Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Blaðsíða 49
DV Helgarblað föstudagur 1. júní 2007 49
Rússnesk þokkadís
rússneska súpermódelið natalia Vodianova hóf ferilinn snemma
eða 15 ára gömul og hefur unnið fyrir til dæmis Louis Vuitton,
L‘Oreal, Marc jacobs, gucci, Miss sixty, Pepe jeans og Calvin
Klein. að þessu sinni er hún andlit Calvin Klein og er að gera allt
vitlaust þar sem flestir halda ekki vatni yfir því hversu þokkafull
dísin er. Kíkið inn á cku.com/nataliasroom og njótið vel.
Full búð aF giRnilegum Fötum
Á þriðjudaginn í síðustu viku var opnuð búð á Laugavegi 86-94
með karla- og konufötum. Búðin heitir Bask og má þar finna
merki eins og acne jeans, nike, adidas Orginal, dr. denim,
american apparel og Ksubi. Þarna eru geggjaðar vörur frá acne
bæði fyrir stráka og stelpur og fullt af rosalega girnilegu dóti. Kík-
ið við og sjáið hvort þið finnið ekki eitthvað
Nafn? „jonina de la rosa. sumir kalla mig jóní
en yfirmenn eiga það til að kalla mig rósu.“
Aldur? „Ég er fædd 1982 en ég hætti að eldast
þegar ég varð 19 ára.“
Starf? „Ég er nemi í arkitektúr, en ég elska að
taka myndir. Myndabloggið mitt er á
photoproblem.blogspot.com.“
Stíllinn þinn? „frekar afslappaður en það fer
alveg eftir skapi og veðri. í slabbinu eru það
jarðarfarartónarnir, en svo verð ég eins og
nammipoki í sólinni.“
Hvað er möst að eiga (tískutengt)? „sólgleraugu,
strigaskó, hálsmen og ást í hjarta. svo kemur
afgangurinn af sjálfu sér.“
Hvað keyptir þú þér síðast (má vera hvað sem er)?
„sviðasultu og toffeeCrisp. (En annars þá
keypti ég mér gulllitaða reebok-strigaskó og
myndavél á eBay).
Af hverju færð þú ekki nóg (tískutengt)? „strigaskóm,
glingri, og sólgleraugum.“
Hvenær sofnaðir þú í nótt? „rétt eftir tólf. Ég elska
að vakna snemma og nýta daginn.“
Falin perla hérna heima? „Við þurfum ekki að leita
lengi að perlum, það dugar að fara út í garð
og grilla með vinum sínum.“
Hvað langar þig í akkúrat núna? „úff mig langar í
svo margt, ég er svo gráðug sjáðu til. Byrjum
bara á litlu hlutunum: Einkaþotu og tígrisdýr.“
Þér er boðið í partí í kvöld, í hverju ferðu? „Það færi
alveg eftir partíinu. Ef þetta væri bara eins og
hvert annað djamm þá eru það strigaskór,
leggings og síð peysa í stíl. En annars luma ég
á nokkrum fínum hælum og refum fyrir
elegant stundirnar.“
Hvenær hefur þú það best? „Þegar sólin skín og
maður er léttklæddur á skútunni með
sjávargoluna í hárinu.“
Afrek vikunnar? „Ég breytti gömlu svefnherbergi
í vinnustofu. Vill einhver ókeypis dýnu?“
Persónan
Jonina de la Rosa
Ein af þeim sem hefur svo sannarlega sett spor í sögu tískunnar er ítalski tískuspekúlantinn anna Piaggi, sem
hefur skrifað fyrir ítalska Vogue, another Magazine og tímaritið Vanity í fjöldamörg ár. Hún á breiðan aðdáenda-
hóp allt frá domenico dolce og stefano gabbana, Manolo Blahnik er dyggur aðdáandi sem og Karl Lagerfeld
svo einhverjir séu nefndir. Það eru líka ófáir sem öfunda hana af klæðaskápnum þar sem hún á um 2.865 kjóla
og 265 skópör, varla þarf að taka fram að hönnuðurnir eru ekki af verri endanum.
Dýrkuð og dáð
Sérstök og djörf
Zandra rhodes er fædd árið 1940 í
Kent en hún lærði fatahönnun í
royal College of art í London. í
byrjun var hönnun hennar talin of
svívirðileg og djörf en það stoppaði
hana ekki. Heldur betur ekki þar
sem í dag er hún vel þekkt í
tískuheiminum hvort sem er fyrir
hönnun sína eða sinn persónulega
stíl. stíllinn hennar er ekki ósvipað-
ur hönnuninni en hún vekur athygli
hvert sem hún fer fyrir litríkt hár,
förðun og skartgripi. Hún var ein af
þeim nýju og fersku árið 1970 en
hönnun hennar einkennist af litum
og dramatík. Leikkonan Minnie
driver og fyrirsætan Lily Cole eru
meðal þeirra sem fylgjast vel með
rhodes.