Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 92

Læknablaðið - 15.02.1999, Page 92
178 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Það hefi ég heyrt, að sót hafi þótt gott til lækninga á innyflaormum, sem voru á fyrri tímum all tíðir í fólki. Hafi því einhverjum orðið það á að kyssa eða sleikja hóinn í von um lækningu. Eyrnahringar Eyrnahringir voru bornir jafnt af körlum sem konum. Karlmannahringir voru smíð- aðir úr tannbaki, sem kallað var. Það mun hafa verið blendingur úr kopar og tini og voru mjög ljótir og klunnaleg- ir. Tekinn var bandhnykill og honum haldið bak við eyrna- blaðkinn. Síðan var fjaðranál stungið gegnum blaðkinn. Oddur nálar gekk þá inn í hnykilinn. Hugurinn bak við notkun tannbakshringanna var sá, að þetta væri einskonar læknismeðal. Hringurinn átti að draga óhollt efni út úr lík- amanum. Þetta hringafargan var viðbjóður, því oft mátti sjá eyrnablaðkinn klístraðan af gröfti út frá hringgatinu. Ann- ars held ég að þessir eyrna- hringamenn hafi flestir verið landshornamenn og flækingar eða gallaðir að einhverju leyti. Eyrnahringir voru notaðir bæði til skrauts og einnig við augnveiki og blóðnösum. Götin á eyrun voru stungin með skónál. Þegar það var rnest í hefð að nota eyrna- hringi, þá var það í sveit einni, að kona nokkur þótti sérstak- lega lagin við að stinga götin á eyrun, og komu margir til hennar í þeim erindum. Hún hafði þann vana, að bregða nálinni upp í sig áður en hún stakk gatið með henni. En nú brá svo við að það fór hastar- lega að grafa í götunum, sem kona þessi hafði stungið. Skömmu seinna dó kona þessi úr berklaveiki, en þetta gerðist þegar veiki þessi var lítið þekkt hér á landi. Sagan segir að eftir þetta hafi mjög dregið úr notkun eyrnahringa. Aldraður bóndi kom til ná- grannakirkju. Kona, sem þekkti hann vel sagði svo: „Hann er með hringi í eyrunum, Bjarni gamli. Hann er líklega farinn að heyra illa, karl tetrið". Þetta svar finnst mér benda til að eyrnahringar hafi verið notað- ir við heyrnarleysi og eins hitt, að karlar og konur báru þá. Eg hygg að oftast hafi hringar verið úr eir, hann þótti draga best vessa. Konur sem þjáðust af handadofa af að halda til dæmis um mjótt hrífu- skaft, höfðu breiðan eirhring um úlnlið sinn. Það fannst þeim draga úr þrautum. Sjó- menn hef ég séð hafa keðju um úlnlið, líklega þó meir til þess að forðast afrifur undan núningi á sjóstakksermi. Eir- pening, fimmeyring, heyrði ég sagt að menn, sem hefðu fótasár, leggðu í þau, þannig var eirtrúin nokkuð almenn til skamms tíma. Eyrnahringar voru oftast stungnir í gegnum eyrnasneplana og lokað með haki. Eg held þeir hafi verið bornir til æviloka. Eyrnahringar voru aðallega bornir af konum. Sjaldan að karlar hefðu þá. Þeir voru úr gulli og fleiri málmum. Gert var gat á eyrnasnepilinn með skófjaðranál og haldið kork- tappa á móti. Þeir voru ýmist bornir tiltekinn tíma eða endr- um og eins. Sá þetta gert á stúlku milli fermingar og tví- tugs á Úthéraði fyrir rúmum 60 árum í þeim tilgangi að setja blýhringi í eyrun, og áttu þeir að bæta henni hlustarverk og höfuðþyngsli. Stundum mun hafa grafið í þessu og þótti ekkert athugavert við slíkt, og sáust þess merki á eldri konum. Læknablaðið á netinu: http://www.icemed.is/laeknabladid
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.