Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 43
Meistarinn
Þórunn Sævarsdóttir Matgæðingurinn
DV Helgarblað föstudagur 1. júní 2007 43
„Þessar uppskriftir eru ættað-
ar frá Napólí á Ítalíu en ég smakkaði
þennan rétt fyrst þar,“ segir Þórunn
Sævarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
matgæðingur vikunnar. „Ég er mikið
fyrir ítalskan mat en við hjónin bjugg-
um þar í landi um tíma. Ég elda hann
því mikið.“ Þórunn segist hafa gaman
af því að elda, það er að segja þegar
hún hafi tíma til þess. „Ég vinn aðeins
of mikið og vildi því gera meira af því
að elda. En mér finnst það mjög gam-
an og að fá gesti í mat. Það er líka skil-
yrði fyrir því að maður hafi gaman af
eldamennsku að það sé einhver sem
nennir að borða.“ Þórunn segir að
þau séu fjögur í heimili og að nokkuð
sé um að þau fái fólk í mat, bæði vini
og ættingja.
Parmigiana di Melanzane
(bakað eggaldin með tómat og mozzarella)
Olía
2-4 eggaldin skorin í sneiðar, steikt í
olíu og látið renna af þeim á
eldhúspappír
tómatsósa
Mozzarella-ostur í sneiðum
Parmesan-ostur rifinn
fersk basilíka
Setjið tómatsósu í botninn á eld-
föstu móti, setjið síðan lag af eggald-
inum, lag af mozzarella-osti og tó-
matsósu, stráið parmesan-osti yfir og
nokkrum laufum af basilíku. Endur-
takið tvö til þrjú lög af þessu og endið
á þykku lagi af tómatsósu, osti og bas-
ilíku. Bakið við 190°c í 20-25 mínútur.
Tómatsósa
Olía
2 gulrætur
2 laukar
2 sellerístönglar
steinselja
2 dósir niðursoðnir tómatar
salt og pipar
Gulrætur, laukur, sellerí og stein-
selja saxað smátt og mýkt í olíu, tóm-
ötum bætt út í, krydd.
Brusketta með tómat
Þétt brauð skorið í sneiðar og
glóðað í ofni eða ristað og
brauðsneiðarnar síðan nuddaðar
með hvítlauk
tómatmauk
tómatar afhýddir og fræhreinsaðir
fersk basilíka, laufin rifin niður
salt og pipar
Ólífuolía
öllu blandað saman og sett ofan á
brauðsneiðar
Eggaldinréttur
frá Napólí
Ég skora á vinkonu mína,
Sigurlaugu Jónasdóttur, að
vera næsti matgæðingur.
Argentína
og Malbec
spænskir innflytjendur hófu víngerð í argentínu á sex-tándu öld en þeir fundu kjöraðstæður við rætur andesfjalla. Á átjándu öld
kom straumur innflytjenda frá ítalíu,
frakklandi og spáni. Það færði nýtt
líf í víngerðina og þá kom franski
jarðræktarfræðingurinn Miguel
aimé Pouget með Malbec þrúg-
una frá frakklandi. Hún var
áður algeng í Bordeaux en
þar hefur Merlot leyst hana
af hólmi. í argentínu er
Malbec höfuðþrúgan og
nær hvergi annars staðar
líkum gæðum. Þrúgan
virðist dafna vel í hálf-
gerðu eyðimerkurlofst-
slagi, hátt yfir sjávarmáli
í hita og þurrki.
Vínrækt hefur lengi
verið gríðarmikil í arg-
entínu en gæðin ekki
að sama skapi. Lengst
af voru nær eingöngu
búin til ódýr vín fyrir
heimamarkað. Miklar
breytingar hafa orðið á síðustu árum,
sérstaklega eftir að Carlos
Menem innleiddi meira
frjálsræði í landinu á tíunda
áratug síðustu aldar. sú þróun
hefur haldið áfram þrátt fyrir
óðaverðbólgu og
allsherjarverkföll síðustu ára.
Vínræktin er öll í
vestanverðu
landinu undir
andesfjöllum, en
lífæð
argentínskrar
vínræktar er
viðamikið
áveitukerfi.
Langmikilvægasta
vínræktarsvæðið er
Mendoza en þar er
framleitt tveir þriðju
af allri vínrækt landsins.
Þó er einungis 3,5%
svæðisins ræktaður.
afgangurinn er
eyðimörk.
PálMi jónasson
vínsérfræðingur DV
Norton Reserva Malbec 2003
norton er eitt helsta víngerðahús landsins og þar
ræður jorge riccitelli ríkjum. sérstök áhersla hefur
verið lögð á Malbec þótt aðrar þrúgur hafi komið vel út
á síðari árum. rúbínrautt vín með angan af rauðum
berjum, gúmmí, málmi og hráu kjöti. Minnti helst á
lyktina í stálsmiðjunni í gamla daga. Plómur, kirsuber,
lakkrís og piparbrjóstsykur í munni. Bestu kaupin í
Malbec þrúgunni að mínu mati og fyrir
það fær það fjórða glasið. 1390 krónur.
Cristobal 1492 Malbec
Cosecha 2005
Þetta er þægilegt vín frá Mendoza svæðinu.
fjólurautt með angan af svörum berjum, svörtum
pipar, kirsuberjum, lakkrís og súkkulaði. dálítil
eikarvanilla í munni með kirsuberjum, lakkrís og
piparbrjóstsykri. Mér fannst vínið
batna við umhellingu sem ýtti undir
lykt og bragð. 1590 krónur.
Antis Malbec 2004
antis þýðir andes á máli frumbyggja, enda
vatnið úr andesfjöllum lífæð vínræktarinnar.
Vínið kemur úr Lujan de Cuyo í Mendoza sem
er aðalvínræktarsvæði landsins. Vínið reyndist
hálfgegnsætt og frekar dapurt. greina má dökk
ber, sæt og væmin kirsuber, sólþurrkaða
tómata og grænan pipar.
Málmkennt bragð. Ekki alveg
minn tebolli. 1470 krónur.
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt