Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Qupperneq 21
DV Umræða föstudagur 1. júní 2007 21 Engan bilbug að finna Þorgerður Katrín gunnarsdóttir menntamálaráðherra studdi dorrit Moussaieff forsetafrú í tröppunum upp að sviðinu á íslensku menntaverðlaununum sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Ingunnarskóla á miðvikudag. forsetafrúin lætur sig hvergi vanta, jafnvel þó hún þurfi enn að styðjast við hækjur eftir að hafa fótbrotnað illa í vetur. Dómstóll götunnar mynDin Á að leyfa trúfélögum að gefa samkynhneigð pör saman? P lús eð a m ínu s spurningin HvErsu stór Er síldargangan? „Hún er stærri en hún hefur verið síðustu ár. Það er hægt að slá því föstu að hún er vel á þriðju milljón tonna í íslenskri lögsögu,“ segir jóhann sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar. Er líf eftir framboð? Svona fyrir þá sem ekki ná kjöri. Svo virðist vera. Allavega hafa ráðherrar Samfylkingarinnar ver- ið duglegir að endurnýta gamla frambjóðendur Samfylkingarinnar sem ekki hafa náð inn á Alþingi. Við sjáum hvernig farið hefur fyrir þeim Kristrúnu Heim-isdóttur, Róberti Marshall og Einari Karli Haraldssyni. Öll hafa þau borið með sér von um að fara á þing, væntanlega landi og þjóð til heilla. Einhvern veginn hefur þjóð- in hins vegar farið á mis við þessa starfskrafta, allavega þar til nú. Kristrún Heim-isdóttir fór í prófkjör hjá Samfylkingunni og síðar á framboðs- lista. Ekki tókst þó nógu vel til. Flokksmönnum leist betur á gömlu þingmennina en hugsan- lega endurnýjun og því lenti hún neðarlega á lista. Svo leist kjósend- um ekki nógu vel á Samfylkinguna og því varð ekkert af því að hún færi á þing. En svo kom Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, nýlega orðin utanríkisráðherra, og kippti henni upp í ráðherra- bílinn. Fyrrver- andi frambjóð- andinn er orðinn aðstoðarmaður ráðherra. Ekki má svo gleyma Einari Karli Haraldssyni sem sumir hafa eignað kosningasigur Ólafs Ragnars Grímssonar í forsetakosn- ingunum 1996, ári eftir að sá hinn sami Ólafur var einn um- deildasti og jafnvel óvinsælasti stjórn- málamaður landsins. Ekki gekk Einari Karli jafn vel að selja sjálfan sig og þótt hann gæfi út heljarinnar blað í prófkjöri Samfylkingarinn- ar 2003 og lofaði því að fara í harða hreppapólitík í vegamálum fyrir Reykvíkinga sáu kjósendur í próf- kjöri Samfylkingarinnar ekki ljósið. Ekkert varð því af þingmennsku gamla ritstjórans í það skiptið. Þess í stað kom annar gamall ritstjóri, nýuppdubbaður ráðherra og kippti honum upp í ráðherrabílinn. Þar var Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráð- herra í uppskiptu iðnaðar- og við- skiptaráðuneyti, á ferð. Fyrrverandi frambjóðandinn er orðinn aðstoð- armaður ráðherra. Ekki var öllu lokið. Róberti Marshall gekk ágætlega í próf-kjöri eftir að hann hrökklaðist úr starfi hjá 365 þegar NFS var lögð niður eftir tæplega eins árs úthald. Kosningarnar gengu ekki nógu vel fyrir hann og sjá leikurinn var búinn. Kemur þá til sögu Siglfirðingurinn Kristján L. Möller, sem þekkir vel að- stæður afskekkts sveitarfélags hverra íbúar vilja tryggari samgöngur og fann sér sálufélaga í Vestmanna- eyingnum Róberti sem þekkir vel að- stæður afskekkts sveitarfélags þar sem íbúar vilja tryggari samgöng- ur. Fyrrverandi frambjóðandinn er orðinn aðstoðarmaður ráðherra. Endurnýttir aðstoðarmEnn DagFari Þau fá að aðstoða ráðherra Álver í Ölfus lesenDur Ólöf skrifar: Í fréttum síðustu daga hefur verið fjallað um að íbúar Ölfuss séu spenntir fyrir möguleikan- um um álver í sinni sveit. Þess- ar fréttir eru frábærar fyrir okkur Sunnlendinga. Það var ekki gæfu- spor sem Hafnfirðingar stigu þeg- ar þeir höfnuðu stækkun álvers Alcan og hér um bil ráku álver- ið úr bænum. En sannast þá hið fornkveðna, að eins manns dauði er annars brauð og íbúar í Ölfusi ættu þess vegna að taka álverinu fagnandi, sem Hafnfirðingar und- irrituðu dauðadóm yfir í kosning- unum í mars. Áltæknigarður á Suðurlandi sem myndi fullvinna ál, öfugt við önnur áver sem aðeins frum- vinna álið, yrði mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið. Stórskipahöfn í Þorlákshöfn yrði sömuleiðis kær- komin viðbót við þegar blómstr- andi landshluta. Við þurfum að hafna tilfinningarökum um nátt- úruvernd og skoða málið af skyn- semi. „að sjálfsögðu, ef við styðjum jafnrétti verða auðvitað allir að vera jafnir. Ég legg mikla áherslu á að þessu verði breytt. Ég gekk úr Þjóðkirkjunni og fór í fríkirkjuna á síðasta ári til að undir- strika þessa skoðun mína. Þjóðkirkjan hefur alls ekki staðið sig í þessum málaflokki og hefur verið allt of afturhaldsöm í þessu.“ anna s. björnsdóttir, 58 ára, ljóðskáld og kennari „Mér finnst alveg spurning hvort eigi að leyfa það innan þjóðkirkjunnar en innan annarra trúfélaga finnst mér að ætti að leyfa þetta. Það fer alveg eftir því hversu strangtrúað fólk er og hvort um er að ræða bókstafstrúarfólk, en svona almennt séð finnst mér að venjuleg trúfélög ættu að fá leyfi til að gefa samkynhneigð pör saman.“ benjamín Mark staisy, 19 ára, afgreiðslumaður „já mér finnst það. Þetta eru sjálfsögð mannréttindi og guð elskar alla. Ég held að þetta skipti trúaða samkyn- hneigða miklu máli og það verður að grípa til aðgerða hvort sem það er Þjóðkirkjan eða ríkið. Þjóðkirkjan á að skammast sín fyrir hvernig þeir hafa staðið að málum samkynhneigðra. Eyrún Heiða skúladóttir, 33 ára, afgreiðslukona HPI Savage X 4,1 RTR Fjarstýrður bensín-torfærutrukkur Nú á lækkuðu verði 48.900,- Tómstundahúsið Nethyl 2 Sími 5870600 www.tomstundahusid.is Óttalega geta sjónvarpsmenn verið sjálfumglaðir á stundum. Ég horfði nýverið á dægurmálaþátt- inn Ísland í dag þar sem þátta- gerðarfólkið kepptist við að brosa í góða veðrinu í Nauthólsvík. Er þátturinn var ríflega hálfnaður til- kynnti kvenkyns stjórnandi þáttar- ins það formlega að í lok þáttar hafi karlkyns stjórnandi þáttarins lofað að stinga sér ofan í kaldan sjóinn fáklæddur. Kom að því að stúlk- an tilkynnti áhorfendum að sam- starfsmaður sinn hafi brugðið sér afsíðis til að berhátta sig. Ekki veit ég hver tilgangur þessa myndbrots átti að vera. Beinlínis pínlegt var að horfa upp á drenginn á sunds- kýlunni einni fata og í kjölfarið var ekki síður pínlegt að hlusta á flissið í stúlkunni þegar hann trítlaði út í sjó. Innslagið var í heild sinni í út- liti eins og heimatilbúið myndband ungra elskhuga. Í hreinskilni sagt fannst mér þetta myndskeið ekk- ert erindi eiga við alþjóð og í besta falli flokka ég það sem afar hallær- islegt. Undrandi sjónvarpsáhorfandi hringdi: Berháttun og pínlegt flissPlúsinn fær Valgerður Sverrisdóttir fyrrverandi utanríkisráðherra fyrir að mæta í nýliðafræðslu Alþingis. Valgerður hefur verið ráðherra lengi en er nú orðin óbreyttur þingmaður á nýjan leik og þá er um að gera að rifja upp þá miklu kúnst.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.