Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Side 59

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Side 59
Federline fær hlutverk Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, er einn þeirra sem leikur í kvikmyndinni Night Watch, sem skartar Keanu Reeves í aðalhlutverki. Federline sem er bæði dansari og rappari að atvinnu hefur ekki leikið í kvikmynd áður, en er sagður muna leika lítið, en eftirtektarvert hlutverk. Það er óskarsverðlaunahafinn Forrest Whitaker sem leikur illmennið í myndinni, sem fjallar um sérsveit innan lögreglunnar. Frumsýningar helgarinnar Á webehigh.com eru upplýsingar um hvernig eigi að nálgast kannabisefni í öllum heimshornum. Erfitt að ná í kannabis hér Heimasíðan webehigh.com er nokkuð merkilegt fyrirbæri. Þar eru upplýsingar fyrir ferðamenn um hvernig eigi að útvega sér kannabis- efni í borgum víða um heiminn. Til dæmis eru á borgarlista síðunnar átta borgir í Indlandi, Taívan, Ung- verjalandi, Hondúras, Tonga, Íran, Fílabeinsströndinni, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og svo lengi mætti telja. Þá er Reykjavík einnig á listanum. Upplýsingarnar eru oftar en ekki mjög nákvæmar og skiptast í flokka. Þá er tekið fram hver sektin er við að vera gómaður með kannabisefni í hverju landi fyr- ir sig og ákveðinn mælikvarði um hversu illa séð efnin eru í viðkom- andi borg. Höfundur greinarinn- ar um Ísland segir það afar erfitt að verða sér úti um kannabis á Íslandi, enda sé efnið afar ólöglegt og illa séð. Ferðalöngum er ráðlagt að fara á bari og spjalla við fólk á aldrinum 20-25 ára. „Í samræðunum skaltu reyna að spyrja einstaklinginn um viðhorf hans til kannabisefna og ef hann er jákvæður ertu dottinn í lukkupottinn. Ef hann vill ekk- ert ræða það, skaltu reyna að finna annan einstakling á svipuðum aldri og byrja upp á nýtt,“ segir á heima- síðunni. Á síðunni stendur að Ís- lendingar séu mun meira gefnir fyrir sopann heldur en hitt og þess vegna sé kannabismenningin í landinu lít- il. Góðar fréttir fyrir flesta, en sorg- legar fyrir „frjálslynda“ ferðamenn. dori@dv.is Hinn þaulreyndi leikari Michael Madsen sem er þekktastur fyrir hlut- verk sín í Resvoir Dogs og Kill Bill tel- ur að fjaðrafokið í kringum mynd- ina Grindehouse geti orðið til þess að aldrei verði af Sin City 2. „Mynd- in hefur ekki verið tekin upp ennþá og ég veit ekki hvort að hún verði það nokkur tíman,“ lét Madsen hafa eft- ir sér þegar hann var kynna nýjustu myndina sína, Boarding Gate. Grindehouse orsökin „Ég held að Grindehouse hafi eiginlega ekki virkað,“ sagði Mad- sen en Robert Rodriguez leikstýr- ir öðrum helmingi Grindehouse á móti Íslandsvininum Quentin Tar- antino. „Ég er ekki alveg viss hvaða áhrif Grindehouse á eftir að hafa á gerð Sin City 2 en þau gætu verið slæm.“ Grindehouse samanstendur af myndunum Death Proof og Planet Terror eftir þá félaga og hefur aðsókn á myndina verið hræðileg. Í kjölfar- ið hefur mikill tími hjá Rodriguez og Tarantino farið í að kynna myndina og reyna bjarga henni. Þá segir Madsen að eina ástæð- an fyrir því að hann hafi ákveðið að leika lítið hlutverk í fyrri mynd- inni hafi verið til að fá stærra í þeirri seinni. „Ég hef ekki einu sinni séð handrit fyrir myndina,“ segir Madsen en tökur á Sin City 2 áttu að hefjast í júní. „Ég veit ekki hvort myndin verði en ég vona það svo sannarlega og ég vona að ég verði í henni,“ sagði Mad- sen að lokum. Depp og Banderas í Sin City 2? Ljóst er að það yrði mikið áfall fyrir aðdáendur Sin City ef að ekk- ert verði af framhaldsmyndinni en áætlanir voru þegar uppi um að gera þriðju myndina. Fjöldi leikara hefur þegar staðfest þáttöku sína í Sin City 2. Þar ber helst að nefna Clive Owen, Brittany Murphy, Jessica Alba, Mick- ey Rourke, Rosario Dawson og Mich- ael Clarke Duncan. Þá hafa nokkrir stórleikara til við- bótar verið orðaðir við myndina. Þau Johnny Depp, Antonio Banderas og Rachel Weisz hafa öll verið tengd við myndina en ekkert verið staðfest ennþá. Handritið tilbúið Hasarblaðahöfundurinn Frank Miller hefur þó slegið aðeins á áhyggjur aðdáenda Sin City og full- yrðir að handritið fyrir myndina sé tilbúið. Miller telur þó líklegt að vinna við Sin City 2 hefjist ekki fyrr en að hann og Rodriguez hafi lokið við núverandi verkefni sín. Það þýðir að umtalsverð töf verður á myndinni en Miller vinnur núna að myndinni The Spirit og Rodriguez að Barbar- ella en lítið hefur verið gefið upp um báðar myndirnar. asgeir@dv.is Fær eflaust ekki hlutverk Eins og flestir vita þá fór leikkonan Lindsay Lohan í meðferð í annað skipti á stuttum tíma nú í vikunni. Eitt virðist þó hafa gleymst í meðferðaræsingnum að Lindsay var búin að ráða sig til þess að leika í kvikmyndinni Poor Things, en upptökur á henni áttu að hefjast í vikunni. Kvikmyndin skartar þeim Shirley MacLaine, Olympiu Dukasis, Channing Tatum og Rosario Dawson í aðalhlutverki. Blaðafulltrúi leikkonunnar segir ekkert ákveðið um hlutverkið, en getur ekki staðfest að leikkonan muni heiðra samkomu- lag sitt við framleiðendurna. Batman tek- in upp í Imax Nokkur atriði í næstu Batman mynd, The Dark Knight munu vera tekin upp með Imax tækni. Eitt þessara atriði verður atriðið þar sem Joker, óvinur Batman er kynntur til leiks. Imax kvikmyndahús eru 280 talsins út um allan heim, en þau bjóða upp á mun stærri og skýrari skjái en gengur og gerist og þannig er hægt að gera nokkuð flottar brellur séu kvikmyndir teknar sérstaklega upp fyrir skjáina. Leikstjórinn Christoph- er Nolan segir að Imax sé framtíð hasarmynda. „Það er ótrúlegt að sjá kvikmynd í Imax og allt önnur upplifun fyrir áhorfendur. Ég vildi að við gætum gert alla myndina með þessum hætti,“ segir leikstjórinn. Ekki uppvakningar eins og við þekkjum þá Leikarinn Michael Madsen óttast að myndin Grindehouse verði jafnvel banabiti Sin City 2. Frank Miller segir að gerð myndarinnar tefjist. FÖSTudagur 1. júní 2007DV Bíó 59 GrindEhousE að Granda sin City 2 Michael Madsen Óttast að ekkert verði af Sin City 2 sökum grindehouse. Segir handritið klárt Frank Miller telur að þó nokkrar tafir verði á myndinni en hún verði án efa gerð. Johnny Depp og Antonio Banderas Eru orðaðir við hlutverk í Sin City 2 ásamt rachel Weisz. Kannabisefni Erfitt að nálgast þau á íslandi, þar sem íslendingar eru meira gefnir fyrir áfengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.