Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Qupperneq 53
DV Helgarblað
xxxxxx
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður mjög fjölbreytt nám:
bóknám, listnám, iðnnám/starfsnám.
Bóknám leiðir til stúdentsprófs og
er undirbúningur fyrir háskólanám.
Listnám er undirbúningur fyrir
frekara listnám, arkitektúr og
annað framhaldsnám.
Markmið iðnnáms/starfsnáms er að undirbúa nemendur
fyrir störf í ýmsum greinum atvinnulífsins, veita sérhæfð
starfsréttindi og/eða undirbúning fyrir frekara nám.
Bóknám til stúdentsprófs
Félagsfræðabraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
Viðskipta- og hagfræðibraut
Upplýsinga- og tæknibraut
Þriggja ára náttúrufræðibraut
Listnámsbrautir
Myndlistarkjörsvið
Textíl- og hönnunarkjörsvið
Löggilt iðnnám
Húsasmíðabraut
Rafvirkjabraut
Snyrtibraut
Löggilt starfsnám
Sjúkraliðabraut
Sjúkraliðabrúin
Eins til tveggja ára starfsnám
Grunnnám rafiðna
Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina
Handíðabraut
Íþróttabraut
Viðskiptabraut
Almenn námsbraut
Starfsbraut
Með viðbótarnámi er hægt að ljúka
stúdentsprófi af öllum brautum.
Innritun í Fjölbrautaskólann í Breiðholti
er á netinu eða á skrifstofu skólans
frá 09:00 til 15:00 og lýkur 11. júní.
Mánudaginn 11. júní verða
náms- og starfsráðgjafar skólans
til viðtals frá kl. 9 – 18.
Atari VCS 2600 Atari 2600 kom út árið 1977
og nánast grandaði öllum keppinautum sínum.
Leikirnir fengust í sérstökum hylkjum
eins og á Channel F tölvunni
og var grafíkin mun
betri en
þekkst
hafði
áður.
VCS
stendur
fyrir Video
Computer
System, sem var
aðalmálið þá.
Atari 400 Atari 400 var
miðuð aðallega að
börnum. Hægt var að
breyta tölvunni í
„Notepad“ en þá
gat fólk notað
hana í ritvinnslu.
Flestir leikirnir sem
gefnir voru út fyrir
tölvuna voru þekktir úr
spilatækjasölum. Atari 400 var í
raun síðasta tölvan í fyrstu
kynslóð leikjatölva.
Super Nintendo Entertainment System
Super Nintendo átti að fylgja vinsældum
Nintendo eftir og þannig gulltryggja
framleiðendum hennar
sigurinn í tölvuleikjastríð-
inu. Hins vegar var það
nokkuð erfitt þar sem
Sega Genesis var að
seljast vel líka. Það var þó
ekki fyrr en Sega menn drógu
verulega úr sókn sinni, sem
Super Nintendo stóð uppi sem
sigurvegari 16-bita leikjatölvu-
stríðsins. Sega menn vildu frekar einbeita sér
að næsta verkefni sem var 32-bita leikjatölva.
Atari Jaguar Atari Jaguar var
langt á undan sínum
samtíma. Í þá daga snérist
allt um bit og sögðu
framleiðendur tölvunnar
að hún væri 64 bita. Ekki
voru þó allir sammála því,
en vissulega voru sumir
hlutir tölvunnar 64 bita,
þó svo leikirnir spiluðust
eins og í 32-bita tölvum.
Atari Jaguar var betri en allar aðrar tölvur á
markaðnum þegar hún kom út, en hins
vegar keyptu hana fáir. Á endanum fóru svo
Atari á hausinn árið 1996.
Sega Dreamcast Dreamcast átti að skjóta
Sega aftur upp á stjörnuhiminn og var ráðist í
risavaxna auglýsingarherferð til þess að tryggja
það að neytendur vissu af tölvunnni. Salan
gekk mjög vel og seldust meðal annars 500
þúsund eintök af tölvunni á aðeins tveimur
vikum í Bandaríkjunum. Dreamcast varð þó
ekki langlíf, en með tilkomu Playstation 2 varð
hún hálf úrelt. Hins vegar
voru Soul Caliber
leikirnir stórkostlegir.
Sony PlayStation 2 Playstation 2
byrjaði illa, en framleiðslugallar hrjáðu
tölvuna. Hins vegar seldist hún svo vel
að erfitt var að verða sér út um grip, hún
var einfaldlega uppseld allsstaðar. Tölvan
hefur verið langlíf og er langsöluhæsta
leikjatölva heims.
Óteljandi sígildir
leikir hafa komið
út á PS2, sem
enn í dag, sjö
árum seinna lifir
góðu lífi.
Sony PlayStation 3
PS3 kom út árið 2006 í
Japan en árið 2007 á
Vesturlöndum. Tölvan
er fantagóð, en hefur
ekki selst jafn mikið og
Sony menn vonuðu.
Hins vegar á hún eftir
að lifa í fjölda ára í
viðbót og því lítil
reynsla komin á hana.
Nintendo Wii Wii átti upphaflega að heita
Revolution. Hún notast við öðruvísi
fjarstýringar en áður hafa sést og styðst
mikið við hreyfiskynjara. Wii hefur náð
miklum vinsældum
sérstaklega hjá börnum.
Hún er öðruvísi en hinar
leikjatölvurnar, þá
aðallega vegna
stýringanna, sem
styðjast við
líkamshreyfingar
leikmannsins.
1977 1979
1991 1993
1999 2000
2006 2006