Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 68

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 68
158 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 sameiningu sjúkrahúsanna. Það blasir við að hún muni auka þrýsting á að þar sem haldið er uppi vöktum bæði á Landspítalanum og Sjúkra- húsi Reykjavíkur í tilteknum undirgreinum verði vaktirnar sameinaðar og aðeins hafður einn sérfræðingur á vakt í stað tveggja. Þessi eini mun þá vinna meira en áður en samt hefur þetta í för með sér sparnað fyrir kerfið í heild. Þetta mun einnig auka eftir- spurn eftir unglæknum. Nú eru á bilinu 110-120 unglækn- ar í starfi á sjúkrahúsunum en þegar nýju reglurnar verða komnar til framkvæmda þarf að fjölga þeim upp í 180 eða þar um bil. Spurningin sem þá vaknar er hvernig hægt er að brúa þetta bil. Ein leiðin er að fjölga nemendum í lækna- deild en sú leið gæti verið varasöm því það er hæpið að mæta skorti á unglæknum sem eru að störfum í tvö til þrjú ár með því að fjölga læknum sem við eigum svo í vandræð- um með að taka við sem sér- fræðingum síðar. Þetta gæti orðið dýr leið fyrir samfélag- ið. Önnur leið og fýsilegri væri að auka sérfræðinám hér á landi. Þá myndu unglæknar staldra lengur við hér að loknu námi. Þetta hefur verið til um- ræðu en er flókið mál og gæti reynst erfitt í framkvæmd. Þriðja leiðin væri sú að fjölga sérfræðingum sem gætu tekið að sér störf unglækna að ein- hverju leyti og einnig gengið inn í þær sérfræðingastöður sem óhjákvæmilega munu verða til. Með þessu er ég í raun að segja að launafólki á sjúkra- húsunum muni fjölga á næstu árum. Það mun óhjákvæmi- lega auka kostnað fyrir sjúkrahúsin en á móti gæti komið aukin hagræðing og samræming á störfum sjúkra- húsanna sem yrði til þess að draga úr kostnaði.“ Læknar vinna of rnikið - En er ekki tómt mál að tala um fjölgun lækna á sama tíma og það ríkir læknaskortur og í sumum greinum blasir við fækkun lækna? „Jú, við erum óneitanlega í erfiðri stöðu. Ef við berum okkur saman við Norðurlönd þá vinna allir íslenskir læknar mikið, bæði unglæknar og sérfræðingar. Sérfræðingar sem vinna eingöngu á spítöl- unum taka mikið af aukavökt- um og þeir sem eru í hluta- stöðum reka flestir stofu. Svona er mynstrið hér á landi og menn telja sig þurfa á þess- um tekjum að halda. Raunar eru íslenskir læknar með svip- aðar brúttótekjur og læknar á Norðurlöndunum en vinnan að baki þeim er miklu meiri hér á landi. Þetta held ég að sé aðalástæðan fyrir því hversu margir læknar setjast að á Norðurlöndunum, þeir sjá fyr- ir sér miklu þægilegra líf þar en hér. I ljósi þessa sést hversu mikilvægt skref var stigið í síðustu samningum þegar byrjað var að færa yfirvinnu- tekjurnar inn í fastakaupið og á þann hátt að draga úr þess- um langa vinnutíma. Við þurf- um að halda áfram á þeirri braut því ef okkur tekst að koma hér á mannvænni vinnu- tíma þá hef ég trú á því að margir þeirra sem nú starfa utanlands muni líta það hýru auga að snúa heim. Þetta á ekki síst við störf lækna í heilsugæslunni úti á landi þar sem vinnuálagið er óhóflegt. Þar nægir ekki að hækka kaupið, það verður að draga úr vinnuálaginu.“ Snertir ekki stofurekstur - En ef sérfræðingur sem rekur stofu verður fyrir því að vaktirnar hans eru skornar niður í krafti vinnutímatil- skipunarinnar, getur hann þá ekki bætt sér það upp með lengri vinnutíma á stofunni? „Jú, það er í raun ekkert sem bannar honum það. Til- skipunin nær eingöngu til starfsmanna en ekki sjálf- stæðra atvinnurekenda, þeir síðamefndu mega vinna 24 tíma á sólarhring sjö daga vik- unnar ef þeim sýnist svo. Sú hugmynd hefur kviknað að læknar stofni fyrirtæki sem taki að sér vaktirnar og vinni þær sem verktakar. (Með því móti kæmust þeir framhjá vinnutímatilskipuninni. Eg get ekki tekið undir þetta sjón- armið því ég tel það af hinu góða að draga úr vinnutíma lækna þótt ekki megi ganga of langt í þeim efnum. Læknar þurfa að vinna töluvert til þess að viðhalda sérfræðiþekkingu sinni. Reyndar er líka uppi ágreiningur um það hvort til- skipunin nái til allra lækna sem starfa sem launamenn. Samkvæmt úrskurði frá Evr- ópusambandinu eru unglækn- ar ekki fyllilega undir hana seldir, það má í sumum tilvik- um leggja meira á þá en til- skipunin segir til um. En til- hneigingin hefur verið í þá átt að allir unglæknar skuli hlíta tilskipuninni. Þetta og önnur ágreinings- atriði verða skoðuð af sér- stakri úrskurðarnefnd á veg- um ASÍ, BSRB, BHM og rík- isins. Þessi nefnd hefur ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.