Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 47
DV Helgarblað föstudagur 1. júní 2007 47
Sakamál
Átján ára bandarísk stúlka sem læddist inn
um bakdyrnar heima hjá sér seint að kvöldi
átti sér einskis ills von þegar faðir hennar
skaut hana skyndilega í fótinn. Pabbinn starf-
ar sem lögregluþjónn í borginni New Haven.
Hann greip til byssunnar þegar hann varð var
við mannaferðir í húsinu sér að óvörum. En
hann mun hafa verið viss um að dóttir sín væri
sofandi inni í herberginu sínu. Byssukúlan fór
í hné stúlkunnar og þaðan upp í læri þar sem
hún stöðvaðist. Þegar faðirinn áttaði sig á því
hvað hann hafði gert hringdi hann í neyðarlín-
una og bað um aðstoð. Stúlkan var flutt á spít-
ala þar sem aðgerð var gerð á henni með hraði
en líðan hennar var þá orðin stöðug. Aðgerð-
in heppnaðist vel og var hún útskrifuð stuttu
síðar. Faðir stúlkunnar sleppur við ákæru og
þar af leiðandi
fangelsisvist enda
heimila banda-
rísk lög að borgarar
verji heimili sín fyrir innbrotsþjófum þótt
þeir þurfi að nota til þess skotvopn. Þar sem
maðurinn taldi dóttur sína vera einn slíkan þá
fellur þetta tilfelli undir þessi tilteknu lög. Eng-
ar fréttir er að fá af því hvaða áhrif þetta atvik
hafði á samband þeirra feðgina. Eitt er víst að
stúlkan hugsar sig tvisvar sinnum um áður en
hún læðist inn og út úr húsinu í framtíðinni og
nágrannarnir munu ekki þora að kíkja óvænt í
heimsókn til byssuglaða pabbans. Hann mun
þó væntanlega gá betur að sér næst þegar
hann verður var við mannaferðir í húsi sínu.
Byssuglaður lögreglumaður í Bandaríkjunum:
Skaut dóttur sína
Ef Franziske er á lífi í dag er hún
orðin fjórtán ára gömul en síðast
sást til hennar þann þriðja ágúst
árið 1996. Móðuramma stúlkunnar
bíður ennþá eftir að fá fréttir af ör-
lögum stúlkunnar sinnar. Tilhugs-
unin um að fara í gröfina án þess að
vita nokkuð er henni ógnvekjandi.
Lögreglan hefur nokkrum sinnum
yfirheyrt nágranna mæðgnanna
vegna málsins en hann hefur ekki
verið dæmdur.
Það var rétt upp úr hádegi á
laugardegi að Gabriele sagði móður
sinni að hún ætlaði í göngutúr með
litlu dóttur sína, Franziske. Mæð-
gurnar bjuggu hjá móður Gabriele,
Margot Kallenberg í þýska bæn-
um Ramstäd sem er í suðurhluta
landins. Þær hugðust ganga í gegn-
um skóginn til nágrannabæjarins
Warza eins og þær höfðu margsinn-
is gert til að versla. Margt fólk varð á
vegi þeirra á þessari göngu sem síð-
ar gat vitnað til um að hafa séð þær.
Um klukkan fjögur voru þær stadd-
ar hjá kaupmanni einum í Warza og
hann er sá síðasti sem sá þær á lífi,
fyrir utan gjörningsmanninn. Lík-
legast er að Garbriele hafi ákveðið
að halda heim á leið eftir að hafa
verslað hjá honum og þær farið
sömu leið tilbaka.
Lögreglan kölluð til
Þegar klukkan var ellefu um
kvöldið gat Margot ekki lengur stillt
sig um að hringja í lögregluna og
tilkynna að hún óttaðist um dóttur
sína og barnabarn. Leit var þegar
sett í gang og daginn eftir bættust
hermenn, hestamenn og sveitungar
mæðgnanna við leitarhópinn. Þrátt
fyrir vel skipulagða og ítarlega leit
bar hún fyrst árangur eftir tvo daga.
Þá fannst nakið lík Gabriele í kjarri á
bersvæði í skóginum. Hún var þrjá-
tíu og sjö ára gömul. Föt hennar og
dótturinnar fundust einnig þar ná-
lægt. Mikil rigning síðar þennan
sama dag gerði lögreglunni hins
vegar erfitt fyrir.
Fáar vísbendingar bárust lög-
reglunni frá almenningi en spjót-
in beindust fljótt að Bernd Röhr,
fimmtíu og tveggja ára bæjarbúa
sem var fráskilinn og bjó ásamt
rúmlega þrítugri dóttur sinni. Bæj-
arbúar höfðu lengri slúðrað um að
Bernd kynni að vera faðir Franziske
en móðir hennar hafði aldrei gef-
ið upp faðerni barnsins. Ekki einu
sinni foreldrar hennar vissu hver
faðirinn var. Margir sögðust hafa
séð Garbriele og Bernd saman ná-
lægt þeim stað þar sem lík hennar
fannst. Ein af tilgátum lögreglunn-
ar var sú að móðirin hefði reynt að
fá Bernd til að greiða með barninu
sem hann hefði neitað þar sem ekki
lágu fyrir sannanir um að hann væri
raunverulegur faðir þess. Erfitt er
að fá botn í þessa tilgátu þegar ekki
er hægt að taka lífsýni úr litlu stúlk-
unni. Bernd var hins vegar marg-
sinnis kallaður til yfirheyrslu og
fjórum mánuðum síðar, í desem-
ber sama ár var hann ákærður fyrir
morð á mæðgunum. Hann hefur þó
ekki verið dæmdur en setið inni fyr-
ir önnur brot á þessum tíma.
Getur ekki sofið
Í tíu ár hefur Margot Kallenberg,
sem er sjötíu ára gömul lifað við
óvissuna og segist gerast sér grein
fyrir að líkurnar á að hún fái að sjá
barnabarnið sitt á lífi séu sáralitlar
og verði minni og minni með hverj-
um deginum. Hún á erfitt með svefn
þar sem litla stúlkan birtist henni
brosandi í hvert skipti sem hún loki
augunum. Á daginn gerir hún lítið
annað en að hugsa til mæðgnanna
og segir það gera sig að óhamingju-
sömustu ömmu og móður í heimi.
Hún segir morðið á dóttur sinni
vera hræðilegt en óvissan um örlög
Franziske vera verri og hún óskar
þess að hún fái botn í málið fljótt.
Gabriele liggur í kirkjugarði í Rem-
städt og Margot segir að það yrði
sér huggun að geta líka heimsótt
leiði dótturdóttur sinnar. Þá myndi
alla vega enginn vafi leika á því hvar
stúlkan litla væri.
Þýska lögreglan lýsir ennþá eftir
Franzisku og er að finna upplýsing-
ar um hana á heimsíðunni wir-su-
chen-dich.de.
Hengdi sig
og börnin
Systir ungrar móður kom
að henni og þremur börnum
hennar látnum á heimili þeirra
í Texas í Bandaríkjunum. Móð-
irin hafði hengt sig og börn-
in sín með þessum afleiðing-
um en yngsta barnið sem er
átta mánaða var með lífsmarki
og var bjargað. Konan bjó ein
með börnin sín í niðurníddu
hjólhýsahverfi og hafði lengi
þjáðst af þunglyndi. Lögregl-
an telur víst að um sjálfsmorð
hafi verið að ræða hjá konunni
vegna sögu hennar og eins þar
sem hjólhýsinu hafði verið læst
innan frá.
Dópaður undir stýri
Popparinn George Michael hafði tekið inn blöndu af alls kyns
eiturlyfjum þegar lögreglan kom að honum sofandi undir stýri
á bíl sínum síðastliðið haust. Þetta kom fram við réttarhöld yfir
söngvaranum sem er nú á tónleikaferðalagi um Evrópu.
George Michael sem er fjörutíu og þriggja ára gamall á yfir
höfði sér allt að sex mánaða fangelsi vegna málsins.
Piparsprey í
stað byssu
Danska lögreglan verður
vopnuð piparspreyi í framtíð-
inni ef frumvarp þess efnis verð-
ur samþykkt á þinginu. Verð-
ur spreyið þriðja vopnið sem
lögregluþjónar þar í landi bera
ásamt byssu og kylfu. Prófanir
á spreyinu hafa gefið góða raun
og eins hefur árangurinn af
notkun þess verið góður í Finn-
landi. En til samanburðar skaut
finnska löggan aðeins sjö skot-
um af byssum sínum í fyrra en
sú danska tæplega tvöhundruð
og fimmtíu og voru fjögur þeirra
banaskot.
Gátu ekki
rakið byss-
una til Palme
Byssa sem fannst í sænsku
vatni í nóvember síðastliðnum
reyndist of illa farin til að hægt
væri að rekja hana til morðsins
á Olof Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar. Þetta tilkynnti sænska
lögreglan í byrjun vikunnar en
vonir voru bundnar við að byss-
an kynni að verða lögreglunni til
hjálpar við lausn þessa tuttugu
og eins árs gamla morðmáls. Í
kjölfar nafnlausrar ábendingar
náðu kafarar á vegum sænsks
dagblaðs í byssuna í vetur og
afhentu hana lögreglunni til
rannsóknar.
Tíu ár eru liðin frá því að Gabriele Kallenberg var myrt þegar hún var á leið heim
með þriggja ára dóttur sína, Franziske. Lík móðurinnar fannst stuttu síðar en ekkert
hefur spurst til litlu stúlkunnar. Amma hennar segir óbærilegt að lifa við óvissuna:
Rænt eða dRepin?
Ekkert hefur til Franziske
spurst síðan hún hvarf þriggja
ára gömul árið 1996. Lík móður
hennar fannst hins vegar nakið
ásamt fötum þeirra mæðgna.
Kerra Franziske fannst ekki
langt frá staðnum þar sem lík
móður hennar lá.Þýskur skógur Mæðgurnar höfðu farið í gönguferð um skóglendið í nágrenni við
heimabæ sinn í suðurhluta Þýskalands.
Þýska lögreglan grunaði fimmtíu og tveggja ára gamlan mann fyrir morðið á
móður stúlkunnar en hann hefur ekki verið dæmdur.
Handbyssa
Bandarískur
lögreglumaður
skaut dóttur
sína sem hann
taldi vera
innbrotsþjóf.