúa henni við. Með því
að draga úr sýklalyfjanotkun og með íhalds-
samri notkun makrólíða má vonandi snúa þess-
ari þróun við líkt og Finnum tókst (7) og ís-
lendingum tókst áður í tengslum við ónæma
pneumókokka.
HEIMILDIR
1. Seppala H, Nissinen A, Jarvinen H, Huovinen S, Henriks-
son T, Herva E, et al. Resistance to erythromycin in group A
streptococci [see comments]. N Engl J Med 1992; 326: 292-
7.
2. Comaglia G, Ligozzi M, Mazzariol A, Valentini M, Orefici
G, Fontana R. Rapid increase of resistance to erythromycin
and clindamycin in Streptococcus pyogenes in Italy, 1993-
1995. The Italian Surveillance Group for Antimicrobial
Resistance. Emerg Infect Dis 1996; 2: 339-42.
3. Kristinsson KG, Gunnlaugsson S. Streptococcus pyogenes
- Vaxandi tíðni sýkinga - sýklalyfjanæmi. Læknablaðið/
Fréttabréf 1993; 11(3): 28-9.
4. Kristinsson KG. Faraldsfræði penicillín ónæmra pneumó-
kokka. Læknablaðið 1996; 82: 9-19.
5. Kristinsson KG, Hjálmarsdóttir MA, Guðnason Þ. Minnk-
andi tíðni ónæmra pneumókokka helst í hendur við minnk-
andi notkun sýklalyfja hjá börnum. IX. ráðstefna um rann-
sóknir í læknadeild Háskóla íslands 1999, Reykjavík.
Læknablaðið 1998: 84/Fylgirit 37:120-1.
6. Stephenson J. Icelandic researchers are showing the way to
bring down rates of antibiotic-resistant bacteria [news].
JAMA 1996; 275: 175.
7. Seppala H, Klaukka T, Vuopio-Varkila J, Muotiala A, Hel-
enius H, Lager K, et al. The effect of changes in the con-
sumption of macrolide antibiotics on erythromycin resis-
tance in group A streptococci in Finland. Finnish Study
Group for Antimicrobial Resistance [see comments]. N
Engl J Med 1997;337:441-6.