Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Qupperneq 58

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Qupperneq 58
Pulmicort Turbuhaler Innúðaduft: Hver úðastaukur inniheldur 200 úðaskammta. Hver úða- skammtur inniheldur: Budesonidum INN 100 míkróg, 200 míkróg eða 400 míkróg. Eiginleikar: Lyfið er afbrigði af prednisólóni (sykursteri). Það brotnar hratt niður í lifur í óvirk umbrotsefni og hefur því litlar al- mennar steraverkanir. Ábendingar: Asthma bronchiale. Frábendingar: Lungnaberklar án meðferðar. Lyfið hefur í dýratilraunum á meðgöngu- tima valdið klofnum góm og beinbreytingum hjá fóstrum, en óvíst er hvort þetta á við um menn. Aukaverkanir: Þruskusýkingar i munni og koki. Til að draga úr þeim er ráðlagt að skola lyfið vel með vatni úr munni og koki strax eftir notkun. Hæsi getur komið fyrir. Skammtar stærri en 1.600 míkróg á dag geta valdið almennum steraverkunum. Var- úð: Gæta þarf varúðar, þegar lyfið er notað til að venja sjúkling, sem er orðinn háður,barksterum til inntöku, af slíkum lyfjum. Þá hafa nýrna- hettur rýrnað og tekur langan tíma fyrir þær að ná upp fyrri starfsemi. Þessir sjúklingar þurfa að vera í tiltölulega góðu ástandi og óráðlegt er að byrja að minnka steraskammta til inntöku fyrr en lyfið hefur verið gefið að minnsta kosti í 10 daga. Venjulega tekur nokkra mánuði að losa sjúklinginn við stera, sem teknir eru inn, og við skyndilega versnun er nauðsynlegt að gefa stutta sterakúra. Algengt er að þessir sjúklingar kvarti um þreytu, höfuðverk, vöðva- og liðverki í nokkrar vikur eftir að gjöf til inntöku hefur verið hætt. Skammtastærðir handa fullorðnum: í byrjun meðferðar á astma eða þegar verið er að reyna að ná astmasjúklingi af barksterum gefn- um til inntöku, er dagskammtur 400 - 1.600 míkróg á sólarhring, skipt í 2-4 skammta. Við- haldsskammtur er einstaklingsbundinn og reynt að finna þann skammt, sem heldur einkennum alveg niðri. Oftast er þó nóg að gefa lyfið kvölds og morgna. Full verkun fæst oftast ekki fyrr en eftir 10 daga. Sé mikil slímsöfnun í berkjum kann að vera að lyfið nái ekki til berkjuslímhúð- ar og er þá ráðlagt að gefa sterakúr til inntöku í stuttan tíma (ca. 2 vikur) samhliða notkun lyfs- ins. Skammtastærðir handa börnum: Börn 6-12 ára: Sömu skammtar og handa fullorðnum, sbr. hér að framan. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Sólarhringsskammtur skal ekki vera hærri en 400-800 míkróg. Pakkningar: Inn- úðaduft 100 míkróg/úðaskammt: 200 skammta úðastaukur. Innúðaduft 200 míkróg/úðaskammt: 200 skammta úðastaukur. Innúðaduft 400 míkróg /úðaskammt: 200 skammta úðastaukur. 200 dos«f/annosti Bricanyr Turbuhalef 0.5 mg/'J: •nh«tat»onspolv«f 'ohalMtiojauhs Ts'butabn. suH. or*co Bricanyl Turbuhaler Innúðaduft: Hver úðastaukur inniheldur 200 úðaskammta. Hver úða- skammtur inniheldur: Terbutalinum INN, súlfat 0,5 mg. Eiginleikar: Lyfið örvar beta;-viðtæki sérhæft og veldur þannig berkjuvikkun. Verkun lyfsins hefst nokkrum mínútum eftir innúðum og getur staðið í allt að 6 klst. Ábendingar: Sjúkdómar, sem valda berkjuþrengingu, svo sem astmi (asthma bronchiale) og langvinn berkjubólga (bronchitis chronica) með eða án lungnaþembu (emphysema). Við astma er rétt að nota lyfið eftir þörfum, þar sem fyrirbyggjandi meðferð á astma byggist fyrst og fremst á notkun steralyfja til innöndunar. Frábendingar: Ofstarfsemi skjaldkirtils. Þungun. Hjartasjúkdómar. Varúðar skal gæta við háþrýsting og hjá sjúklingum með sykursýki. Aukaverkanir: Skjálfti. Óþægilegur hjart- sláttur. Eftir háa skammta hefur komið fram höfuðverkur, æðaútvíkk- un og aukinn hjartsláttarhraði. Meðferð með beta:-agónistum getur valdið alvarlegum kalíumbresti. Eins og hjá öðrum beta,-agónistum hefur ofvirkni hjá börnum einstaka sinnum komið fram. Milliverkanir: Ósérhæfð beta-blokkandi lyf draga úr áhrifum lyfsins. Ofskömmtun: Ofskömmtun lyfsins getur valdið kalíumbresti. Fylgjast ber með kalíum- magni í blóði. Athugið: Við eitranir af völdum lyfsins er rétt að gefa sér- hæfð beta-blokkandi lyf, þar sem eiturverkanir eru fyrst og fremst vegna áhrifa Iyfsins,-viðtæki. Slík meðferð getur þó haft slæm áhrif á astma. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er 1 úða- skammtur á4 klst. fresti. í erfiðum tilvikum get- ur þurft að nota allt að 3 úðaskömmtum í senn. Hámarksskammtur er 12 úðaskammtar á sólar- hring. SLammtastæröir handa börnum: Börrx eldri en 12 ára: 0.5 mg (1 úðaskammtur) á 6 klst. fresti og/eða eftir þörfum. í erfiðum tilvikum getur þurft að nota 3 úðaskammta. Hámarks- skammtur er 12 úðaskammtar á sólarhring. Börn 3-12 ára: 0,5 mg (1 úðaskammtur) á 6 klst. fresti og/eða eftir þörfum. í erfiðum tilvikum getur þurft að nota 2 úðaskammta. Hámarks- skammtur er 8 úðaskammtar á sólarhring. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 3 ára. Pakkning- ar: 200 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki. Framleiðandi: Draco. Einkaumboð: Pharmaco hf. 200 doser Pulmicort" Turbuhaler5 400 mikrofl/dos Inhalationspulvr Budesonid. DRrtCO Lund. t**0** ASTIM jmmm astra ísland HHk i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.