Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 30
Íslenska landsliðið mun á laugar- dag leika gegn Liechtenstein í und- ankeppni Evrópumótsins, en bæði lið eru með þrjú stig í riðlinum. Ís- lenska liðið hefur fengið færri stig en vonir voru gerðar til og eru leik- menn liðsins væntanlega ákveðn- ir í að fá öll stigin á laugardaginn, enda má segja að leikurinn eigi að vera skyldusigur fyrir Ísland. Um er að ræða fyrsta landsleik Íslands á heimavelli á þessu ári. Geri ekki kröfu um byrjunar- liðssæti Veigar Páll Gunnarsson hefur haldið áfram þar sem frá var horf- ið með Stabæk. Á síðasta tíma- bili lék hann nánast óaðfinnanlega með liðinu og skoraði átján mörk í deildinni. Nú þegar átta umferðir eru búnar hefur Veigar þegar skorað fjögur mörk. „Formið er bara mjög gott, við í Stabæk erum nokkuð ánægðir með spilamennskuna það sem af er og ég er þokkalega sáttur við minn leik. Mér finnst eins og ég hafi haldið uppteknum hætti frá því í fyrra. Það var markmiðið og formið verður alltaf bara betra og betra.“ Aðspurður hvort hann geri ekki þá kröfu um að vera í byrjunarlið- inu segir Veigar að erfitt sé að gera þá kröfu. „Það er erfitt að gera kröfu um það, en ég hef aldrei átt jafn mikla möguleika að byrja inni á velli. Theodór Elmar Bjarnason er nýliði og Hannes er að spila í sömu deild. Ég er búinn að skora meira en hann en geri samt engar kröfur,“ segir Veigar og hlær. „Ég hef alltaf sagt og segi það enn, ég er sáttur við að vera í landsliðinu.“ Vinnum á laugardag Stemningin í landsliðshópnum hefur alltaf verið mjög góð þó það sé erfitt að hanga inni á hótelherbergi heilu og hálfu dagana. „Það getur tekið á að hanga á hóteli í allt að 10 daga, en mér finnst persónulega mjög gaman og hitta strákana. Það sem við gerum á milli æfinga er að spila. Í síðustu ferð gerðum við lítið annað. Það er ekki mikið að gera, en hérna þá röltir maður bara upp í keiluhöll og tekur einn léttan leik.“ Landsliðið dvelur á Hótel Loftleiðum sem er við hliðina á keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Væntingarnar til Íslenska liðsins hafa alltaf verið gríðarlegar. Stund- um aðeins of miklar að mati Veig- ars. „Við vinnum þennan leik á laug- ardaginn, eitt eða tvö núll. Fólk má ekki búast við einhverjum fimm núll sigri, það er held ég ekki hægt. Það eru alltaf miklar kröfur á landsliðið, mér finnst stundum of miklar kröfur gerðar til landsliðs- ins. Eins og í Noregi þar sem ég spila, þar eru leikmenn og aðrir að tala um hvað við Íslendingar eigum marga góða leikmenn. Þeim finnst þetta ekki alveg passa miðað við að á Íslandi búa þrjú hundruð þúsund manns. Miðað við hvað við eigum fína leikmenn þá er allt í lagi að gera smá kröfur en þær mega bara ekki vera of miklar. Það er dálítið stór krafa að Ísland eigi að komast í all- ar lokakeppnir,“ segir Veigar. Nú er að sjá hvort þessi frábæri leikmaður verði í byrjunarliði Íslands. Liechtenstein ekki formsatriði Gunnar Þór Gunnarsson er í landsliðshópi Íslands í annað sinn en hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Spánverjum á Mallorka í lok mars. Þessi ungi bakvörður viður- kennir að undir eðlilegum kring- umstæðum ætti íslenska liðið að hrósa sigri um helgina. „Við verðum að setja þær kröfur á okkur sjálfa að vinna þennan leik. Liechtensteinar hafa þó sýnt það að við munum ekki fá gefins sigur gegn þeim með því að vinna Lettana. Við megum ekki gleyma því að við erum innan gæsa- lappa bara Ísland og höfum aldrei efni á því að mæta með hálfum hug í neinn leik. Ef það gerist þá endar það illa,“ segir Gunnar. Hann er full- viss um að íslenski hópurinn muni ekki líta á Liechtenstein sem forms- atriði og segir að menn séu með hugann algjörlega við þetta verk- efni enda þótt Svíþjóð bíði hand- an við hornið. Gunnar er að vonum ánægður með að hafa haldið sæti sínu í íslenska hópnum en hann var einn af betri leikmönnum liðsins gegn Spánverjum. „Ég er bara mjög ánægður með að vera í þessum hóp og er mjög stoltur.“ Það má segja að ákveðin kyn- slóðaskipti séu í gangi hjá íslenska liðinu enda valdi Eyjólfur Sverrisson fjóra nýliða í hópinn fyrir þessa leiki gegn Liechtenstein og Svíþjóð. Auk þess eru tveir leikmenn í hópnum sem hafa leikið einn leik hvor. „Mér lýst mjög vel á þessa menn sem eru að koma núna. Ég er sannfærður um að þeir geti allir keppt um að halda sínu sæti í landsliðinu ef því er að skipta. Þetta er bara jákvætt, enda mikilvægt að huga að framtíðinni,“ sagði Gunnar Þór. Gunnar er uppalinn hjá Fram. Fyrir rúmu ári síðan hélt hann í at- vinnumennskuna og hefur leikið með Hammarby í Svíþjóð. „Það er mjög fínt og verður bara sífellt betra, mér líður vel í Stokkhólmi og kynn- ist borginni alltaf betur og betur.“ benni@dv.is, elvargeir@dv.is FÖSTudagur 1. júní 200730 Sport DV Undankeppnin fyrir Evrópu- mótið í knattspyrnu árið 1996 var fyrsta undankeppnin fyrir stór- mót sem Liechtenstein tók þátt í. Í þeirri keppni náði Liechtenstein 0- 0 jafntefli við Íra en skömmu síðar fékk landsliðið það orð á sig að vera auðveldur andstæðingur. Í undan- keppninni fyrir Heimsmeistara- mótið 1998 tapaði Liechtenstein fyrir Makedóníu 11-1. Félög frá Liechtenstein taka þátt í deildarkeppni í Sviss og framfar- irnar hafa verið töluverðar und- anfarin ár. Þeirra besti árangur í undankeppni stórmóts náðist fyrir HM 2006 þegar Liechtenstein vann báða leiki sína gegn Lúxemborg, náði jafntefli við Slóvakíu og Portú- gal og endaði með átta stig. Merkasti sigur Liectensteina kom í mars á þessu ári þegar þeir lögðu Letta að velli. Þetta var fyrsti sigur liðsins gegn þjóð sem hef- ur komist í undankeppni stórmóts en það var sóknarmaðurinn Mar- io Frick sem skoraði sigurmarkið. Þjálfari Letta sagði af sér í kjölfar- ið. Fimmtán af 24 leikmönnum liðsins spila með félagsliði frá Li- echtenstein. Landslið þjóðarinn- ar er í 134. sæti heimslistans, en Ísland er 38 sætum ofar, eða í 96. sæti. Fjórir leikmenn íslenska liðs- ins spila hér á landi. Lykilmaður Mario Frick er fæddur 7. sept- ember í Sviss á því herrans ári 1974. Hann er sóknarmaður sem leikur með Siena á Ítaliu og er markahæsti landsliðsmaður Li- echtensteina með ellefu mörk í 70 landsleikjum. Frick hóf ferilinn með FC Balzers í Liechtenstein en hann hefur fengið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína á Ítalíu. Frick var fyrsti leikmaður Liechtenstein til að leika knattspyrnu með erlendu fé- lagsliði en hann hefur einnig spilað í Austurríki og Sviss á ferlinum. Það þarf vart að taka það fram að Frick er lykilmaður í liði Liechten- stein. Hann féll þó í ónáð hjá fyrr- um landsliðsþjálfara þjóðarinnar, Ralf Loose, eftir undankeppnina fyrir HM 2002 og missti sæti sitt í liðinu. Eftir þjálfaraskiptin ári síðar snéri Frick aftur í landsliðið. Frick fór til Ítalíu árið 2000 þeg- ar ítalska liðið Arezzo keypti hann frá svissneska liðinu FC Zürich. Hjá Arezzo skoraði Frick sextán mörk í 23 leikjum og var keyptur til Verona ári síðar. Árið 2002 festi Ternana kaup á kappanum þar sem hann lék í fjögur ár. Þegar Ternana féll úr næst efstu deildinni á Ítalíu færði Frick sig um set og fór til Siena í júlí í fyrra. Frick var um tíma markahæsti leikmað- ur efstu deildarinnar á Ítalíu. Um tíma var því haldið fram að Frick ætlaði sér að hætta í knatt- spyrnu árið 2003 af persónuleg- um ástæðum. Síðar kom í ljós að ástæðan fyrir þeim fyrirætlunum var sú að maður vopnaður kúbeini braust inn á heimili Frick og hafði í hótunum við hann og fjölskyldu hans. dagur@dv.is Liechtenstein hefur ekki riðið feitum hesti frá undankeppnum stórmóta og hafa mest fengið átta stig: Merkasti sigurinn var sigur á Lettum Skærasta stjarnan Mario Frick er Eiður Smári þeirra Liechtensteina. Hér er hann í baráttu við david Beckham í leik Englands og Liechtenstein árið 2003. Myndi spila frítt Með leeds Ísland leikur á laugardaginn gegn Liechtenstein í undankeppni Evrópumótsins. DV hitti þá Veigar Pál Gunnarsson og Gunnar Þór Gunnarsson á Hótel Loftleiðum í gær, en þar dvelur íslenski hópurinn. GetuM ekki Mætt Með hálfuM huGa í neinn leik Veigamikill leikmaður Veigar Páll gunnarsson býst ekki við stórsigri íslands á laugardag en reiknar þó með þremur stigum í hús. Ekki gefins sigur gunnar Þór segir að íslenska liðið fái ekkert út úr leiknum á laugardag án þess að leggja sig fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.