Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Side 54
Eina almennilega reynsla mín
af Socom-leikjunum er af PSP-
leiknum sem kom út fyrir skömmu.
Þessi leikur Socom U.S. Navy Seals
Combined Assault er miklu betri.
Leikmenn stýra eins og áður hópi
sérsveitarmanna sem ferðast um
þriðja heiminn réttlætinu og lýð-
ræðinu til verndar. Verkefnin eru
stór og margbrotin og þarf mað-
ur að leggja mikla hugsun í það
hvernig maður ætlar að inna þau
af hendi, því hætturnar leynast alls
staðar. Helsti styrkur leiksins eru
ótrúlega þægilegar stýringar, sem
gera manni kleift að stjórna þeim
gæjum sem eru með manni um
leið og maður stjórnar eigin leik-
manni. Þegar maður er til dæmis
kominn inn fyrir „the line of fire“ í
einhverju banvænu þorpi er mjög
gott að geta gefið nokkrar skipan-
ir, bæði til þess að hlífa eigin rassi
og til þess að innsigla dæmið bara.
Socom-leikirnir eru þó margróm-
aðir fyrir netspilun sína, sem er jafn
frábær og áður. Gallinn við að spila
svona leiki er fyrst og fremst póli-
tíska rétthugsunin sem vaknar af
og til. Manni líður eins og nauðgara
og óbótamanni, þegar maður er að
skjóta menn í nafni bandarísks lýð-
ræðis. Playstation 2 tölvan er ennþá
vinsælasta leikjatölva í heimi þrátt
fyrir þriðju kynslóðina. Ef fleiri leik-
ir eins og Socom Combined Assault
koma út þá er víst að tölvan mun
lifa farsælu lífi áfram og greinilegt
er að hún er ekki í andaslitrunum,
eins og ég hélt.
Dóri DNA
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 1. júní 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
ratchet & Clank - size Matters - PSP
Command & Conquer 3 - XboX 360
scarface Platinum - PS2
PacMan rally - PSP
tony Hawk downhill jam - PS2
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
Leikstjórinn John Woo stofnaði sitt eigið tölvuleikaþróunarfyrirtækið árið 2003. Síðan
þá hefur hann unnið hörðum höndum að tölvuleiknum Stranglehold, sem er nokkurs
konar stafrænt framhald af kvikmyndinni Hard Boiled. Þá er leikstjórinn einnig að fara
að leikstýra kvikmynd eftir tölvuleiknum Ninja Gold. KviKmyndaleiKir
seljast vel
tölvuleikirnir sem eru byggðir á
myndunum spider-Man og Pirates of
the Caribbean sitja nú á toppi breskra
sölulista. spider-Man 3 leikurinn frá
activision situr enn á toppi sölulista á
meðan Pirates of the Caribbean 3
tölvuleikurinn kemur fast á hæla hans
og gefur sterklega til kynna hversu
söluvænlegir leikir byggðir á vinsælum
kvikmyndum eru. super Mario strikers á
nintendo Wii kom þá beint inn í þriðja
sæti sölulista.
5 milljónir
Wi-Fi notenda
nintendo náði merkum áfanga nýlega
þegar notendafjöldi þráðlausu Wi-fi
þjónustunnar fyrir ds fór yfir
fimm milljónir.
Þessar fimm
milljónir hafa
spilað yfir 200
milljón sinnum
og reyndust
animal Crossing:
Wild World og
Mario Kart ds
vinsælustu leikirnir.
nintendo ds selst alveg ótrúlega vel og
hafa nú selst um 43 milljónir eintaka á
heimsvísu. til dæmis seldust um 16.000
eintök af ds í Bandaríkjunum í apríl.
24,4% söluauKning
tölvuleikjaframleiðandinn ubisoft
tilkynnti nýlega að fjórðungs sölu-
aukning hafi verið á síðasta viðskipta-
ári fyrirtækisins sem lauk þann 31.
mars. aukningin nam 24,4% og eða frá
609 milljónum dala í 917 milljónir dala.
ubisoft hefur verið að vaxa hægt og
þétt með útgáfu leikja eins og Clancy’s
ghost recon advanced Warfighter,
rainbow six Vegas, rayman raving
rabbids og red steel á nintendo Wii.
Þessar sölutölur eru í takt við stækkun
tölvuleikjageirans sem ekkert lát
virðist vera á.
Hasarleikstjórinn John Woo er um þessar
mundir á kafi í tölvuleikjaheimum en hann stofn-
aði sitt eigið leikjastúdíó, Tiger Hill Games árið
2003. John er með tvö verkefni í burðarliðnum,
kvikmynd byggða á tölvuleiknum Ninja Gold og svo
tölvuleikinn Stranglehold, sem er eins konar staf-
rænt framhald á kvikmyndinni Hard Boiled. Ninja
Gold hefur enn ekki verið gefinn út, en engu að síð-
ur hefur verið ákveðið að gera kvikmynd eftir leikn-
um. Það er tölvuleikjahönnuðurinn Warren Spect-
or sem hann leikinn, en áður hefur hann gert leiki á
borð við Deus X og Thief: Deadly Shadows. Ninja
Gold fjallar um mann sem á ættir sínar að rekja
til Ninja stríðsmanna í hinni fornu Japan. Leik-
urinn gerist í nútímanum og þarf maðurinn að
berjast við hina ýmsu glæpamenn. Ekki er vitað
hversu langt leikurinn er kominn í þróun, og hef-
ur útgáfudagur ekki enn verið tilkynntur. Tölvu-
leikurinn John Woo’s Stranglehold mun hins veg-
ar koma út í ágúst á þessu ári. Það er fyrirtæki
Johns, Tiger Hill ásamt Midway sem gefur út.
Leikmenn fara í hlutverk lögreglumannsins In-
spector Tequila, sem leikinn er af Chow Yun Fat.
Tequila hefur áður komið fyrir, í kvikmyndinni
Hard Boiled frá árinu 1992. Leikurinn gerist bæði
í Hong Kong og í Chicago og þarf lögreglumaður-
inn að berjast við Mafíuna. Þeir sem prófað hafa
leikinn segja að skotbardagarnir séu ótrúlegir og
alveg í anda John Woo. Þá er grafíkin og hljóðið til
fyrirmyndar, en segja flestir að stýringar leiksins
séu það sem hönnuðir hans eiga að vera stoltast-
ir af. Umhverfi leiksins eru svo mjög lifandi ef svo
að orði má komast, en leikmenn geta brotið það
sem þeir vilja með tilheyrandi áhrifum. Leikur-
inn kemur út á Xbox360 og hefur enn ekki komið
í ljós hvort hann verði fáanlegur á PS3. dori@dv.is
dV5748310507
nintendo-ds_lite.jpg
dV5748310507
DV5746310507
Socom U.S. Navy Seals Combined Assault
Sérsveitarmenn í kröppum dansi.
Tölvuleikjadómur
HHHH
AlfA, DeltA, skjótið hAnn í trýnið
Socom U.S. Navy Seals
Combined Assault
Skotleikur
PS2
tölvuleiKur
H H H H H
john Woo Færir sig
yFir í tölvuleiKina
John Woo Leggur á djúp tölvuleikjanna.
Stranglehold stafrænt leikjaframhald af kvikmyndinni Hard Boiled.