Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Síða 56

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Síða 56
56 BERKJUSPEGLANIR Á FSA 1986-1991 FRIÐRIK E. YHGVASON. LÆKMIR L-DEILD FSA LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21 Frá því i september 1986 hefur verið hægt að gera berkjuspeglanir með sveigjanlegum spegli á FSA. Samtals hafa verið gerðar 212 speglanir til ársloka '91 og allar nema ein framkvæmd af höfundi. Skoðað er aftursætt aldur, kyn og búseta sjúklinganna. Skráðar aðferðir við berkjuspeglun, lyfjaforgjöf og deyfingu auk ikomuleiða. Gerð er grein fyrir forrannsöknum og complicationum. 13 speglanir therapeutiskar, ve9na aðskotahluta eða bronchografiu BLÆÐING VEGNA HÓSTABROTS Stefán Hiálmarsson, Trveevi Ásmundsson, Jón Sigurðsson, Bjarni Torfason, Guðmundur S. Jónsson. Landspítalinn, gjörgæsludeild, lyfjadeild, brjóstholsskurðdeild og æðarannsóknastofa. Inneaneur: Hósti getur valdið rifbrotum (cough fractures) og er einkum lýst hjá lungnasjúklingum. Þótt bólga, beinþynning eða æxlisvöxtur í rifjum sé í vissum tilvik- um orsök rifbrota, geta heilbrigð rif brotnað við kröftugan hósta. Fyrir utan verki og óþægindi eru alvarlegir fylgikvillar mjög sjaldgæfir eftir hóstabrot. Marblettir eru þekktir, en ekki hefur áður verið lýst meiri háttar blæðingum. Sjúkratilfelli: Sextugur reykingamaður með nokkurra ára sögu um asthma bronchiale var lagður inn á Landspítalann með slæmt asthmakast og hósta, sem kom í kjölfar inntöku aspiríns. Við komu greindust rif- brot og mar á kviðvegg. Auk þess kom seinna loft undir húð. Smám saman varð Ijóst, að um meiri háttar blæðingu var að ræða, bæði í kviðvegg og fleiðruhol. Berkjuspeglun er með ymsum hætti í heiminum og engin gullin viðmiðun til, en atriðin hér að ofan eru borin saman við niðurstöður úr tveimur stórum könnunum á berkjuspeglunum ACPP survey (Chest 1991) og Postal survey in the U.K. (Thorax 1986). Gerð er grein fyrir ábendingum fyrir berkjuspeglunum og þær tengdar lokagreiningu sjúklingsins. Sérstaklega er litið á 41 krabbamein hjá 40 sjúklingum. 28 af þessum meinum fengu ákveðna greiningu með biopsiu. Lítil notkun cytologiu og stífari áhersla á biopsiur skapast af aðstæðum á FSA. Speglun á FSA með sveigjalegum berkjuspegli hefur gengið vel. Það eru fáar complicationir og árangur hvað varðar æxlisgreiningu stenst samanburð við árangur i öðrum uppgjörum. Kviðveggurinn varð allur mjög blár og röntgenmyndir sýndu vökva í fleiðruholi. Hemóglóbíngildi í fyrri legu á Borgar- spítalanum hafði mælst 164 g/1, en mæld- ist nú 135 g/1 við komu. Nokkrum dögum síðar mældist hemóglóbín 63 g/l. Sjúkl- ingurinn fékk blóðgjöf, en rúmum hálfum mánuði síðar var hemóglóbíngildi komið í 58 g/1 og var þá blóðgjöf endurtekin. Sam- tals þurfti að gefa átta einingar af rauðblóð- kornaþykkni. Ekki fundust nein merki um blóðsjúkdóm eða truflun á blóðstorknun. Maðurinn útskrifaðist eftir rúmlega 5 vikna dvöl á sjúkrahúsinu. Við Doppleræða- rannsókn að nokkrum mánuðum liðnum tókst ekki að sýna fram á rof á millirifja- slagæðum. Við endurtekna rannsókn síðar kom hins vegar í ljós að ekki var flæði í innri brjóstslagæð vinstra megin. Hálfu ári síðar var blóðflæði í báðum innri brjóstslag- æðum. Niðurstaða: Lvst er meiri háttar blæðingum vegna rifbrots af völdum hósta (hóstabrots). Telja verður líklegt að millirifjaslagæð eða e.t.v. innri brjóstslagæð hafi farið í sundur.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.