Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 87

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 87
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 175 Sýnd eru mismunandi tæki til sýrustigsmælinga og skil- vindur og vogir af ýmsum gerðum og smásjár, þar á meðal elsta smásjá sem hefur varðveist hér á landi, smásjáin sem Willard Fiske gaf Lærða skólanum 1881. A meira en 60 veggspjöldum er rakin saga lækninga á Islandi, sér- lega baráttan við smitsjúk- dóma. Saga lækningarannsókna (meinatækni) í nútíma skiln- ingi verður ekki rakin miklu lengra aftur en til Holds- veikraspítalans í Laugarnesi og St. Jósefsspítala á Landa- koti í upphafi þessarar aldar. Þótt líklegt sé að Bjarni Páls- son landlæknir liafi fyrstur manna eignast míkróskóp á íslandi voru míkróskóp ekki Stefán Jónsson-lœknir og dósent við lœknadeild Háskóla Islands. notuð hér í læknisfræði fyrr en seint á 19. öld. Hans Georg Schierbeck landlæknir kom með míkróskóp hingað 1882 til læknisfræðilegra nota og hann greindi í því berklabakt- eríur í hráka árið 1889. Gísli Guðmundsson var brautryðj- andi í gerlafræði og lækninga- rannsóknum á öðrum áratugi 20. aldar. Stefán Jónsson læknir hóf hér smásjárskoðun á vef og hann kom upp fyrstu rannsóknarstofu Háskóla Is- lands. Það var árið 1917. Þar fékkst hann við sjúkdóms- greiningar byggðar á vefja- skoðun, gerlarannsókn og blóðvatnsprófum. Stefán varð fyrstur til þess að blóðflokka íslendinga og hann komst að hinu afar háa algengi O- blóðflokks hjá þeim samfara mjög lágu algengi A-blóð- flokks. Margra annarra braut- ryðjenda í læknisfræði hér á landi á þessari öld er getið. Sýningin er opin daglega lil febrúarloka. Nýtt læknatal í vinnslu Læknar, skilið æviskrám fyrir febrúarlok! Eins og læknum er kunnugt stendur nú yfir vinna við nýtt læknatal sem fyrirhugað er að komi út í sumar. Þetta mun verða fjórða útgáfa Lækna á Islandi en hinar fyrri komu út 1944. 1970og 1984. Vafasamt er talið að þessi útgáfa rúmist í einu bindi eins og þær fyrri og er reiknað með að læknatalið verði að minnsta kosti í tveim- ur bindurn, ef ekki þremur. Að sögn Sigurbjöms Sveins- sonar formanns ritnefndar hafa skil lækna á æviskrám sínum verið góð en þó vantar nokkuð á að allt hafi skilað sér. Hefur þeim sem ekki eru búnir að skila verið gefinn frestur til febrúarloka. Eftir það mun ritnefnd setja saman æviskrár eftir opinberum heimildum um þá sem ekki skila sjálfir því brýnt er að læknatalið veiti tæmandi upplýsingar um alla íslenska lækna, fyrr og síðar. Að sjálfsögðu er á allan hátt æskilegra og skemmtilegra að læknar skili sjálfir æviskrám því hætt er við að það sem ein- göngu styðst við opinberar heimildir verði gloppótt og þurrlegt. Það eru því eindregin tilmæli ritnefndar að þeir sem eiga eftir að skila geri það sem fyrst. Verið getur að sumir hafi strandað á því að það vanti réttar dagsetningar, svo sem fæðingar- eða dánardægur ætt- ingja eða eitthvað þess háttar en það skulu menn ekki láta aftra sér frá því að senda inn æviskrár því auðvelt er fyrir ritnefnd að nálgast slíkar upp- lýsingar. Sigurbjörn sagði að senni- lega yrði þetta í síðasta sinn sem læknatal kemur út með þessum hætti. Fyrir hartnær tveimur áratugum þegar unnið var að síðustu útgáfu óraði menn ekki fyrir þeim breyt- ingum sem síðan hafa orðið á tækni við útgáfu og upplýs- ingamiðlun. Því væri eins víst að eftir önnur 20 ár verði út- gáfa með allt öðru sniði en nú er. Það mætti því búast við að læknatalið sem kemur út í sumar verði fljótlega eftirsótt af söfnurum, gott ef ekki antfk! Auk Sigurbjörns eiga þeir Hafsteinn Sæmundsson og Örn Bjarnason sæti í ritnefnd en ritstjóri verksins er Gunn- laugur Haraldsson þjóðhátta- fræðingur á Akranesi. -ÞH
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.