Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 31
DV Sport FÖSTudagur 1. júní 2007 31 Með húðflúrið góða Birkir var ekki lengi að stilla sér upp og hnykla vöðvana. Birkir Már Sævarsson var léttur í lundu þegar DV náði í hann. Birkir var þá nýbúinn að borða með landsliðinu og sagðist vera stoltur af því að vera hluti af landsliðshópnum. Birk-ir ólst upp í Hlíðahverfinu og sleit barnskónum sínum í Val. Hann fékk sér húðflúr ekki alls fyrir löngu á öxlina og setti þar merki Vals, ekkert annað kom til greina. „Ég veit nú ekki hvernig það kom til, en mig langaði bara til þess. Ég var búinn að hugsa þetta lengi og lét verða af því á sín- um tíma,“ segir Birkir. Aðspurður um hvað myndi gerast ef hann myndi skipta um lið hér á Íslandi stóð ekki á svari hjá bakverð- inum knáa. „Ég bara skipti ekkert um lið. Ég hef alltaf ætlað að vera í Val og er ekkert að hugsa um önnur lið hér heima.“ Eftir annan flokkinn beið Birkir þolin- móður eftir tækifærinu með aðalliði Vals. Hann lagði hart að sér á hverri einustu æf- ingu og uppsker núna eins og hann sáði. Mættu margir ungir knattspyrnumenn taka hann til fyrirmyndar en alltof algengt er að menn hætti í íþróttinni fái þeir ekki tækifæri með uppeldisliði sínu. „Það kom aldrei til greina að fara eitt- hvert annað, það er óskaplega einfalt.“ Birkir var kosinn efnilegasti leikmaður Landsbankadeildarinnar eftir síðasta sumar og sýndu erlend lið honum áhuga. Fór hann til Fredrikstad á reynslu en það dæmi gekk ekki upp. Birkir segist ekki vera að hugsa mikið um atvinnumennsku en ef eitthvað spennandi myndi koma upp þá gæti hann alveg stokkið á það tilboð. „Það gerðist ekkert meira eftir reynslu- tímann minn úti. Fredrikstad sagðist vera að leita að reynslumeiri mönnum. Ef ég skipti einhvern tímann um lið þá fer ég til útlanda. Ég horfi þar helst til Skandinavíu, Danmerk- ur eða Svíþjóðar, og held að sá bolti myndi henta mér ágætlega. Ég er ekki hrifinn af norska boltanum og held að hann henti mér ekkert sérstaklega vel. En ég myndi skoða það ef eitthvað kæmi upp.“ Heldur með Leeds Birkir var í hálft ár við nám í Indiana í Bandaríkjunum, árið 2004, en var boðinn aðeins hálfur styrkur. Því boði hafnaði Birkir og kom aftur heim. „Mér gekk ekki alltof vel í náminu,“ segir hann og hlær. Birkir er mikill Leedsari og lék alltaf í gamalli Leeds-treyju undir Valsbúningnum, nú hefur Leeds-treyjan fengið frí og er Birkir kominn í aðra treyju innan undir. „Ég hætti því fyrir tímabilið að spila í Leeds-búningnum innan undir. Ég og Bald- ur Aðalsteinsson höfum rætt mikið um að fara út til Leeds og bjóða fram þjónustu okk- ar. En það hefur ekki ennþá gerst. Ég hugsa nú að við kæmumst í liðið en spurning reyndar hvað þeir hafa fram að bjóða núna. Hvort þeir fari ekki að nota uppalda Leeds leikmenn. Ég myndi reyndar hiklaust spila frítt þarna,“ segir Birkir og hlær, en Leeds féll niður í aðra deild eftir að liðið hafði farið fram á greiðslustöðvun. Birkir hefur haldið áfram í sama forminu það sem af er Landsbankadeildinni og ver- ið mjög stöðugur í sínum leik. „Þetta tímabil byrjar svona þokkalega. Maður er reyndar aldrei fullkomlega sáttur, maður getur allt- af bætt sig en mér finnst þetta hafa gengið ágætlega. Ég finn ekkert fyrir pressunni sem var sett á mig við það að vera valinn efnileg- astur í fyrra, meira að maður viti af henni en ég læt hana ekkert á mig fá. Maður reyn- ir bara að standa sig,“ sagði Birkir að lokum. benni@dv.is Myndi spila frítt Með leeds Birkir Már Sævarsson leikmaður Vals var valinn í fyrsta sinn í íslenska landsliðið fyrir landsleikina gegn Liechtenstein og Sví- þjóð. Hann beið þolin- móður eftir tækifærinu sínu í meistaraflokki Vals og hefur heldur betur nýtt það. GetuM ekki Mætt Með hálfuM huGa í neinn leik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.