Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 41
Starfsferill
Guðni fæddist á Brúnastöðum í
Hraungerðishreppi 9.4. 1949 og ólst
þar upp við öll almenn sveitastörf.
Hann stundaði nám við Héraðsskól-
ann á Laugarvatni 1963-66 og lauk bú-
fræðiprófi frá Hvanneyri 1968.
Guðni vann almenn landbúnað-
ar- og verkamannastörf 1968-76, var
bústjóri að Hamri í Mosfellssveit 1976,
vann við mjólkureftirlit hjá Mjólkur-
búi Flóamanna 1976-87, var varaþm.
Framsóknarflokksins í Suðurlands-
kjördæmi 1986, alþm. þar frá 1987-
2003, alþm. Suðurkjördæmis frá
2003, var landbúnaðarráðherra frá
28.5.1999-24.5. 2007, var varaformað-
ur Framsóknarflokksins frá 2001 og er
nú formaður flokksins frá því Jón Sig-
urðsson sagði af sér formennsku þann
23.5. sl.
Guðni var formaður ungmennafé-
lagsins Baldurs í Hraungerðishreppi
1969-74, formaður FUF í Árnessýslu
1972-75, formaður SUF 1980-82 og
formaður kjördæmasambands fram-
sóknarmanna á Suðurlandi 1979-86.
Hann sat hann í stjórn Hollustuvernd-
ar ríkisins 1982-86, í bankaráði Búnað-
arbanka Íslands 1990-98 og formað-
ur1990-93, sat í stjórn Stofnlánadeildar
landbúnaðarins 1990-97 og formaður
1990-93, formaður Lánasjóðs land-
búnaðarins 1998-99, sat í fulltrúaráði
Sólheima í Grímsnesi 1990-94, situr
í Þingvallanefnd frá 1995, í forsætis-
nefnd Alþingis frá 1995, sat í sam-
göngunefnd Alþingis 1991-95, land-
búnaðarnefnd 1991-99 og formaður
hennar 1995-1999, í heilbrigðis- og
trygginganefnd 1995-99, og í sérnefnd
um stjórnarskrármál 1995-1996.
Guðni var sæmdur stórriddara-
krossi fálkaorðunnar af forseta Íslands
árið 2005.
Fjölskylda
Guðni kvæntist 2.6. 1973 Margréti
Hauksdóttur, f. 3.4. 1955. Hún er dótt-
ir Hauks Gíslasonar, sem nú er látinn,
bónda á Stóru-Reykjum í Flóa, og k.h.,
Sigurbjargar Geirsdóttur, bónda þar
og húsfreyju.
Börn Guðna og Margrétar eru
Brynja, f. 7.3. 1973, framreiðslumaður
í Reykjavík, en sambýlismaður henn-
ar er Auðunn Sólberg Valsson, f. 8.3.
1964, matreiðslumeistari og eiga þau
þrjú börn, Guðna Val, Sölku Margréti
og Óliver Tuma; Agnes, f. 20.11. 1976,
bankamaður, búsett á Selfossi en börn
hennar er Freyja og Snorri; Sigurbjörg,
f. 15.4. 1984,bankamaður, búsett í
Reykjavík en maður hennar er Arnar
Þór Úlfarsson.
Systkini Guðna eru Ásdís, f. 6.8.
1942, starfsmaður við Ljósheima, bú-
sett á Selfossi; Þorvaldur, f. 17.9. 1943,
vélvirki á Stokkseyri; Ketill Guðlaug-
ur, f. 14.2. 1945, bóndi á Brúnastöð-
um; Gísli, f. 12.1. 1946, d. 23.12. 2006,
iðnverkamaður á Selfossi; Geir, f. 11.1.
1947, bóndi og oddviti í Gerðum í
Gaulverjabæjarhreppi; Hjálmar, f. 15.2.
1948, bóndi á Langsstöðum; Auður, f.
12.9. 1950, húsfreyja í Teigi í Fljótshlíð;
Valdimar, f. 14.10. 1951, verkamaður
á Selfossi; Bragi, f. 27.11. 1952, frjó-
tæknir á Selfossi; Guðrún, f. 13.1. 1954,
sjúkraliði á Selfossi; Tryggvi, f. 1.4.
1955, fangavörður, búsettur á Selfossi;
Þorsteinn, f. 26.4. 1956, bóndi á Syðra-
Velli í Gaulverjabæjarhreppi; Hrafn-
hildur, f. 1.9. 1957, húsfreyja á Stöðul-
felli í Gnúpverjahreppi; Sverrir, f. 18.4.
1959, starfsmaður Samskipa, búsettur
á Selfossi; Jóhann, f. 2.2. 1963, fanga-
vörður, búsettur á Selfossi.
Foreldrar Guðna: Ágúst Þorvalds-
son, f. 1.8. 1907, d. 12.11. 1986, alþm.
og bóndi að Brúnastöðum í Flóa, og
k.h., Ingveldur Ástgeirsdóttir, f. 15.3.
1920, d. 6.8. 1989, húsfreyja.
Ætt
Ágúst var bróðir Kristjönu Guðrún-
ar, móður Guðjóns Guðmundssonar,
fyrrv. alþm. Ágúst var sonur Þorvalds,
sjómanns á Eyrarbakka Björnssonar,
b. á Bollastöðum Björnssonar, b. á Læk
og í Auðsholti, bróður Knúts, langafa
Hannesar þjóðskjalavarðar og Þor-
steins hagstofustjóra Þorsteinssona.
Þorvaldur var sonur Björns, b. í Vorsa-
bæ Högnasonar, lrm. á Laugarvatni
Björnssonar, bróður Sigríðar, móður
Finns Jónssonar biskups, föður Hann-
esar biskups, ættföður Finsensættar-
innar. Móðir Björns Þorvaldssonar
var Ólöf Halldórsdóttir, systir Tómas-
ar, langafa Hannesar Þorsteinssonar.
Móðir Ágústs var Guðný Jóhannsdótt-
ir, b. í Eyvakoti Magnússonar, b. á
Grjótlæk Bjarnasonar. Móðir Magn-
úsar var Elín Jónsdóttir, b. á Stokkseyri
Ingimundarsonar, b. í Hólum, Bergs-
sonar, ættföður Bergsættar Sturlaugs-
sonar. Ingveldur var dóttir Ástgeirs, b.
á Syðri-Hömrum Gíslasonar, b. í Bitru
Guðmundssonar, b. á Löngumýri Arn-
bjarnarsonar, bróður Ögmundar, föð-
ur Salvarar, langömmu Tómasar Guð-
mundssonar skálds.
Móðir Ingveldar var Arndís, syst-
ir Jóhanns, föður Kjartans, fyrrv. ráð-
herra. Arndís var dóttir Þorsteins, b. á
Berustöðum í Holtum Þorsteinssonar,
b. á Berustöðum Jónssonar. Móðir Þor-
steins var Guðlaug Helgadóttir, syst-
ir Guðmundar, afa Nínu Sæmunds-
son listmálara. Bróðir Guðlaugar var
Bjarni, langafi Guðbjarna, föður Sig-
mundar, fyrrv. háskólarektors. Móðir
Arndísar var Ingigerður, systir Árna,
afa Jóns Dalbú Hróbjartssonar, pr. í
Hallgrímskirkju. Ingigerður var dótt-
ir Runólfs, b. á Áshóli Runólfssonar,
b. á Brekkum í Holtum Nikulássonar.
Móðir Runólfs á Brekkum var Mar-
grét Runólfsdóttir, b. í Sandgerði Run-
ólfssonar, föður Þorgerðar, langömmu
Ólafs Friðrikssonar og Haraldar Níels-
sonar prófessors. Dóttir Runólfs var
Guðrún, langamma Auðar, fyrrv. borg-
arstjóra og ráðherra, og Jóns Auðuns
dómprófasts.
DV Ættfræði föstudagur 1. júní 2007 41
Framvegis mun DV birta tilkynning-
ar um stórafmæli, afmælisbörnum
að kostnaðarlausu. Tilkynningarnar
munu birtast á ættfræðiopnunni sem
verður í helgarblaði DV á föstudög-
um. Með stórafmælum er hér átt við
40 ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75 ára,
80 ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og 100
ára afmæli.
Þær upplýsingar sem hægt er að
koma á framfæri í slíkum tilkynn-
ingum eru nafn afmælisbarnsins,
fæðingardagur þess og ár, starfsheiti,
heimilisfang, nafn maka, starfsheiti
maka, nöfn barna (án fæðingardags,
starfsheitis eða maka), nöfn foreldra
afmælisbarnsins og tilkynning um
gestamóttöku eða önnur áform varð-
andi afmælisdaginn.
Á hverjum föstudegi verða birtar
slíkar tilkynningar um þá sem eiga
afmæli á föstudeginum sem blaðið
kemur út á til fimmtudags í vikunni á
eftir. Þannig verða tilkynningarnar
um afmæli á sjálfum útgáfudeginum
og næstu viku fram í tímann.
Senda skal afmælistilkynningar á
netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarn-
ar verða að berast blaðinu eigi síðar
en kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar
brýnt að þeim fylgi skýr andlitsmynd
af afmælisbarninu.
AfmælistilkynningAr á ættfræðisíðu
MAÐUR VIKUNNAR
Guðni Ágústsson
formaður Framsóknarflokksins
Veisla í miðborginni
Veislukompaníið er alhliða veislu- og
fundaþjónusta, nýr og spennandi valkostur
í miðborginni. Þú gengur að fyrsta flokks
húsnæði með öllum tæknibúnaði, frábærum
veitingum og þjónustu á besta stað í bænum.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
Guðni Ágústsson, kankvísi
framsóknarmaðurinn frá
Brúnastöðum, stendur nú á
sínum stóru pólitísku kross-
götum þar sem vegir liggja til
allra átta, svo vitnað sé í Indr-
iða G., annan skemmtilegan
framsóknarmann. Á sama tíma
og Guðni lýkur átta ára ráð-
herradómi tekur hann við for-
ystu stjórnmálaflokks sem er
vígamóður eftir innri átök og
í sögulegri fylgislægð. Guðna
bíður nú það erfiða verkefni að
sannfæra þjóðina um að flokk-
ur sem var stofnaður um ung-
mennafélög, sanvinnurekstur
og hagsmuni bænda árið 1916,
eigi enn fullt erindi við Íslend-
inga á 21. öldinni.