Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Page 58
Pulmicort Turbuhaler
Innúðaduft: Hver úðastaukur inniheldur 200 úðaskammta. Hver úða-
skammtur inniheldur: Budesonidum INN 100 míkróg, 200 míkróg eða
400 míkróg. Eiginleikar: Lyfið er afbrigði af prednisólóni (sykursteri).
Það brotnar hratt niður í lifur í óvirk umbrotsefni og hefur því litlar al-
mennar steraverkanir. Ábendingar: Asthma bronchiale. Frábendingar:
Lungnaberklar án meðferðar. Lyfið hefur í dýratilraunum á meðgöngu-
tima valdið klofnum góm og beinbreytingum hjá fóstrum, en óvíst er
hvort þetta á við um menn. Aukaverkanir: Þruskusýkingar i munni og
koki. Til að draga úr þeim er ráðlagt að skola lyfið vel með vatni úr
munni og koki strax eftir notkun. Hæsi getur komið fyrir. Skammtar
stærri en 1.600 míkróg á dag geta valdið almennum steraverkunum. Var-
úð: Gæta þarf varúðar, þegar lyfið er notað til að venja sjúkling, sem er
orðinn háður,barksterum til inntöku, af slíkum lyfjum. Þá hafa nýrna-
hettur rýrnað og tekur langan tíma fyrir þær að ná upp fyrri starfsemi.
Þessir sjúklingar þurfa að vera í tiltölulega góðu ástandi og óráðlegt er
að byrja að minnka steraskammta til inntöku fyrr en lyfið hefur verið
gefið að minnsta kosti í 10 daga. Venjulega tekur nokkra mánuði að losa
sjúklinginn við stera, sem teknir eru inn, og við skyndilega versnun er
nauðsynlegt að gefa stutta sterakúra. Algengt er að þessir sjúklingar
kvarti um þreytu, höfuðverk, vöðva- og liðverki í nokkrar vikur eftir að
gjöf til inntöku hefur verið hætt. Skammtastærðir handa fullorðnum: í
byrjun meðferðar á astma eða þegar verið er að
reyna að ná astmasjúklingi af barksterum gefn-
um til inntöku, er dagskammtur 400 - 1.600
míkróg á sólarhring, skipt í 2-4 skammta. Við-
haldsskammtur er einstaklingsbundinn og reynt
að finna þann skammt, sem heldur einkennum
alveg niðri. Oftast er þó nóg að gefa lyfið kvölds
og morgna. Full verkun fæst oftast ekki fyrr en
eftir 10 daga. Sé mikil slímsöfnun í berkjum
kann að vera að lyfið nái ekki til berkjuslímhúð-
ar og er þá ráðlagt að gefa sterakúr til inntöku
í stuttan tíma (ca. 2 vikur) samhliða notkun lyfs-
ins. Skammtastærðir handa börnum: Börn 6-12
ára: Sömu skammtar og handa fullorðnum, sbr.
hér að framan. Lyfið er ekki ætlað börnum
yngri en 6 ára. Sólarhringsskammtur skal ekki
vera hærri en 400-800 míkróg. Pakkningar: Inn-
úðaduft 100 míkróg/úðaskammt: 200 skammta
úðastaukur. Innúðaduft 200 míkróg/úðaskammt:
200 skammta úðastaukur. Innúðaduft 400 míkróg
/úðaskammt: 200 skammta úðastaukur.
200 dos«f/annosti
Bricanyr
Turbuhalef
0.5 mg/'J:
•nh«tat»onspolv«f
'ohalMtiojauhs
Ts'butabn. suH.
or*co
Bricanyl Turbuhaler
Innúðaduft: Hver úðastaukur inniheldur 200 úðaskammta. Hver úða-
skammtur inniheldur: Terbutalinum INN, súlfat 0,5 mg. Eiginleikar: Lyfið
örvar beta;-viðtæki sérhæft og veldur þannig berkjuvikkun. Verkun lyfsins
hefst nokkrum mínútum eftir innúðum og getur staðið í allt að 6 klst.
Ábendingar: Sjúkdómar, sem valda berkjuþrengingu, svo sem astmi (asthma
bronchiale) og langvinn berkjubólga (bronchitis chronica) með eða án
lungnaþembu (emphysema). Við astma er rétt að nota lyfið eftir þörfum,
þar sem fyrirbyggjandi meðferð á astma byggist fyrst og fremst á notkun
steralyfja til innöndunar. Frábendingar: Ofstarfsemi skjaldkirtils.
Þungun. Hjartasjúkdómar. Varúðar skal gæta við háþrýsting og hjá
sjúklingum með sykursýki. Aukaverkanir: Skjálfti. Óþægilegur hjart-
sláttur. Eftir háa skammta hefur komið fram höfuðverkur, æðaútvíkk-
un og aukinn hjartsláttarhraði. Meðferð með beta:-agónistum getur
valdið alvarlegum kalíumbresti. Eins og hjá öðrum beta,-agónistum
hefur ofvirkni hjá börnum einstaka sinnum komið fram. Milliverkanir:
Ósérhæfð beta-blokkandi lyf draga úr áhrifum lyfsins. Ofskömmtun:
Ofskömmtun lyfsins getur valdið kalíumbresti. Fylgjast ber með kalíum-
magni í blóði. Athugið: Við eitranir af völdum lyfsins er rétt að gefa sér-
hæfð beta-blokkandi lyf, þar sem eiturverkanir eru fyrst og fremst vegna
áhrifa Iyfsins,-viðtæki. Slík meðferð getur þó haft slæm áhrif á astma.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er 1 úða-
skammtur á4 klst. fresti. í erfiðum tilvikum get-
ur þurft að nota allt að 3 úðaskömmtum í senn.
Hámarksskammtur er 12 úðaskammtar á sólar-
hring. SLammtastæröir handa börnum: Börrx
eldri en 12 ára: 0.5 mg (1 úðaskammtur) á 6 klst.
fresti og/eða eftir þörfum. í erfiðum tilvikum
getur þurft að nota 3 úðaskammta. Hámarks-
skammtur er 12 úðaskammtar á sólarhring.
Börn 3-12 ára: 0,5 mg (1 úðaskammtur) á 6 klst.
fresti og/eða eftir þörfum. í erfiðum tilvikum
getur þurft að nota 2 úðaskammta. Hámarks-
skammtur er 8 úðaskammtar á sólarhring. Lyfið
er ekki ætlað börnum yngri en 3 ára. Pakkning-
ar: 200 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki.
Framleiðandi: Draco. Einkaumboð: Pharmaco
hf.
200 doser
Pulmicort"
Turbuhaler5
400 mikrofl/dos
Inhalationspulvr
Budesonid.
DRrtCO Lund. t**0**
ASTIM
jmmm astra ísland HHk
i