Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Page 48

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Page 48
48 LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21 DAUÐASLYS SJÓMANNA Á SJÓ OG í LANDI Vilhjálmur Rafnsson, Hólmfríöur Gunnarsdóttir, Vinnueftirlit ríkisins, Bíldshöföa 16,112 Reykjavík. Athugun sem gerö var á dauöaslysum sjómanna sýndi aö á 20 ára tímabili fækkaöi sjóslysum ekki ótvírætt (1). Sjósókn er talin hættuleg atvinnugrein en slys sjomanna í landi hafa ekki veriö rannsökuð. Þessi athugun var gerö til að kanna hvort sjómenn eru hópur, sem er hættara viö öllum slysum heldur en öörum íslenskum körlum. Þetta er aftursýn hóprannsókn þar sem fylgst er meö dánartíöni félaga í Lífeyrissjóði sjómanna arin 1966- 1989. Félagaskrá sjóðsins var borin saman viö dánarmeinaskrá Hagstofu íslands og haföi áöur fengist til þess leyfi Tölvunefndar. Væntigildiö var reiknað út á grunni mannára miðaö viö dánartíðni allra íslenskra karla í fimm ára aldurshópum eftir árum og dánarmeinum. Síöan var reiknaö staölaö dánarhlutfall (standardized mortality rate, SMR) og 95% öryggismörk (CI). SMR allra slysa var 1.92, 771 haföi farist en væntigildiö var 400.59. SMR vegna drukknana á sjó var 2.75. Manndauöi vegna annarra slysa var einnig meiri meöal sjómanna en annarra íslenskra karla. SMR umferöarslysa var 1.75, eitrana 1.60, áfengiseitrana 1.91, fallslysa 1.56, annarra slysa 1.71 og drukknana, sem ekki voru sjóslys, 1.64. Dánartalan var einnig hærri í þessum hópi en meöal annarra karla vegna sjálfmoröa (SMR 1.42, CI 1.21-1.67), manndrápa (SMR 2.59, CI 1.60-3.95) og áverka sem ekki er vitað hvort stafa af slysni eöa ásetningi (SMR 1.90, CI 1.28-1.67). SMR vegna nokkurra þessara slysa hækkaði meö lengri huliöstíma og lengri starfstíma. Sjómenn farast fremur af slysförum en aörir íslenskir karlar. Þaö kom ekki á óvart aö sjóslys væru tíöari í þessum hópi, en dánartala þeirra var einnig mun hærri í öörum slysum. Sjómenn eru því sérstakur hópur sem er í mikilli slysahættu. Hugsanlegt er aö þeir sem velja sjómennsku taki fremur áhættu en aörir karlar eða aö starfiö móti hegöun manna þannig, aö þeim sé hættara viö alvarlegum slysum. 1) Rafnsson V, Gunnarsdóttir H. Fatal accidents among seamen 1966-1986. Br J Ind Med (í prentun). LYFLÆKNINGADEILD II FSA-FIMM DAGA DEILD NICK CARIGLIA M.D., FSA, AKUREYRI Lyfjadeild II er 9 rúma fimm daga deild (mánudagur-föstudagur), tengd Lyfja- deild FSA. Síðan í júní '89 hefur þessi deild sinnt meira en 1100 sjúklingum eða að meðaltali 37 sjúklingum á mánuði. Meira en 70% sjúklinga er sinnt af einum lyflækni (höfundi). Frá júní '89 til desember '91 inn- rituðust 607 karlar og 361 kona, meðal- aldur 65 ár. Síðan '89 hefur fjöldi sjúklinga utan Eyjafjarðarsvæðis aukist úr 6% 1989 í 20% 1991. 47% sjúklinga þarfnast 4 nátta dvalar, ;5% þurfa áf ramhaldandi dvöl á öðrum ideildum s júkrahússins. Deildin sinnir 31% af öllum Lyfja- deildarsjúklingum í 27% af rúmum Lyfja- deildar á móti 17% af heildarkostnaði. Síðan deildin tók til starfa, hefur biðlisti Lyfjadeildar verið nánast ^nginn og tímasetning innlagna verið betur skipulögð.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.