Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Qupperneq 35
DV Sport FÖSTudagur 1. júní 2007 35
LÁTA FÖTLUN EKKI AFTRA SÉR
Um síðustu helgi náðu feðg-
arnir Raj og Rafn Kumar Bonifac-
ius þeim merka árangri að vinna
Íslandsmótið í tvíliðaleik karla í
tennis. Það sem gerir þetta afrek
enn merkilegra er að Rafn Kumar
er aðeins tólf ára gamall.
Mótið um síðustu helgi var
þriðja mótið sem þeir feðgar spila
á saman í tvíliðaleik. Þeir spiluðu
fyrst saman fyrir tveimur árum síð-
an, en þá var Rafn Kumar á ellefta
aldursári. Þeir unnu mót á Þróttara-
vellinum í fyrra en sigurinn um síð-
ustu helgi var fyrsti sigur þeirra á Ís-
landsmóti.
Raj Bonifacius er fæddur í
Bandaríkjunum en flutti hingað
til lands ásamt fyrrverandi konu
sinni árið 1993. Hann ílengdist á Ís-
landi, er nú giftur íslenskri konu og
fékk íslenskan ríkisborgararétt árið
1998.
Raj hefur lengi verið einn besti
tennisspilari landsins en tennis var
þó ekki fyrsta íþróttin sem hann
æfði. „Ég var mikið í hafnarbolta
og hlaupum. Þegar foreldrar mínir
skildu þá flutti pabbi minn til aust-
urhluta Bandaríkjanna og rétt hjá
heimilinu var stór tennisvöllur. Það
var aðeins lengra í hafnarboltavöll-
inn á þessum tíma og maður stund-
aði bara það sem var manni næst,“
sagði Raj sem hóf að stunda tennis
þrettán ára gamall.
Hann hóf að þjálfa tennis strax
og hann kom hingað til lands og
segir að mikil breyting hafi verið
hér á landi á þeim tíma. „Það var
mikil aukning í tennis þegar tenn-
ishöllin var byggð árið 1994. Þá
varð alveg sprenging í íþróttinni,“
sagði Raj.
Raj þjálfar tennis hjá Víkingi en
á síðustu tíu árum hefur hann einn-
ig verið yfirþjálfari hjá öllum tenn-
isfélögum á höfuðborgarsvæðinu á
veturna. Auk þess hefur hann séð
um landsliðsæfingar fyrir Tennis-
samband Íslands.
Raj er 37 ára gamall og er enn
að keppa á fullum krafti. „Ég mun
aldrei hætta að spila. Ég hef aldrei
meiðst í þessari íþrótt. Á meðan ég
meiðist ekki illa þá held ég áfram
að spila,“ sagði Raj.
Viðskipta-, hag- og
fjármálafræðingur
Rafn Kumar byrjaði að æfa tenn-
is með skipulögðum hætti þegar
hann var fimm ára gamall. Sam-
hliða því æfði hann körfubolta og
fótbolta en þegar hann
var tíu ára hætti
hann í boltagrein-
unum og snéri sér
alfarið að tennis.
Faðir hans segir að
miður sé að hann hafi
þurft að velja á milli íþrótta-
greina svo ungur.
„Hann fór erlendis
að keppa og allur tím-
inn fór í að undirbúa
keppnir erlendis.
Það var því minni
tími til að stunda
hinar íþróttirn-
ar af því að þær
æfingar voru líka fjórum eða fimm
sinnum í viku. Það þarf að velja á
milli á unga aldri, því miður. Sem
þjálfari reyni ég að hafa alhliða æf-
ingar fyrir flesta mína nemendur.
Ég tel mig vita hvað þá skortir ef
þeir eru eingöngu í tennis. Ég reyni
að hafa æfingar sem efla grófar og
fínar hreyfingar. Ég vona bara að
það dugi þeim að vera í tennis. En
það eru líka krakkar sem vilja bara
vera í tennis og vilja ekki æfa neinar
aðrar íþróttir á móti,“ sagði Raj.
Raj keppti mikið í Ameríku og
í Evrópu áður en hann flutti til Ís-
lands. „Þegar ég var átján eða nítj-
án ára gamall sá ég að þetta var
mjög erfitt, sérstaklega fjárhags-
lega. Það kostar mikið að ferðast
á milli staða. Þannig að ég ákvað
frekar að fara í háskóla,“ sagði Raj.
Hann nam viðskipta-, hag- og
fjármálafræði við háskóla í Virgin-
íu. Raj segir þó að tennis eigi huga
hans allan. „Ég reyni bara að nýta
mér þann tíma og það tækifæri á
meðan ég hef orku og ánægju af því
að gera það sem ég er að gera.
Það er gaman að sjá þá
þróun sem hefur verið á
undanförnum árum en
áður en ég kom hingað
voru engar alþjóðleg-
ar keppnir fyrir karla og
konur. En í dag eru mögu-
leikar sem gera lands-
liðinu kleift að fara og
keppa í Davis Cup
og Fed Cup, sem
eru landsliðskeppnir.
Svo eru krakkar að keppa
á Evrópumótum árlega
og fara í æfingabúðir til
Spánar, Frakklands og
Danmerkur.
Það er miklu meiri
uppbygging í kringum
tennis í dag. Það sem er
að gerast í kringum tenn-
is í dag er að við erum með
almennilega innanhúsað-
stöðu,“ sagði Raj, sem hef-
ur þjálfað bæði karla- og
kvennalandslið Íslands
síðustu tíu ár.
Arnar Sigurðsson er
sá íslenski tennisspilari
sem hvað lengst hef-
ur náð en
hann er kominn inn á topp
700 á heimslistanum. Raj seg-
ir að það sé nauðsynlegt fyrir
tennis hér á landi að eignast
sterka fyrirmynd. „Við erum
öll að fylgjast með honum.
Vonandi kemst hann sem
lengst svo við höfum þessa fyr-
irmynd,“ sagði Raj.
Gaman að spila með
pabba
Rafn Kumar verður þrettán
ára síðar á þessu ári og er nem-
andi í Austurbæjarskóla. Hann ber
því vel söguna að spila með pabba
sínum og segir hann ekkert vera
erfiðan við sig. „Það er bara gaman
að spila með pabba,“ sagði Rafn.
Rafn Kumar er einn efnilegasti
tennisspilari landsins og fór meðal
annars á heimsmeistaramót barna
og unglinga í desember, fyrstur Ís-
lendinga. Hann hóf að keppa á
mótum erlendis níu ára gamall.
Raj segir að Rafn hafi bókstaf-
lega alist upp við tennis. „Hann
fæddist inn í þetta. Hann var ekki
með dagmömmu þegar hann var
yngri og var bara úti í vagni þegar
ég var að þjálfa tennis, sex mánaða
gamall. Þegar mamma hans kláraði
fæðingarorlofið var hann bara með
mér úti á tennisvelli,“ sagði Raj að
lokum. dagur@dv.is
Feðgarnir Raj og Rafn Kumar Bonifacius náðu þeim einstaka áfanga um síðustu helgi að verða
Íslandsmeistarar í tvíliðaleik karla í tennis en Rafn Kumar er aðeins tólf ára. DV tók hús á þeim
feðgum á æfingasvæðinu hjá Víkingi.
Tennisfeðgar raj og rafn
Kumar hafa þrisvar keppt
saman í tvíliðaleik og
unnið tvö mót.
Hafðu þetta rafn Kumar veitir föður
sínum verðuga keppni á tennisvellin-
um.
BONIFACIUS-
FEÐGARNIR
Efnilegur spilari rafn
Kumar tók þátt í heimsmeist-
aramóti í Bandaríkjunum í
desember á síðasta ári.
Reynslubolti raj hóf að spila
tennis þrettán ára og hefur þjálfað
samhliða iðkun sinni frá því hann
kom til landsins árið 1993.