Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 34
FÖSTudagur 1. júní 200734 Sport DV Golf er sífellt vaxandi íþrótt hér á landi sem annars staðar. Iðkend- um fjölgar ár frá ári og það á ekki síður við um iðkendur sem eiga við fötlun að stríða. Skipulagðar æfing- ar fyrir golfara með fötlun fara fram í Básum á hverjum miðvikudegi á milli klukkan 16 og 18. Umsjónar- maður verkefnisins, sem er á veg- um Golfsamtaka fatlaðra á Íslandi (GSFÍ), er Hörður Barðdal. Golfæfingar fyrir fatlaða hófust fyrir tíu árum síðan og auk Harð- ar eru valinkunnir golfþjálfarar á staðnum til að leiðbeina krökk- unum. Golfsamband Íslands og Íþróttasamband fatlaðra stofnuðu á sínum tíma Golfsamtök fatlaðra og Hörður segir að þörfin sé mikil. „Golfíþróttin er samkvæmt skýrslum önnur fjölmennasta íþróttin á Íslandi. Það kæmi mér nú ekki á óvart þótt hún væri fjöl- mennust. Þá hlýtur að vera svipað hlutfall milli fatlaðra og ófatlaðra í þessari íþrótt eins og öðrum. Það kæmi mér ekki á óvart að á milli 150 til 200 fatlaðir einstaklingar væru farnir að iðka golf. Það er ekki eingöngu fyrir okkar tilstilli. Íþróttin sjálf dregur einstakl- ingana að sér. Við erum bara hluti af þessu og við viljum veita fólki möguleikann á því að iðka íþrótt- ina þrátt fyrir fötlun sína,“ segir Hörður og bætir við að nauðsyn- legt væri að foreldrar og börn geti stundað sama áhugamál þrátt fyrir fötlun eins fjölskyldumeðlims. „Mér finnst skemmtilegast að sjá að foreldrar koma með börnin sín hingað til að þau geti farið sam- an í golf. Börnin eiga ekki að þurfa að vera heima á meðan foreldrarnir spila golf, eingöngu vegna þess að barnið er fatlað. Svo er ekki verra ef barnið getur dregið foreldrana með sér í golf. Þetta er tilgangur okkar,“ segir Hörður. Frá níu ára upp í áttrætt Æfingarnar í Básum stunda ein- staklingar með ýmis konar fötlun og um tíu einstaklingar stunda æf- ingarnar reglulega. Iðkendur eru á öllum aldri, eða allt frá níu ára upp í áttrætt. Hörður segir að GSFÍ ætli sér að leggja áherslu á sitjandi golf í sumar. En það er golf fyrir þá sem eru bundnir við hjólastól. „Við erum komin með stól sem hægt er að sitja í og slá úr, fyrir fólk sem er lamað fyrir neðan mittið. Þetta er möguleiki sem ekki hefur verið boðið upp á áður og við ætl- um að hafa þetta í sumar. Við heyr- um alltaf um slys á ungu fólki sem hryggbrotnar og því er þá kippt út úr flestri starfsemi en þarna er einn möguleiki. Þeir eru auðvitað fjöl- margir hjá Íþróttasambandi fatl- aðra en golfið er einn í viðbót,“ segir Hörður. „Það er annar hópur sem við vilj- um líka fá inn í sumar og það eru þeir sem hafa misst aðra höndina. Því að þeir geta spilað á báða vegu, bæði með forhönd og bakhönd. Það er minnsta mál í heimi. Það þarf leiðréttingar hvað varðar tæknina og annað en við höfum þekkinguna til að leiðbeina þessu fólki. Við vit- um alveg nákvæmlega hvernig þetta er gert,“ segir Hörður. Hann segir að aukningin hafi verið mikil ár frá ári. „Það er tíu til fimmtán prósenta aukning á hverju einasta ári. Við byrjuðum að vísu í Hafnarfirði og við vorum með nem- endur þar sem bjuggu á því svæði. Svo þegar við fluttum hingað í þessa aðstöðu þá var eins og þeir krakkar hafi ekki skilað sér hing- að. Ekki eins og við vorum að von- ast til. Þannig að líklega verðum við að setja upp aðstöðu þar aftur,“ segir Hörður en æfingarnar í Básum eru einu æfingarnar sem skipulagðar eru fyrir golfara með fötlun. Hann segir þó að fyrirhugað sé að fara til Akureyrar og halda nám- skeið þar. „Við viljum koma þessu út um allt, því okkar fólk er úti um allt.“ Fékk lömunarveiki níu ára Hörður fékk lömunarveiki árið 1955, þá níu ára gamall. Hann segist ekki hafa smitast af golfdellunni ung- ur. „Ég rakst einhvern tímann á golf- sett í geymslunni heima hjá mér. Ég tók eina kylfuna og var að hamast við að slá og allt í einu hitti ég boltann og hann flaug. Þetta einhvern veginn sat í mér þar til ég hafði efni á að kaupa mér golfsett og átti möguleika á að spila,“ segir Hörður. Hann segir að þeir sem hafa áhuga á að byrja að æfa golf þurfi aðeins að mæta á æfingu. „Við erum með áhöldin og við erum með golf- bílinn fyrir þá sem eru sitjandi,“ segir Hörður og bætti við að þeir sem eru sitjandi ættu að hafa samband við Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur hjá ÍF eða senda tölvupóst á hordur@ ehp.is. Hann sagði einnig að sama hver fötlunin væri, allir fengju þá aðstoð sem þeir þyrftu við að spila golf við góðar aðstæður. dagur@dv.is LÁTA FÖTLUN EKKI AFTRA SÉR Spáð í spilin Snæbjörn Áki og Sveinbjörn vanda til verksins þegar kemur að því að pútta. Allir vegir færir Hörður Barðdal sýndi góð tilþrif á golfbílnum góða sem tilvalinn er fyrir fólk í hjólastól. Efnilegir spilarar Páll Ágúst, Snæbjörn Áki og Sveinbjörn eru hér ásamt golfkennaranum Sigurmanni á grafarholtsvelli. Skipulagðar æfingar fyrir golfara með fötlun eru viku- lega í Básum í Grafarvogi. Nýlega eignuðust Golfsam- tök fatlaðra bíl sem gerir sitjandi fólki kleift að spila. DV leit við á æfingu í vik- unni og ræddi við Hörð Barðdal, umsjónarmann verkefnisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.