Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 19
DV Helgarblað FÖSTudagur 1. júní 2007 19
Sigurinn breyttiSt í martröð
Gólan-hæðirnar
mikilvægar í hernaði
Gólan-hæðir eru um 1.200 ferkílómetra svæði sem tengir
saman landsvæði Sýrlands, Ísraels, Jórdaníu og Líbanons. Frá
stofnun Ísraels voru Gólan-hæðir undir stjórn Sýrlendinga
enda á sýrlensku landsvæði. Útsýni frá hæðunum er stórkost-
legt og hernaðarlega afar mikilvægt enda sést greiðlega langt
inn í bæði löndin þar sem hæðirnar rísa allt að 1.000 metrum
yfir Galileu-hafi. Að loknu sjálfstæðisstríðinu árið 1949 þar
sem Ísraelar ráku Sýrlandsher inn á eigið landsvæði undir-
rituðu nágrannaþjóðirnar samkomulag sem átti að tryggja
vopnahlé þrátt fyrir að Sýrlendingar héldu yfirráðum yfir
hæðunum. Í áraraðir notuðu Sýrlendingar yfirburðaaðstöðu
sína á Gólan-hæðum til að ráðast á ísraelska bændur á á svo-
kölluðum afvopnuðum svæðum við landamæri landanna
auk þess að skjóta á sjómenn í Galileu-hafi. Bæði í kjölfar sex
daga stríðsins og Yom Kippur-stríðsins árið 1973 flýðu arabar
svæðið unnvörpum á meðan Ísraelar fluttu inn og eru þeir
nú líklega yfir 200.000.
gaza-svæðið
Gaza-svæðið er rúmlega 360 ferkílómetra rönd við strönd
Miðjarðarhafsins með 11 kílómetra landamæri við Egypta-
land og 51 kílómetra landamæri við Ísrael. Gaza var frá
stofnun Ísraelsríkis undir stjórn Egypta sem meðal ann-
ars notuðu svæðið til að skipuleggja árásir við landamæri
Ísraels. Íbúar svæðisins eru um 1,5 milljónir talsins, um ein
milljón eru flóttamenn og Palestínuarabar um 500 þúsund.
Eftir Sinaí-stríðið 1956 náðu Ísraelar svæðinu á vald sitt
en létu það af hendi í kjölfar alþjóðlegs þrýstings. Eftir sex
daga stríðið náðu Ísraelar Gaza á vald sitt á ný og settust
þar að. Friður hélst þar í skamman tíma því bardagar héldu
áfram og sjálfsmorðsárásir araba og árásir Ísraela hafa
gengið á víxl allt til dagsins í dag. Um 8.000 Ísraelar bjuggu
á Gaza, varðir af jafn mörgum hermönnum, allt til ársins
2005 þegar Ariel Sharon fyrirskipaði brottflutning Ísraela
frá svæðinu, sem nú hefur verið notað til að skjóta eldflaug-
um inn í Ísrael.
Vesturbakkinn
bitbein í áratugi
Vesturbakkinn dregur nafn sitt af þeirri staðreynd að hann
er vesturbakki árinnar Jórdan sem rennur milli Ísraels og
Jórdaníu. Þegar Sameinuðu þjóðirnar skiptu upp Palest-
ínu árið 1947 í svæði araba og svæði gyðinga með Jerús-
alem undir stjórn Sameinuðu þjóðanna, fór mestur hluti
Vesturbakkans til arabanna. Eftir sjálfstæðisstríð Ísraela
1948 náðu Jórdanar Vesturbakkanum öllum á vald sitt og
varð hann hluti af jórdanska konungsdæminu. Upp úr 1990,
að frumkvæði Yitzhaks Rabin, var hugmynd um að byggja
steypuvegg milli ísraelska og jórdanska umráðasvæðisins til
að koma í veg fyrir átök íbúa svæðisins. Í dag er veggurinn
rúmlega 700 kílómetra langur og er hvorki viðurkenndur af
Sameinuðu þjóðunum né öðrum yfirþjóðlegum stofnunum.
Um miðjan maí 1967 hafði eg-
ypski herinn safnað saman 100
þúsund hermönnum og þúsund
skriðdrekum á Sinai-skaganum.
Sameinuðu þjóðirnar héldu úti
eftirlitssveitum á sama stað sem
egypski herinn rak tafarlaust á
brott. Við tóku ögranir arabaríkj-
anna gegn Ísrael og fullyrti Nass-
er meðal annars að Ísraelar vildu
stríð, og að það væri ágætt því þeir
vildu það líka.
Sókn er besta vörnin
Snemma var ljóst að Ísrael gat
ekki beðið eftir að arabaríkin hefðu
innrás því það hefði leitt þau út í
hefðbundinn bardaga þar sem ísr-
aelski herinn hefði þurft að berjast
samtímis á þremur vígstöðvum,
auk þess sem bardagar í heima-
landinu hefðu aukið hættu á mann-
falli meðal óbreyttra borgara.
Klukkan 08.45 að morgni 5.
júní, þegar sól var að rísa í Egypta-
landi og flestir hershöfðingjar voru
fastir í reglulegri umferðarteppu
á leið til vinnu, flugu orrustuþot-
ur Ísraela í átt að stærsta og valda-
mesta nágrannanum. Mirage III
þoturnar sem Ísraelar höfðu áður
keypt af Frökkum, náðu að forð-
ast ratsjárkerfi Egypta um tíma og
komu þeim að óvörum. Nokkr-
um klukkustundum síðar höfðu
Mirage-þoturnar náð að eyðileggja
309 af 340 orrustuþotum egypska
flughersins og sneru að því búnu
til baka. Þá gerði ísraelski herinn
landinnrás inn á Sinai-skagann og
Gaza-svæðið og tók það fljótt af.
Sjálfsblekking arabaríkjanna
Sjálfstraust arabaríkjanna var
mikið og almenningur gerði ráð
fyrir að sigur á Ísrael væri í raun
formsatriði. Egypsku stjórninni
var þó strax ljóst hvers kyns var eft-
ir skyndiloftárásirnar og sá að nið-
urlæging egypska hersins blasti
við. Fyrstu fréttir sem bárust Eg-
yptum voru þess efnis að Egypt-
ar hefðu unnið stórsigra og nán-
ast lagt ísraelska flugherinn í rúst.
Þetta var blekking af hálfu Egypta-
landsstjórnar sem virkaði á landa
hennar í nokkra daga.
Talið er að Nasser hafi einn-
ig talið Jórdönum trú um að þeir
væru að sigra Ísraelana. Í þeirri
trú samþykkti Abdullah Jórdan-
íukonungur að taka þátt í stríð-
inu. Þar áður höfðu Ísraelar reynt
að sannfæra Hussein um að halda
Jórdönum utan stríðsins. Flestum
heimildum ber saman um að Jór-
danar hafi reynt hvað þeir gátu til
að sleppa við að taka þátt í stríð-
inu. Sama gilti um Sýrlendinga
sem til að byrja með tóku þátt með
varfærnina að leiðarljósi og héldu
einungis árásum sínum áfram á
Gólan-hæðum.
Jórdanar falla
Að kvöldi fyrsta dags stríðsins
réðst jórdanski herinn inn í ísra-
elska hluta Jerúsalem með spreng-
ingum og skothríð en þar sem Ís-
raelar höfðu nærri öll völd í lofti
náðu þeir að skjóta niður flestar
orrustuþotur þeirra. Um miðnætti
sama dag réðust ísraelskir fót-
gönguliðar inn í jórdanska Jerús-
alem og náðu þar öllum völdum.
Á öðrum degi héldu Ísraelar áfram
að berjast gegn Egyptum á jörðu
niðri á Sinaí-skaganum. Á þriðja
degi var jórdanska hernum ýtt út
af Vesturbakkanum og alla leið yfir
ána Jórdan. Sama dag lýstu Sam-
einuðu þjóðirnar yfir að vopnahlé
gilti milli Jórdans og Ísraels.
Sýrlendingar hika og tapa
Sýrlenski herinn hafði stuttu
áður misst sex orrustuþotur í
skyndiárás Ísraela auk þess sem
Ísraelar náðu strax á öðrum degi
stríðsins að eyða flestum þotum
þeirra. Sýrlendingar náðu að forða
fáum þotum á herflugvelli fjarri
landamærum landanna, en þær
gerðu ekkert gagn það sem eftir
lifði stríðsins.
Tromp Sýrlendinga voru enn
Gólan-hæðirnar og það var virki
sem þeir höfðu lengi haldið og
styrkt. Gólan-hæðirnar standa á
klettahæð sem rís hæst um 700
metra yfir sjávarmáli með brött-
um hlíðum á tvo vegu og aflíðandi
hlíð á eina vegu. Aflíðandi hlíðin
var eina landleiðin að virkinu sem
var tæk að mati hershöfðingja ísra-
elska hersins sem voru klofnir í af-
stöðu sinni því sumir töldu að það
gæti kostað allt að 30.000 mannslíf.
Þegar á reyndi náðu Ísraelar hæð-
unum frekar auðveldlega með því
að senda fyrst inn skriðdrekasveit-
ir á meðan þotur gerðu linnulausar
loftárásir og fótgöngulið umkringdi
virkið. Sýrlendingar, sem hikuðu
við sóknarstríð og lögðu allt kapp á
varnarstríð töpuðu Gólan-hæðun-
um þegar þjóðirnar skrifuðu undir
vopnahlé 10. júní 1967.
Ný landamæri
Eftir tæplega sex sólarhringa
bardaga hafði ísraelski herinn
náð völdum á Gaza-svæðinu, Gól-
an-hæðum, Vesturbakkanum og
Sinaí-skaganum. Þar með gátu
Ísraelar stjórnað öllum helstu inn-
rásarleiðum inn í landið auk þess
sem þeir gátu komið í veg fyrir ill-
viðráðanlegar árásir ofan úr Gól-
an-hæðunum. Siglingaleiðinni í
gegnum Tiran-sundið var tryggð
auk þess sem siglingar í gegn um
Súez-skurðinn voru tryggðar. Jór-
danar misstu stjórn á Vesturbakk-
anum og Jerúsalem var undir fullri
stjórn Ísraela í fyrsta sinn í 2.000 ár.
Sigurinn var ótvíræður en ávöxtur-
inn var að mörgu leyti bitur. Þrjú
af fyrrnefndum fjórum átaka-
svæðum, Gaza-svæðið, Gólan-
hæðirnar og Vesturbakkinn hafa
verið uppspretta allflestra átaka
nágrannaþjóðanna frá lokum sex
daga stríðsins.
Skriðdrekar
Skriðdrekasveitir ísraela leggja af stað
inn á Sinai-skagann til að berjast við
Egypta í upphafi sex daga stríðsins.
Ariel Sharon og aðstoðarmenn
Frami herforingjans tókst á flug með glæstum sigri í sex daga
stríðinu sem síðar gerði hann að forsætisráðherra landsins.