Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1999, Síða 94

Læknablaðið - 15.02.1999, Síða 94
180 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Lyfjamál 74 Frá Heílbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og landlækni Nú er nokkuð um liðið síð- an bókin LYFJAVAL kom út. Til upprifjunar þá er bókin af- rakstur samstarfsverkefnis Fé- lags íslenskra heimilislækna, Heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins, lándlækn- isembættisins og Trygginga- stofnunar ríkisins. í bókinni eru leiðbeiningar um meðferð og notkun lyfja við ákveðnum sjúkdómum eða einkennum. Verkefnið er ennþá í fullum gangi og senn kemur að 2. út- gáfu bókarinnar. Að hverjum kafla vinna oftast tveir til þrír læknar í sameiningu. Unnið er út frá „evidence based medi- cine“ þannig að sú meðferð sem mælt er með er vísinda- lega studd og vel þekkt og reynd. Lyfjafræðinemar hafa einnig lagt verkefninu lið. Það var ekki ætlunin að svo langt liði á milli áfanga, en af ýms- um orsökum hægðist nokkuð á verkefninu. I haust og fram eftir vetri var unnið vel og voru yfir 20 kaflar í vinnslu. í október síðastliðnum var haldinn fundur þar sem lækn- ar kynntu þá kafla sem búið var að vinna og var innihald þeirra rætt og komst hópurinn að samkomulagi um hvernig viðkomandi kafli myndi birt- ast í Lyfjavalinu. Nú eru 17 kaflar svo gott sem tilbúnir til uppsetningar og prentunar. Sigurður Helgason hefur sem fyrr verið aðaldriffjöður- in í verkefninu í samvinnu við lyfjafræðing Tryggingastofn- unar. Tryggingastofnun vill nota tækifærið og koma á framfæri þakklæti til Sigurðar og allra þeirra sem að verk- efninu hafa komið, fyrir ánægjulegt samstarf. Ákveðið hefur verið að ráða lyfjafræð- ing tímabundið til starfa, sem eingöngu mun sinna Lyfjaval- inu. Með þessu vill stofnunin leggja sitt að mörkum til að verkefnið gangi sem best. Verkefni eins og Lyfjaval lýkur aldrei. Nýir kaflar eiga að birtast jafnt og þétt og áður birtir kaflar þurfa reglulegrar endurskoðunar við vegna sí- felldra nýjunga. Heyrst hefur frá læknum sem tekið hafa þátt í þessu starfi að það sé mjög ánægjulegt og jafnist á við góða endurmenntun. Hluti af verkefninu er síðan að fylgja bókinni eftir og sjá til þess að hún sé notuð, en ryk- falli ekki uppi í hillu. Lækna- deild Tryggingastofnunar hef- ur sýnt í verki áhuga á að koma að verkefninu, bæði hvað varðar vinnslu kaflanna, yfirlestur og eftirfylgni. Heilbrigðisyfirvöld gera á hverju ári kröfur um sparnað meðal annars í lyfjakostnaði. Lyfjakostnaður kemur ekki til með að lækka, hann eykst á hverju ári og aðallega vegna nýrra lyfja sem oftar en ekki eru mjög dýr. Með samstarfi sem þessu þá er unnið að því að nota lyfín, bæði þau gömlu og nýju, á skynsaman og markvissan hátt svo fjármun- irnir nýtist sem best. Lyfja- framleiðendur eyða gífurleg- um fjármunum í að segja læknum frá kostum nýju lyfj- anna. Á síðasta ári voru tvö ný lyf tekin snögglega af markaði vegna hættulegra aukaverk- ana. Læknar verða því ávallt að vera mjög gagnrýnir á aug- lýsingar lyfjaframleiðenda. Upplag Lyfjavalsins er því miður búið, en hægt er að panta bókin hjá Ingu J. Arnar- dóttur hjá Tryggingastofnun, eða með tölvupósti, netfangið er: ingaja@tr.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.