Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 56
föstudagur 1. júní 200756 Helgarblað DV
TónlisT
Franska tvíeykið Air heldur tónleika hér
á landi þann 19. júní. Tónleikarnir munu
fara fram í Laugardalshöllinni og verð-
ur ekkert til sparað til að gera tónleikana
sem allra glæsilegasta. Miðasala á tónleik-
ana hefst í dag í verslunum Skífunnar, BT
á landsbyggðinni og á midi.is. Air sam-
anstendur af þeim Nicolas Godin og Jean
Benoit Dunckel sem stofnuðu sveitina
árið 1995. Þrátt fyrir að vera einungis tveir
í bandinu mun heil hljómsveit vera þeim
til halds og trausts á sviðinu í Laugardals-
höllinni. Mikill tækjabúnaður mun fylgja
sveitinni og verða tónleikarnir án efa mjög
veglegir og flottir. Um þessar mundir er
hljómsveitin í alþjóðlegu tónleikaferða-
lagi til að fylgja eftir nýjustu plötu sinni
Pocket Symphony sem hefur hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda. Áður hefur Air sent
frá sér plöturnar Moon Safari, The Virg-
in Suicides, 10.000 Hz Legend og Talkie
Walkie. Hinn þekkti upptökustjóri Nigel
Godrich sem starfað hefur með sveitum
á borð við Beck, Radiohead og Pavement
vann að nýjustu plötunni í sambandi við
Air-meðlimina. Miðaverð á tónleikana
er 5.500 krónur í stúku og 4.500 krónur í
stæði. Tónleikarnir eru hluti af frönsku
vori í Reykjavík og eru haldnir í samstarfi
við Hr. Örlyg, Icelandair og Corona.
Píanó Lennons
til sölu
Píanóið sem john Lennon spilaði á
sama kvöld og hann lést er nú til sölu
fyrir 375 þúsund dollara sem samsvarar
rúmum tuttugu og þremur milljónum
íslenskra króna. Píanóið var áður í eigu
the record Plant recording studios í
new York þar sem hinn frægi Bítill tók
upp Imagine-plötuna sína frægu árið
1971. sögur segja að Lennon hafi
spilað á píanóið einungis nokkrum
klukkutímum áður en hann var skotinn
til bana þann 8. desember árið 1980.
Einnig er sagt að tónlistarmennirnir
don McClean og Bob dylan hafi látið
fingur sína leika um nótur píanósins.
Tónlistarakademía DV segir
Hlustaðu á þessa!
fnykur með samúeli jón samúelssyni og Big Band.
at War With the Mystics með the flaming Lips
Pocket symphony með aIr
dumb Luck með dntel
Cassadaga með Bright Eyes
Flaming Lips
á Hróarskeldu
Bandaríska hljómsveitin the flaming
Lips hefur nú bæst við listann yfir þær
sveitir sem spila á Hróarskelduhátíðinni
en tuttugu ár eru nú liðin frá því að
sveitin kom fyrst fram á hátíðinni. auk
þessarar þekktu sveitar hafa bæst við
böndin akron/family frá Bandaríkjun-
um, Hatesphere frá danmörku og the
twilight sad frá Bretlandi. Það er því
greinilegt að um stóra tónlistarveislu
verður að ræða á hátíðinni í ár og enn
er von á því að fleiri stór nöfn bætist á
listann seinna í mánuðinum.
Halda tónleika
í London
Hljómsveitin smashing Pumpkins
hefur nú tilkynnt tónleika í Bretlandi
þann 19. júní. Munu Billy Corgan og
félagar spila á staðnum shepherd‘s
Bush Empire í London. Hljómsveitin
hefur nú verið á tónleikaferðalagi um
Evrópu og Bandaríkin en eru þetta
fyrstu tónleikarnir sem hún heldur í
Bretlandi í langan tíma. Platan þeirra
Zeitgeist kemur út þann 9. júlí og er
það fyrsta plata sveitarinnar í sjö ár en
árið 2000 kom út platan Machina/the
Machines Of god. smashing Pumpkins
mun einnig koma til með að spila á
Leeds og redding tónlistarhátíðinni
sem haldin er í ágúst.
Á NASA í kvöld verður haldið fyrsta partí
sumarsins að sögn tónlistarmannsins Curvers
en hann stendur fyrir margrómuðum tíunda
áratugs gleðskap eða 90‘s partíi ásamt vinkonu
sinni Kiki Ow. „Í fyrstu héldum við alltaf svona
90‘s kvöld á Bar ellefu þar sem við spiluðum ein-
ungis 90‘s tónlist og fólk dansaði með „glow-
sticks“ og nokkrir klæddu sig upp í dress sem var
mjög lýsandi fyrir tíunda áratuginn,“ segir Curv-
er. Þegar Bar ellefu var svo einfaldlega orðinn of
lítill fyrir svo stóran gleðskap var ákveðið að færa
partíið yfir á skemmtistaðinn NASA. „Fyrsta
partíið var haldið um áramótin og miðarnir
seldust upp. Það var svo ótrúlega mikil stemning
og vel heppnað partí að við tókum ákvörðun um
það að halda partí á þriggja mánaða fresti. Við
héldum svo annað partí í mars sem var líka upp-
selt á svo ég mæli með því að fólk tryggi sér miða
í forsölu til að lenda ekki í óþarfa veseni.“
Byrjaði sem rifrildi
Undanfarið hefur færst í vöxt að sem flestir
mæti í viðeigandi 90‘s fatnaði í sem skærustum
litum og hjálpist að við að skapa ekta 90‘s stemn-
ingu. „Við dreifum alltaf tvö þúsund „glowsticks“
eða neon-stautum í partíinu og svo er fólk líka
duglegt við að mæta sjálft með alls kyns 90‘s
drasl,“ segir Curver sem bætir því við að hug-
myndin að slíkum 90‘s þemapartíum hafi vakn-
að eftir rifrildi milli hans og Kiki Ow. „Við vor-
um sem sagt eitthvað að þræta um það hvort 80‘s
eða 90‘s tónlist væri betri. Ég hélt með 90‘s tón-
listinni svo ég fór að senda slatta af klassískum
lögum frá tímabilinu á Kiki og í kjölfarið upp-
götvuðum við alltaf fleiri og fleiri góð lög. Okkur
langaði svo að prufa að halda sérstakt 90‘s kvöld
og það lítur allt út fyrir það að fólk sé að fíla þetta
vel, áhuginn fyrir kvöldunum fer allavega sí-
vaxandi.“ Curver segir einnig að sífellt algeng-
ara sé að heyra 90‘s tónlist spilaða í íslensku út-
varpi. „Ég er jafnvel farin að heyra plötusnúða á
skemmtistöðum borgarinnar spila hana í aukn-
um mæli. Það er eins og það sé mikil vakning í
þessari dansvænu tónlist núna.“
Gestaplötusnúður frá Bretlandi
Síðasta klukkutíma partísins í kvöld kemur
breskur plötusnúður og skemmtir dansþyrst-
um gestum á dansgólfinu. „Hann heitir Wayne
Paul og er Breti sem hefur mikið verið að spila
í reifpartíum úti um allt en reif er náttúrulega
stór hluti af 90‘s æðinu,“ segir Curver. „Þetta er
í fyrsta skipti sem einhver kemur og spilar með
okkur á 90‘s kvöldi en Wayne spilar skemmtilega
„old school“ og reif-tónlist meðan ég og Kiki
spilum meiri svona blöndu af þessu 90‘s poppi.“
Curver segist vera mikill aðdáandi 90‘s tónlist-
ar og þykir tímabilið einstaklega skemmtilegt.
„Það er eitthvað svo skemmtilega hallærislegt
við 90‘s poppið svo er líka alveg ótrúlega mikið
af flottri danstónlist og kúl hiphopi frá þessum
tíma.“ Curver heldur að sjálfsögðu meira upp á
sum lög frá tímabilinu en önnur. „Uppáhalds-
lagið mitt frá þessum tíma er lagið Fine Day
með Opus3, svo er fullt af öðrum flottum lögum
líka.“ Auk þess að vera fyrsta partí sumarsins er
þetta einnig fyrsta reyklausa partíið mörgum til
mikillar gleði. „Við erum samt með reykvélar til
að skapa stemninguna í kvöld,“ segir Curver og
hlær. Miðasala fer fram í Spúútnik og á nasa.is,
auk þess sem selt verður inn við innganginn en
partíið hefst á miðnætti og stendur til klukkan
fimm. „Þeir sem kaupa miðann í Spúútnik fá í
staðinn tuttugu prósenta afslátt af fatnaði en þar
má finna mikið af svölum 90‘s dressum,“ segir
90‘s kóngurinn Curver að lokum og lofar góðu
partíi.
krista@dv.is
Miðasala á Air hefst í dag
Franska hljómsveitin Air spilar í Laugardalshöllinni þann 19. júní.
Tvíeykið Air spilar í Höllinni 19. júní.
BYRJAÐI SEM RIFRILDI -
ENDAÐI SEM PARTÍ
Þau Dj Curver og Kiki Ow hafa kynnt landsmenn
fyrir stórskemmtilegum 90‘s partíum sem nú eru
haldin á þriggja mánaða fresti. Fyrsta partí sum-
arsins verður haldið á skemmtistaðnum NASA
við Austurvöll í kvöld og lofar Curver góðu partíi.
Brjáluð neon-stemning Myndast í 90‘s partíunum.