Læknablaðið - 15.02.1999, Page 66
156
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Vinnutímatilskipun Evrópusambandsins hefur áhrif á
starfsumhverfi sjúkrahúslækna
Vaktaskipulagi sjúkrahúsanna verður
umturnað, læknum fjölgað og þrýstingur
eykst á meiri samvinnu sjúkrahúsa
Arnór Víkingsson.
Fyrir nokkrum árum lög-
festi Alþingi svonefnda
vinnutímatiiskipun Evrópu-
sambandsins. Samkvæmt
henni eru takmörk sett fyrir
því hversu lengi atvinnu-
rekendur geta látið fóik
vinna, bæði á sólarhring og
á viku. I stað þess að binda
nákvæm ákvæði um vinnu-
tíma í lög eða reglugerðir
ákváðu stjórnvöld að láta
aðilum vinnumarkaðarins
eftir að semja um nánari
útfærslu tilskipunarinnar.
Flest stærri samtök launa-
fólks, svo sem ASÍ, BSRB og
BHM, hafa samið við við-
semjendur sína og nú er röð-
in komin að sjúkrahúslækn-
um.
Arnór Víkingsson ritari
stjórnar LI á sæti í nefnd sem
er að tjalla um áhrif vinnu-
tímatilskipunar Evrópusam-
bandsins á störf og vinnutíma
lækna. Nefndin er skipuð
samkvæmt bókun í kjara-
samningi sjúkrahúslækna frá
1997 en auk Arnórs eiga sæti í
henni Ásgeir Böðvarsson fyrir
hönd LI, Inga Þráinsdóttir
fyrir hönd Félags ungra lækna,
Guðlaug Björnsdóttir fyrir
hönd Ríkisspítala, Oddur
Gunnarsson fyrir hönd
Sjúkrahúss Reykjavíkur og
Halldór Jónsson fyrir hönd
Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri.
Arnór sagði í viðtali við
Læknablaðið nú um miðjan
janúar að stefnt væri að því að
ljúka samningum í febrúar en
að því loknu yrðu niðurstöður
kynntar læknum og bornar
undir atkvæði. En um hvað
snýst þessi tilskipun?
„Hún hefur þann tilgang að
vernda starfsmenn fyrir
ágangi atvinnurekenda að þeir
geti ekki lagt á starfsfólk sitt
of mikla vinnu. Hún snertir
því ekki sjálfstæðan rekstur,
til dæmis stofurekstur lækna.
Tilskipunin setur þau mörk að
vikulegur vinnutími sé ekki
meiri en 48 stundir og að á
hverjum sólarhring fái starfs-
menn að minnsta kosti 11 tíma
samfellda hvíld og er þá mið-
að við næstu 24 tíma eftir að
viðkomandi mætir til vinnu.
Frá þessu síðarnefnda ákvæði
er að vísu undanþága niður í
átta tíma hvíld en fyrir því
verður að færa sterk rök. Það
er ekki hægt að hnika vinnu-
tímanum upp fyrir sextán tíma
á sólarhring."
Nýtt vaktskipulag að
fæðast
- Snertir þetta stóran hluta
sjúkrahúslækna?
„Já, eins og vinnutíma
sjúkrahúslækna er háttað þýð-
ir þetta að það þarf að um-
turna öllu vaktaskipulagi
sjúkrahúsanna. Að vísu ber að
geta þess að þótt rætt sé um 16
stunda hámarksvinnu á sólar-
hring þá má læknir vera á
gæsluvakt, ef hann er ekki