Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Page 39

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Page 39
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21 39 EFTIRVIRKNI SÝKLALYFJA OG DRÁP S. AUREUS OG K. PNE UMONIAE VIÐ MISMUNANDI HITASTIG. Hrefna Guðmundsdóttir. Helga Erlendsdóttir og Sigurður Guðmundsson. Borgarspítalinn, Reykjavík. Eftirvirkni sýklalyfja er háð tegund sýkils og sýklalyfi, þéttni þess og lengd verkunar, fjölda lyfja og sýrustigi umhverfisins. Við athuguðum áhrif mismunandi hitastigs (35.5°C, 38.5°C og 41.5°C) in vitro á vaxtarhraða, MIC, sýkladráp og eftirvirkni fjögurra stofna af S. aureus eftir verkun díkloxacillíns og rífampicíns; og þriggja stofna K. pneumoniae eftir verkun ceftazidíms, imipenems, gentamicíns og cíprófloxacíns. Til að meta eftirvirkni voru lyfjaáhrif numin brott með þynningu. Vaxtarhraði var metinn hjá viðmiðunarsýni (engin lyfjaáhrif) eftir 3 klst og drápshraði eftir 6 klst stöðug Iyfjaáhrif. Vaxtarhraði S. aureus var 1.6±0.2 og K. pneumoniae 2.1±0.1 logiocfu/ml/3klst. (meðaltal±staðalfrávik) og breyttist <0.4 logiocfu/ml/3klst eftir hitastigi. MIC díkloxacillíns og rífampicíns gegn S. aureus var 2-16 falt lægri við 41.5°C heldur en við lægra hitastig, en engin áhrif á MIC gegn K. pneumoniae greindust. Dráp S. aureus var á bilinu 1-2 og K. pneumoniae 1-4 logiocfu/ml/6klst eftir lyfjategund og lyfjaþéttni og breyttist <0.5 fyrir S. aureus og <1.1 logi0cfu/ml/6klst fyrir K. pneumoniae eftir hitastigi. Á svipaðan hátt hafði mismunandi hitastig lítil áhrif á eftirvirkni. Meðal eftirvirkni (± staðalskekkja) fyrir díkioxacillíns gegn S. aureus var á bilinu 1.5±0.2 til 1.7±0.3 klst og rífampicíns 2.2±0.2 til 2.6±0.3 klst. Eftirvirkni ceftazidíms gegn K. pneumoniae var -0.4±0.1 til -0.2±0.1 klst og imipenems -0.1 ± 1 til 0.1±0.2 klst, eftir gentamicín 0.6±0.2 til 0.8±0.1 klst og cíprófloxacín 1.5±0.2 til 2.1±0.2 klst (p=NS). Við ályktum því að aukið hitastig hafi áhrif á MIC fyrir S. aureus en ekki fyrir K. pneumoniae. Hins vegar er vaxtarhraði, sýkladráp og eftirvirkni sýklaiyfja beggja sýklategundanna óháð hitastigi. EFTIR VIRKNI OG SÝKLADRÁP EFTIR SAMSETNINGAR LYFJA I VÖÐVASÝKTUM MÚSUM. Siguxðui__Guðmundsson og Helga Erlendsdóttir. Lyfjadeild og sýkladeild Borgarspítala, Reykjavík. Eftirvirkni sýklalyfja er skilgreind sem framhald lyfjaáhrifa eftir að lyf er horfið af sýkingarstað. Klíniskt gildí tengist skömmtun sýklalyfja þar sem gefa má lyf sem langa eftirverkun hafa sjaldnar en áður. Sýklalyf f samsetningum eru oft notuð við meðferð ýmissa sýkinga. >au eru hins vegar skömmtuð eins og þegar lyfin eru notuð ein sér. Gætu þvf áhrif lyfjasamsetninga á eftirvirkni breytt skömmtunarvenjum lyfja, og dregið þannig úr aukaverkunum og kostnaði. Við höfum áður sýnt fram á verulega lengingu eftirvirkni in vitro bæði með samlagningu (addition) og samverkun (synergismus) eftir 2 og 3 lyf saman miðað við notkun eins lyfs sér. f framhaldi af því hófum við dýratilraunir á samsetningum lyfja Nolaðar eru ICR mýs, -25 g að þyngd, ónæmisbældar með gjöf cyclophosphamfðs. Lyfferlar (pharmacokinetics) cefazolins (CZL), ceftazidims (CTZ), imipencms (IMI), gentamicins (G), tobramycins (T) og rifampins (RIF) voru kannaðir með raðsöfnun blóðsýna frá retro-orbital sinus eftir lyfjagjöf, og þéttni sfðan mæld með sýklafræðilegri aðferð. Mýs voru sýktar með dælingu ÍO^-IO^ cfu S. aureus ATCC 25923 eða P. aeruginosa ATCC 27853 í læri músanna. Gegn S. aureus voru notuð CZL (3.125 mg/kg) og G (8 mg/kg), og gegn P. aeruginosa IMI (200 mg/kg), T (8 mg/kg) og RIF 25-75 mg/kg). Lyfin voru gefin ein sér eða í samsetningum undir húð í einum skammti 2 klst. eftir sýkingu. Músunum var síðan slátrað á 1-4 klst. fresti í alít að 24 klst., lærvöðvar fjarlægðir, malaðir, raðþynntir f ísköldu saltvatni og dreift á Mueller-Hinton agar til bakteríutalningar. Eftirvirkni var skilgreind sem munur á þeim tíma sem sýklar f meðferðarmúsum uxu um 1 logio miðað við viðmiðunarmýs, að frádregnum þeim tíma sem sermiþéttni var yfir MIC. Helmingunartfmi rifampins var 366±73 mín., en hinna frá 13±5 til 22±3 mín. Sermiþéttni var yfir MIC f 1.2-2.7 klst. Eftirvirkni var eftirfarandi: 5. aureus klst. P. aeruginosa klst CZL 2.1 IMI 1.8 G 6.7 T 3.3 RIF 5.6-7.4 CZL+G 7.6 IMI+T 6.1 IMI+RIF 7.3 T+RIF 11.4 IMI+T+RIF 9.3 Samsetningar þær sem kannaðar hafa verið lengja eftirhrif með samlagningu. RIF hefur mjög langa eftirvirkni gegn P. aeruginosa og ræður mestu um lengd eftirvirkni þeirra samsetninga þar sem því er beitt. f þeim athugunum sem gerðar hafa verið hingað til, hefur ekki verið sýnt fram á samverkun (synergismus)fn v/vo. Niðurstöður þessar geta haft áhrif á klíniskar rannsóknir á gjöf sýklalyfja, en áður þarf að kanna fleiri stofna og framkvæma síðan lyfhrifa- og meðferðarrannsóknir f dýrum

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.