Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.1999, Qupperneq 67

Læknablaðið - 15.02.1999, Qupperneq 67
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 157 kallaður út í átta tíma sam- fleytt. Þetta á sérstaklega við sérfræðinga sem eru á svo- kallaðri gæsluvakt 2 þar sem álagið yfir nóttina er lítið. Þær vaktir geta haldið sér óbreytt- ar. Fyrir aðrar tegundir sjúkra- húsvakta gengur þetta síður. Auðvitað gildir það um allar vaktir að álagið er mest á kvöldin en minna yfir nóttina en samt sem áður er víða þörf fyrir útköll sérfræðinga að næturlagi. Þar sem slíkt gerist er gerð krafa um breyttar vaktir, það má ekki hafa sama lækninn á vakt frá klukkan 16 til átta næsta morgun. Við höf- um því lagt töluverða vinnu í að búa til nýtt vaktskipulag sem tekur mið af þessum regl- um en getur samt sem áður nýst í þeirri starfsemi sem rek- in er á sjúkrahúsunum. Þetta er víða erfitt miðað við þann fjölda lækna sem nú er að störfum á sjúkrahúsun- um. Það eru nógu margir lyf- læknar á stóru sjúkrahúsunum í Reykjavík til þess að manna vaktirnar eftir að búið er að skipta 16 tíma vakt upp í tvær átta tíma vaktir. Þetta mun þó tæplega vekja mikla hrifningu þeirra sérfræðinga sem ganga vaktir. A skurð- og handlækn- ingadeildum er þetta hins veg- ar vonlaust því þeir sem ganga vaktir eru svo fáir. Þar eru víða ekki nema fjórir til sex læknar sem skipta vöktunum á milli sín og ef við skiptum vöktunum upp í átta tíma vaktir er verið að tala um að þeir séu á vakt annan eða þriðja hvern sólarhring og það gengur einfaldlega ekki. Og þar sem meginandi reglnanna er sá að vernda starfsmanninn þá munu 16 tíma vaktirnar sennilega halda sér óbreyttar þar sem starfsmannafjöldinn leyfir ekki annað. Þetta kallar hins vegar á að fjölgað verði í þeim hópum sem ganga vaktirnar." Getur leitt til tekjulækkunar - Geta þessar nýju reglur haft áhrif á tekjumöguleika lækna? „Þær geta haft slík áhrif, sérstaklega hvað varðar ung- lækna, og þau geta verið veru- leg. Til dæmis dettur út það ákvæði að deildarlæknar sem standa vaktir fram að mið- nætti og eiga að mæta til vinnu snemma næsta morgun vinni á yfirvinnutaxta ef þeir fá ekki nægilega hvfld á milli. Þetta getur haft töluvert launatap í för með sér fyrir deildarlækna. Annað atriði sem gæti snert kjör unglækna er ákvæði 4.2.2 í kjarasamningi okkar en þar segir að á stofnunum eða deildum „þar sem góð nýting tækja og húsnæðis er bundin við lengri vinnutíma, má ákveða dagvinnu frá mánu- degi til föstudags á tímabilinu frá kl. 07:00 til kl. 24:00“ í stað þess að dagvinna sé frá kl. 8-17. Þetta gæti leitt til þess, samkvæmt skilningi at- vinnurekenda, að unglæknir sem mætir á vakt kl. 18 eða 20 og er á vakt til morguns verði á dagvinnutaxta með álagi til miðnættis en ekki eftirvinnu- taxta eins og nú er. Reyndar erum við mjög ósáttir við þetta því við teljum að þetta ákvæði geti ekki gilt um bráða- þjónustu heldureinungis ef um er að ræða fyrirfram ákveðna þjónustu, til dæmis röntgen- myndatöku, sem ákveðið er að veita á kvöldin. Það er hins vegar lykilatriði fyrir kjör unglækna og sumra sérfræð- inga hvernig þetta ákvæði verður túlkað. Því er ekki að leyna að fs- lenskir læknar vinna of mikið og þess vegna er ekki nema gott eitt um það að segja að settar séu reglur til þess að draga úr þessari miklu vinnu. Það sem ég sé jákvætt við reglumar er að í þeim er farið fram á samfellda átta tíma hvíld á sólarhring. Við vitum að læknar sem eru á bakvakt heima hjá sér verða oft fyrir ónæði af völdum símhring- inga út af vandamálum sem upp koma á sjúkrahúsinu. Vandamálið er þá oft leyst með símtali sem stendur kannski yfir í stundarfjórðung. Þessi símtöl hafa ekki verið greidd sérstaklega, menn hafa fengið sitt bakvaktarkaup en ekki skrifað á sig sérstök útköll vegna símtalanna. Við teljum að burtséð frá greiðslum fyrir svona símtöl þá séu þau óhjá- kvæmilega röskun á sam- felldri hvíld. Við höfum hald- ið því fram í samningsgerð- inni að læknum beri réttur til frítöku vegna þeirrar skerð- ingar á hvíldartíma sem af svona samtölum hlýst. Að þessu hafa viðsemjendur okk- ar ekki viljað ganga en við vinnum að því að fá sjónarmið okkar viðurkennt." Mun valda miklum breytingum - Hafa þessar breytingar ekki í för með sér töluverðan kostnaðarauka fyrir sjúkra- húsin? „Um það er ekki gott að segja, en það er ljóst að þessi tilskipun getur valdið miklum breytingum í heilbrigðisþjón- ustunni. Hún tengist öllum þessum umræðum um sam- ræmingu á rekstri eða jafnvel
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.