Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Side 38

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Side 38
38 LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21 CYTOMEGALOVEIRUSÝKINGAR HJÁ HEILBRIGÐUM Eli'nborg Bárðardóttir, Helea Kristjánsdóttir, Ásbjörn Sigfússon, Þorgerður Árnadóttir, Margrét Guðnadóttir, Sigurður B. Þorsteins- son. Landspítalinn, Lyfjadeild, Rannsókna- stofur í Ónæmisfræði og Veirufræði. Inngangur og aðferðir: Flestir smitast af CMV í æsku án teljandi einkenna. Veikindi fullorðinna heilbrigðra einstaklinga af völd- um CMV eru talin sjaldgæf. Tilgangur rann- sóknarinnar var að kanna tíðni CMV sýk- inga í heilbrigðum á íslandi og athuga sjúkdómsgang og einkenni. Leitað var í gögnum Veirurannsóknardeildar Lsp. að svörum sem bentu til nýlegrar CMV sýkingar á árunum 1989-90. Á grundvelli beiðnaupplýsinga og sjúkraskráa voru þeir einstaklingar útilokaðir sem voru ónæmisbældir. Alls fundust 45 einst. sem voru teknir til frekari skoðunar. Sjúkra- gögn voru könnuð, mótefnamælingar endurteknar og sjúklingar skoðaðir og gerð blóð- og ónæmispróf. Niðurstöður: Fullnægjandi upplýsingar fengust um 40 einst. Af þeim voru 3 úti- lokaðir vegna ónæmisbælingar og 11 vegna þess að nýleg CMV sýking varð ekki stað- fest. Því reyndust 26 hafa fengið nýja CMV sýkingu með einkennum. Algengustu einkenni voru langvarandi hiti og slappleiki. Vandamál eins og Guillain-Barré og magasár komu þó fyrir. Flestir voru veikir í 2 - 4 vikur áður en greining var staðfest. Heildar- tími slappleika var venjulega 5 - 8 vikur og margir voru frá vinnu í allt að 4 vikum. Blóðrannsóknir í veikindum sýndu oftast óeðlil.lifrarpróf og óeðlil.blóðmynd. Rann- sóknir eftir veikindi voru eðlil. nema að í Ijós kom margtæk fjölgun T-bælifruma. Álvktun: Nýgengi fyrstu CMV sýkingar á fullorðinsárum virðist mun hærra en áður hefur verið talið. Einkenni sýkingar eru margbreytileg en oftast almenns eðlis. Hluti sjúklinga var veikur og frá vinnu svo vikum skipti. Mikilvægt er að læknar hafi CMV sýkingu í huga við langvarandi almenn sýkingareinkenni hjá áður heilbrigðum fullorðnum einstaklingum. EFTIRVIRKNI LVFJA Á HEUCOBACTKR PYLORI. Sigurður Einarsson. Helgi. K. Sigurðsson. Sólvcig Magnúsdóttir, Helga Erlendsdóttir, Magnús Gottfreðss. n og Sigurður Guðmundsson. Lyfjadeild og sýkladeild Borgarspítala, Reykjavík. Sýnt hefur verið fram á samband tilvistar H. pylori i magaslímhúð við magabólgu, magasár og jafntcl slímmyndandi krabbamein í maga. Meðferð með lyfjum virkum gegn H. pylori hefur flýtt græðslu sára. Þótt bakteri'an sé yfirleitt mjög næm gegn flestum sýklalyfjum in vitro, hefur einslyfsmeðferð dugað illa in vivo. Því hcfur fjöllyfjameðferð, cinkum með bismuth, amoxicillin, metronidazole eða tetracyclin rutt sér til rúms til viðbótar við hefðbundna sýruhemjandi meðferð. Við könnuðum cftirvirkni (postantibiotic effect) nokkurra lyfja, sem notuð eru gegn H. pylori. Eftirvirkni er skilgreind sem framhald lyfjaáhrtfa eftir að lyf er horfið af sýkingarstað, og klíniskt gildi fyrirbærisins tengist einkum skömmtun og notkunarmynstri sýklalyfja, þar sem t.d. lyf er valda langri eftirvirkni er unnt að gefa sjaldnar en tfðkast hefur. Eftirvirknin var mæld í BACTEC® blóðræktunarkerfi, þar sem CCA-myndun baktería metin með innrauðum ljósgleypnimælingum var notuð sem mælikvarði á vöxt. Ampicillin, roxithromycin, metronidazole og colloidal bismuth substrat (CBS), ein sér og í samsetningum, voru látin verka á 2 klíniska stofna H. pylori (stofnar 10 og 24) f 2 klst. Styrkleiki lyfjanna svaraði annars vegar til 5- lOxMIC og/eða hins vegar til hæsta sermigildis í 70 kg manni eftir venjulcgan skammt. Lausnin var sfðan þynnt 103-falt í blóðræktunarflöskur (BACTEC 6A), sem í hafði verið bætt 2 ml heilblóðs úr einstaklingi án sögu um magaóþægindi. C02-myndun var sfðan mæld á 3-12 klst fresti f 48-72 klst. Samanlögð COo-myndun var reiknuð út og eftirvirkni skilgreind sem vaxtarseinkun meðhöndlaðra bakterfa borin saman við viðmiðunarvöxt. Eftirvirkni var jafnframt mæld á venjulegan hátt með líftalningu. Fylgni (Pearson's stuðull) milli BACTEC® og líftalningar reyndist r=0.833 fyrir stofn 10 og r=0.984 fyrir stofn 24, og fyrir báða stofna saman r=0.935 (n=23). Meðalmunur á PAE milli aðferða var 0.7±3.3 klst (meðaltal±SD). Roxithromycin olli marktækri eftirvirkni (>5 klst.) gegn báðum stofnum, en metronidazole og CBS gegn stofni 24 eingöngu (MIC metronidazols gegn stofni 24 var enda 16-falt lægra en gegn stofni 10). Lyf er ollu eftirvirkni ein sér gegn báðum stofnum, ollu 5-10 klst. lengingu eftirvirkni í samsetningum, stundum með samverkun (synergismus). Á hinn bóginn lengdu lyf í samsetningu eftirvirkni lítið, ef þau ollu stuttri eftirvirkni ein sér. Undantekning frá þessu var lenging eftirvirkni ampicillins og metronidazols með samverkun gegn stofni 10, en ein sér öllu þau stuttri eftirvirkni. Skv. þessum niðurstöðum er COs mæling einföld og fljótleg til ákvörðunar eftirvirkni lyfja gegn H. pylori. Marktæk eftirvirkni greindist eftir algeng lyf sem notuð eru gegn H. pylori, einkum er þau voru notuð í samsetningum. og kunna niðurstöður þessar að hafa áhrif á skömmtun lyfjanna gegn sýklinum í framtíðinni.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.