Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 74

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 74
164 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Högni Óskarsson Flísar og bjálkar Frumvarp um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði varð að lögum þann 17. des- ember síðastliðinn. Átök á lokaspretti urðu töluverð, sum á efnislegum forsendum, önn- ur báru vott um að kosningar eru í nánd. Það er mat þessa höfundar að frumvarpið hafi batnað mikið síðustu mánuði, álitamál hafa verið skýrð, þó að enn virðist vanta upp á að þau hafi komist til skila. Eitt lítið dæmi um það er sú gagn- rýni að enginn viti hvaða heilsufarsupplýsingar eigi að fara í gagnagrunninn. Þó svo að ekki sé nákvæmlega skil- greint í lögunum hvaða upp- lýsingar eigi að fara í gagna- grunninn þá stóð í frumvarp- inu, nú í lögum og greinar- gerð, að samráð verði við sér- greinafélög lækna og for- stöðumenn sviða um það hvaða upplýsingar skuli vinna úr sjúkraskrám inn í miðlægan gagnagrunn og eins hvaða upplýsingar eigi ekki að vinna í gagnagrunninn. Er þetta öllu skynsamlegra heldur en að fela það í vald alþingismanna að ákveða slíkt. Haft skal að leiðarljósi að upplýsingarnar nýtist sem best til stjórnunar og þróunarvinnu, til skýrslu- gerðar fyrir heilbrigðisyfir- völd og til allrar vísindastarf- semi. Síðan er það tölvu- nefndar að tryggja að per- sónuverndar sé gætt. Umræðan hefur verið áköf, en merkilega laus við per- sónuleg ónot. Kom það mér því nokkuð á óvart að lesa grein í desemberhefti Lækna- blaðsins eftir Árna Björnsson lýtalækni þar sem hann afbak- ar margt af því, sem ég skrif- aði í Morgunblaðsgrein um gagnagrunnsmálið. Árni Björnsson hefur í mínum huga skipað virðingarsess í áratugi sem brautryðjandi í sinni sér- grein, sem íhugull læknir og vopnabróðir í ýmsum málum, sem snerta hinn húmanistíska og siðfræðilega þátt læknis- starfsins. En lítum efnislega á málið. Þeim fjölmörgu, sem ekki lásu Morgunblaðsgrein mína en lásu grein Árna, kemur ekkert annað í hug en að þar hafi ég skautað létt yfir álita- mál og logið þar sem hindran- Mannvernd Frmhald af bls. 162 Mikilvægt er að læknum sé kunnugt um þennan rétt sjúk- linga því margir spyrjast fyrir um þetta nú þegar. Mann- vernd mun aðstoða fólk við að koma þessari ósk á framfæri. Samtökin hafa í samráði við lögfræðinga látið hanna eyðu- blað með slíkri tilkynningu til landlæknis. Mannvernd hefur sent landlækni drög að eyðu- blaðinu, í von um að það gæti flýtt fyrir framgangi þessa máls. Svar hefur ekki borist þegar þetta er ritað en eyðu- blaðið er birt hér og er lækn- um frjálst að nota það að vild. Læknar eru hvattir til að kynna sér sjónarmið Mann- verndar en þau koma fram á heimasíðu samtakanna. Slóð- in er www.simnet.is/mannvernd Þar er meðal annars að finna umsögn stjórnar Siðfræðiráðs L.I. þar sem læknum er ráð- lagt að taka ekki þátt í gerð grunnsins, einnig samantekt í töfluformi á öllum umsögnum um frumvarpið sem sendar voru til Heilbrigðis- og trygg- inganefndar Alþingis, um- fjöllun erlendra fjölmiðla, umræður og deilur. Læknar sem áhuga hafa á að gerast fé- lagar eða jafnvel taka þátt í starfi Mannverndar geta skráð sig í síma 881 7194 eða snúið sér til stjórnarmanna. Sig- mundur Guðbjarnason pró- fessor er formaður Mann- verndar, en aðrir í stjórn eru Laufey Tryggvadóttir faralds- fræðingur, Friðrik Jónsson verkfræðingur og Anna Atla- dóttir læknaritari, auk undir- ritaðs. Pétur Hauksson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.