Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 8
föstudagur 1. júní 20078 Fréttir DV erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Viðurkenndi fjöldamorð Rússneskur táningur hefur viðurkennt að hafa myrt yfir 30 manns í Moskvu í viðleitni sinni við að „hreinsa borgina“, að sögn The Moscow Times. Tán- ingurinn segist meðal annars hafa drepið menn frá Armeníu, Asíu og Tadsjikistan með því að stinga fórnarlömbin með hnífi tuttugu sinnum, hið minnsta. Pilturinn er nemi í íkona-mynd- list og er talinn hafa framið flest morðanna í félagi við annan mann. Síðasta morðið framdi hann um miðjan apríl síðast- liðinn og þá handtók lögreglan hann alblóðugan með hníf í fór- um sínum, auk þess sem árásin náðist á öryggismyndavélar. Stuðningsmenn TRT-flokksins voru harmi slegnir á miðvikudag þegar dómur var kveðinn upp um að flokkurinn þeirra skyldi leyst- ur upp. Formaður flokksins segir dóminn alltof harðan en bað fé- laga sína um að virða hann. For- sætisráðherrann og stofnandi flokksins, Thaksin Shinawatra, er enn í útlegð eftir að herforingjar tóku stjórn landsins í sínar hend- ur. Ástæðan fyrir valdaráninu var meint kosningasvik TRT-flokksins en Shinawatra má ekki taka þátt í stjórnmálum í Taílandi næstu fimm ár samkvæmt úrskurðinum og það sama gildir um rúmlega hundrað félaga hans. Keppinauturinn sýknaður Niðurstöður kosninganna í apríl á síðasta ári voru ógiltar eftir að upp komst um svindlið. Var flokkurinn meðal annars fundinn sekur um að hafa búið til flokka til að bjóða fram gegn sér á svæðum þar sem eng- in mótframboð voru til staðar til að komast hjá reglum um lágmarks kosningaþátttöku. Lýðræðisflokkurinn sem er hinn stóri flokkurinn í landinu var einn- ig sakaður um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Félagsmenn hans voru hins vegar sýknaðir af öll- um ákærum og samkvæmt fréttum brutust út mikil fagnaðarlæti fyr- ir utan dómhúsið í Bangkok, höf- uðborg landsins, þegar sá úrskurð- ur lá fyrir. Glöddust meðal annars stuðningsmenn TRT-flokksins sem vonuðust til að dómurinn væri undanfari sýknudóms yfir sínum mönnum. Það reyndist þó ekki vera. Formaðurinn segir dóminn vera stuðningsyfirlýsingu við núverandi stjórnarherra þótt þeir hafi komist til valda með því að láta vopnin tala. Samkvæmt fréttavef BBC er talið lík- legt að niðurstaðan muni valda reiði meðal hinna fjöldamörgu stuðn- ingsmanna flokksins en hann sækir fylgi sitt að miklu leyti til fólks í dreif- býli og þeirra fátækustu. Lögreglan hafði viðbúnað í höfuðborg landsins í gær vegna fjölmennra mótmæla þar gegn herforingjastjórninni. Kosningar fyrir árslok Núverandi forsætisráðherra landsins, herforinginn Surayud Chulanont hefur lofað því að ný stjórnarskrá landsins verði kynnt á þessu ári og kosningar muni fara fram fyrir árslok. Talið er líklegt að þeir félagsmenn TRT-flokks- ins sem ekki voru dæmdir muni reyna að stofna nýjan flokk og bjóða sig fram í þeim kosningum. Það myndi ekki stríða gegn lög- um landsins samkvæmt frétt The Guardian í gær. Það er ekki óalgengt að herinn taki fram fyrir hendur stjórnmála- manna í landinu líkt og gerðist í september í fyrra. Þá tók herinn völdin á friðsamlegan hátt á með- an forsætisráðherrann var á fundi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Hann hefur ekki snúið til- baka eftir það. Valdaránið hefur haft slæm áhrif á efnahag landsins þar sem gengi gjaldmiðils lands- ins hefur lækkað töluvert og dreg- ið hefur úr straumi ferðamanna. Konungur landsins sem er í guða- tölu hefur hvatt þegna sína til að sýna stillingu á meðan jafnvægi næst á nýjan leik í stjórnmálalífi landsins. kristjan@dv.is RingulReið í Taílandi Surayud Chulanon núverandi forsætisráðherra landsins er herforingi og hefur lofað landsmönnum nýrri stjórnarskrá og kosningum fyrir árslok. Thaksin Shinawatra stofnandi trt- flokksins og fyrrverandi forsætisráð- herra var dæmdur í fimm ára bann frá þátttöku í taílenskum stjórnmálum. Úrskurður dómstóls í Taílandi á miðvikudag þess efnis að flokkur Thaksins Shinawatra, hins útlæga forsætisráð- herra landsins, skyldi leystur upp og rúmlega hundrað háttsettir fé- lagsmenn bannaðir frá stjórnmálastarfi hefur valdið skjálfta í Taílandi þar sem herforingja- stjórn hefur setið við völd síðustu mánuði: Enn sem fyrr hefur árlegur fund- ur Alþjóðahvalveiðiráðsins leyst upp í hávaðarifrildi og klofning og nú standa öll spjót á Japan. Helstu and- stæðingar hvalveiða náðu samstöðu gegn Japönum og samþykktu álykt- un þar sem hvalveiðar þeirra í vís- indaskyni voru fordæmdar með 40 atkvæðum gegn 2. Flestar, ef ekki all- ar þær þjóðir sem eru fylgjandi hval- veiðum sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una, sem hefur engin áhrif á veiðar Japana. Aftur á móti var ráðið sammála um að herða reglur um mótmæla- aðgerðir umhverfissamtaka. Ráðið virðist gera skýran greinarmun hvers kyns mótmæli eru. Á meðan Græn- friðungum var boðið að senda full- trúa á fund ráðsins í ljósi þess að þeir hafa um áratuga skeið rekið það sem þeir kalla friðsöm mótmæli, sendi ráðið umhverfissamtökum óbein skilaboð. Þvert á móti var Sea Shep- herd ekki boðið að sitja fundinn en þau samtök hafa síðustu tvo áratug- ina ítrekað framkvæmt skemmdar- verk til að koma málefnum sínum á framfæri. Talið er að þetta sé eina málefnið þar sem fullkomin sam- staða náðist meðal nefndarmanna. Öllum aðildarlöndum ráðsins er leyfilegt að veiða hval í vísindaskyni. Japanar veiða í nafni vísindanna um 1.000 hvali í Norður-Kyrrahafinu og Antartíku ár hvert. Andstæðingar hvalveiða telja að Japanar hafi víkkað út veiðiheimildir sínar, eins og þær voru skilgreindar við stofnun sam- takanna árið 1946, út fyrir öll viðmið- unarmörk. Samkvæmt útreikningum Hvalveiðiráðsins hafa Japanar veitt um 7.000 hvali síðastliðin 18 ár, eða tæplega 400 á ári. Stærsta fátæktar- hverfi asíu rifið Yfirvöld í Mumbai á Indlandi ætla að jafna stærsta fátæktar- hverfi Asíu við jörðu og byggja í staðinn íbúðir fyrir fólkið sem þar býr. Hverfið er í námunda við fjármálahverfi borgarinnar. Verkið verður boðið út og vonast er til að verktakar taki vel í boð borgaryfirvalda sem hyggjast meðal annars greiða fyrir fram- kvæmdina með jörðum undir verslunarhúsnæði. Ástandið í fátæktarhverfum Indlands er oft á tíðum skelfilegt þótt efnahag- ur landsins hafi snarbatnað síð- ustu ár. læknir nýr forseti Þingmenn á lettneska þing- inu hafa valið nýjan forseta fyrir þjóðina. Hann heitir Valdis Zatl- ers og er fimmtíu og tveggja ára læknir. Hann var frambjóðandi stjórnarmeirihlutans og hlaut 58 atkvæði af þeim níutíu og átta sem greidd voru. Zatlers verður þriðji forseti landsins síðan það fékk sjálf- stæði árið 1991. Nýi forsetinn hefur verið sakaður um að hafa þegið ólöglegar greiðslur frá sjúklingum sínum en hann neit- ar allri sekt. Helstu skyldur for- setans eru að vera fulltrúi lands- ins á erlendri grundu samkvæmt fréttavef BBC. Grænfriðungum var boðið að sitja fundinn, en Sea Shepherd ekki: Upplausn í Alþjóðahvalveiðiráðinu Hvalveiðar Japana Helstu andstæðingar hvalveiða í alþjóðahvalveiðiráðinu hafa náð samstöðu gegn japönum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.